Posts tagged as:

Cepparello

Góð uppskera í vikulok

Höfundur: Eiríkur Þann 12. febrúar 2010

Þetta er búin að vera ágæt vika.  Ég er reyndar búinn að vera á bakvakt alla vikuna en er núna kominn í helgarfrí.  Þetta var róleg vika, lítið um hringingar og til að bæta um betur vann Arsenal leikinn gegn Liverpool, Man U gerði jafntefli og Chelsea tapaði.  Sem sagt mjög góð vika.  Það var því eiginlega vel við hæfi að ég skyldi rekast á flösku af Isole e Olena Cepparello 2006 í vínbúðinni minni í dag!  Þetta vín hefur nefnilega ákveðinn goðsagnastatus hjá mér.  Í einu af fyrstu eintökunum af Wine Spectator sem ég sá var einmitt fjallað um þetta vín, nánar tiltekið 1997-árganginn sem var sá besti í sögu þessa víns (og líka einn besti árgangurinnn í sögu Toscana).  Mig hafði því lengi langað í þetta vín og aðeins smakkað eina flösku fyrir u.þ.b. 10 árum síðan, en ég fékk reyndar flösku að gjöf frá Palla frænda þegar hann var veislustjóri í brúðkaupi okkar Guðrúnar og gat því notið þessa víns í fyrra.  Ég var svo sem ekkert að leita mér að neinu tilteknu víni til að fjárfesta í í dag, ætlaði bara að kaupa bjór (Norrlands Guld) og rauðvínsbelju (Beringer Cabernet Sauvignon) en svo sá ég eina Cepparello í hillunni fyrir þau vín sem tímabundið má finna í búðinni (slík vín eru annars aðeins til pöntunar eða seld í einni af þremur “aðalbúðum” systembolagsins).

Annars er ekki mikið á dagskrá þessa helgi.  Valentínusardagur er reyndar á sunnudaginn…

{ 0 comments }

Cepparello!

Höfundur: Eiríkur Þann 16. október 2008

Já, loksins kom að því að ég smakkaði Cepparello!

Ég hef fylgst með þessu víni s.l. 7-8 ár eftir að hafa lesið umsagnir um hinn frábæra 1997 árgang.  Það þótti hreint stórkostlegt vín, líkt og mörg önnur ofur-Toscanavín þetta árið.  Ekki hefur mér þó tekist að eignast vínið fyrr en ég gifti mig í sumar, þegar minn frábæri veislustjóri (Palli frændi) færði mér þetta eðalvín að gjöf.

Ég átti afmæli í síðustu viku en var á næturvöktum og hélt því ekki upp á afmælið fyrr en um síðustu helgi.  Keizarafjölskyldunni var boðið í mat, en einkadóttirin á þeim bæ átti einmitt afmæli þennan dag.  Með lambalærinu bauð ég svo upp á Cepparello, og þó svo að 2003-árgangurinn hafi ekki verið neitt sérstaklega minnistæður í Toscana þá varð þetta minnistætt kvöld.  Maturinn auðvitað frábær og svo vínið:

Dökkrautt og þétt að sjá, samt unglegt.  Angan af lakkrís, plómum og meira að segja vottu af anís!  Þétt í munni, góð sýra og nóg af tannínum á móti, eftirbragðið gott og langt.  Frábært!

{ 0 comments }

Giftur!

07.23.2008

Við Guðrún gengum í það heilaga nú um helgina og ritstjórinn er því hættur að lifa í synd!  Við héldum veislu þar sem við buðum nánustu vinum og ættingjum og Páll Ólafsson frændi minn fór á kostum sem veislustjóri.  Hann þóttist vera eitthvað tvístígandi þegar við báðum hann um að taka þetta að sér, sagðist [...]

Lesa meira →

Sælla að gefa en þiggja

07.11.2008

Ég hef löngum verið aðdáandi ofurvínanna frá Toscana en því miður ekki prófað nógu mörg (verða þau nokkurn tíma nógu mörg?).  Helst er það að Tignanello hafi náð að komast í glasið mitt.  Í ferð minni í Kringluna um daginn rakst ég á Cepparello frá Isole e Olena, ofurtoskani úr hreinu Sangiovese.  Þetta er vín sem mig hefur [...]

Lesa meira →