Höfundur: Eiríkur Þann 1. desember 2010
Við héldum ítalskt kvöld um helgina og buðum Keizaranum í mat ásamt fjölskyldu. Við fengum okkur Bollinger Special Cuvée í fordrykk – einstaklega gott kampavín með ljúfum sítrus- og hnetukeim. Einkunn: 9,0 – Góð Kaup! Aðalrétturinn var Farsumagru – fyllt nautasteik frá Sikiley – sem tókst einstaklega vel. Ég gerði líka ítalskt kartöflugratín sem var bara nokkuð gott. Með þessu drukkum við fyrst Sette Ponti Crognolo 2007, sem er s.k. súper-Toscani, gert úr Sangiovese, Cabernet Sauvignon og Merlot. Vínið er enn mjög ungt, óvenjumiklar fjólur í ilminum ásamt plómum, leðri og smá eik. Mikil tannín og greinilegt sólberjabragð, góð fylling og gríðarlega langt og gott eftirbragð. Frábært vín sem þarfnast samt smá tíma til að þroskast betur. Einkunn: 9,0 – Bestu Meðmæli.
Vín kvöldsins - Crognolo, Bollinger, Ricasoli
Við opnuðum líka Castello di Brolio Barone Ricasoli Chianti Classico 2006 (sjá aðra umsögn) – annað frábært ítalskt vín til að toppa frábært kvöld. Það eina sem ég var ekki nógu ánægður með var Tiramisúið mitt – það er alltaf of lint, sama hvað ég reyni. Ég held að ég þurfi að leita ráða hjá Árdísi Brekkan…
Höfundur: Eiríkur Þann 14. nóvember 2010
Á föstudaginn langaði okkur í góðan mat og gott vín, m.a. til að fagna því að Guðrún og sonurinn væru komin heim. Ég fór í sund með dæturnar og maturinn varð því að vera einfaldur, hægt að útbúa fyrirfram eða hvoru tveggja. Við gerðum því Beef Wellington með nautahakki í stað nautalundar, nokkurs konar Wellington fátæka mannsins (uppskriftina er að finna í einni af bókum Jamie Oliver og satt að segja höfðum við horft á þessa uppskrift í nokkurn tíma og langað til að prófa). Við vildum líka drekka gott rauðvín og ég tók út eina Barone Ricasoli Castello di Brolio Chianti Classico 2006 sem ég fékk nýlega í hús. Þetta vín lenti í 5. sæti á topp-100 lista Wine Spectator í fyrra og ég skil það vel! Vínið er enn ungt og var mjög lokað þegar því var hellt beint úr flösku í glas og ég ákvað því að umhella því rösklega og prófa á ný. Dásamlegur sólberja- og blómailmur með vott af lakkrís sem kemur betur fram í munni ásamt berjabragði. Fín tannín og dásamlegt eftirbragð sem heldur sér nokkuð lengi. Frábært Chianti Classco. Einkunn: 9,5 – Frábær Kaup!
PS. Wellington-steikin var bara skrambi góð með villisveppasósu og kartöflum!