Posts tagged as:

Cabernet Franc

Lindemans Coonawarra Pyrus 1992

01.01.2001

Þetta var alveg meiri háttar vín, þykkt og kröftugt. Sólberin voru sterk í lyktinni en einnig pipar og það var útihúsakeimur inn á milli. Piparinn og lakkrísinn voru fremst í flokki í bragðinu, tannínin mjúk og vínið í frábæru jafnvægi – alveg á toppnum. Tímaritið WineSpectatorgefur 1994 árgangnum einkunnina 88 og þessa umsögn: “Firm and [...]

Lesa meira →

Chateau Pibran Pauillac 1997

01.01.2001

Sæmilega dökkt, ágæt dýpt, fallegt vín.  Kaffi, súrhey, leður, sólber, eik, brómber. Mikil tannin, hæfileg sýra á móti, gott jafnvægi, skortir aðeins á fyllingu, gott eftirbragð. Gott núna en mætti jafnvel geyma í nokkur ár.

Lesa meira →

Chateau Meyney St. Estephe 1994

01.01.2001

Byrjandi þroski, ríflega meðaldökkt, góð dýpt. Þegar glasið er borið að nefi kemur fram kaffi, eik, mynta, blýantur, lakkrís, pipar og leður. Bragðið er þægilegt, sýra aðeins yfir meðallagi, eftirbragðið stutt. Einkunn: 6,0

Lesa meira →

Chateau Margaux 1997

01.01.2001

Dökkrautt, gríðarmikil dýpt en þó enn unglegt að sjá. Tóbak, leður, útihús og frönsk eik, merkilega einfaldur ilmur. Silkimjúkt í munni, þó með mikla fyllingu og stórkostlegu eftirbragði. Fullt hús! Einkunn: 10

Lesa meira →

Chateau du Glana St. Julien 1997

01.01.2001

Tært, ljóst að sjá og góð dýpt. Angan af hvítum pipar, eik, rifsber sem hverfa við þyrlun en þá kemur fram marsipan og smá útihús. Góð lykt. Mjúkt og kryddað bragð, gott eftirbragð en fíngert. Mjög sérstakt. Einkunn: 8,0

Lesa meira →

Chateau Cantenac Brown Margaux 1997

01.01.2001

Sæmilega dökkt, góð dýpt, byrjandi þroski. Kaffi, útihús, eik, leður, rósir, núggat og anis í nefi. Góð tannin, sýra rétt yfir meðallagi, góð fylling, hratkeimur í annars góðu eftirbragði. Einkunn: 8,0

Lesa meira →

Chateau Cantemerle Haut-Medoc 1994

01.01.2001

Fremur ljóst, ágætur þroski, liturinn minnir á pinot noir, dalsverð dýpt. Kaffi, pipar og leður alls ráðandi í lyktinni, magnast mjög við þyrlun og læðir fram ávöxtum og þá einna helst rifsberjum. Bragðið piprað í fyrstu, svo milt. Eftirbragðið ótrúlega langt og gott. Einkunn: 8,0

Lesa meira →

Niebaum-Coppola Napa Valley Cabernet Franc 1997

01.01.2001

Mjög ungt vín, nokkuð dökkt og meðaldjúpt. Lyktar af kóngabrjóstsykri, eik, leðri og alkóhóli, frekar lokuð lykt. Áberandi tannín, dálítil sýra, kolsýra?, hrat (krækiber) og smá greip í eftirbragðinu. Nokkuð lokað vín sem þarf að geyma nokkuð lengi áður en það nær fullum skrúða, en gæti elst vel. Í fyrsta skipti sem Vínklúbburinn smakkar hreint [...]

Lesa meira →

Cakebread Cellars Cabernet Sauvignon 1996

10.07.2000

Vín mánaðarins í október 2000 er dúndurbolti frá Cakebread Cellars í Kaliforníu – Cabernet Sauvignon 1996. Sá árgangur var mjög góður í Kaliforníu, en heldur í smærra lagi þó, vegna rigninga í apríl 1996. Sumarið var hins vegar gott, þrúgurnar fengu góðan tíma til að ná þroska og urðu mjög kröftugar. Þrúgurnar í þessu víni [...]

Lesa meira →