Posts tagged as:

Chardonnay

Carmen og Sushi

10.25.2008

Í gær var ég þreyttur eftir næturvaktina.  Sá sem var með mér sást í samtals 25 sekúndur á bráðamóttökunni og ég held að það sé met!  Ég var sem sagt einn með bráðamóttökuna (fyrir skurðsviðið) en sem betur fer var rólegt.  Merkilegt hvað það getur verið óskaplega mikið að gera upp í húsi hjá sumum [...]

Lesa meira →

Að velja vín fyrir brúðkaup

05.22.2008

Það getur verið þrautin þyngri að velja vín fyrir brúðkaup! Ég stend nú í þessum sporum og er að leita að heppilegum vínum til að bera á borð fyrir gesti í fyrirhuguðu brúðkaupi okkar Guðrúnar nú í sumar. Ég hef velt þessu nokkuð fyrir mér enda mikilvægt að vel takist til. Það er þó margt [...]

Lesa meira →

Cloudy Bay Chardonnay 2006

02.27.2008

Frísklegt ungt hvítvín með góðum sítrus- og eikarkeim, nokkuð stamt í munni, þokkalega langt og gott eftirbragð. Passaði nokkuð vel með steiktum skötusel. Góð kaup.

Lesa meira →

Sushi og Chile

11.09.2007

Í kvöld fengum við okkur (eins og svo oft áður) sushi frá Ayako’s sushi í Uppsölum. Með því prófuðum við Montes Alpha Casablanca Valley Chardonnay 2005. Vínið er í reynslusölu í vínbúðinni “minni” og ég ákvað að slá til. Þetta er hið ágætasta vín. Nokkuð einfaldur eikar- og sítrusilmur sem skilar sér yfir í munninn [...]

Lesa meira →

Fyrir næstu innkaupaferð

09.08.2007

Það hefur verið fátt um fína drætti í mínum vínkaupum að undanförnu. Guðrún kom reyndar heim með Torres Mas La Plana og Penfolds Bin 407 í gær, sá síðarnefndi kærkominn gamall vínur sem ekki er fáanlegur hér í sænska systeminu. Mig dauðlangar þó að fara að panta mér eitthvað skemmtilegt og hef því verið í [...]

Lesa meira →

Um athuganir síðustu vikna

08.10.2007

Já, þó svo að lítið hafi gerst hér á síðunni sl. 3-4 vikur þá hefur eitt og annað vín verið prófað. Tengdó komu í heimsókn og tóku með sér 2 flöskur af Chateau Cantenac Brown 2001 sem er alveg afskaplega gott vín! Sólberin, piparinn og eikin duga vel til að æra bragðlaukana sem verða ekki [...]

Lesa meira →

Jordan, mmm…!

06.21.2007

Á morgun liggur leiðin til Ítalíu og við ákváðum að taka því rólega í kvöld, keyptum dálítið sushi til að borða sem kvöldsnakk og þá er ómissandi að fá sér hvítvín með. Fór því í systemið (sænska Ríkið) og rakst á Jordan Stellenbosch Chardonnay 2006. Ég hef aldrei smakkað það áður en hef prófað Jordan [...]

Lesa meira →

Fjólublái engillinn og Bordeauxboltinn!

05.20.2007

Við fengum góða gesti um síðustu helgi þegar Hugrún og Hermann komu í heimsókn. Þau tóku með sér ýmislegt góðgæti og ég reyndi því að draga fram eitt og annað lítilræði úr skápnum mínum (sem því miður er mjög lítill, en ég hef augastað á 200-flösku Bosch-kæli). Fyrsta kvöldið var fengum við okkur dálítið sushi [...]

Lesa meira →

Sushi og …?

03.08.2007

Við fengum okkur sushi í gær (dauðlangaði í Dominos pizzu en þær fást ekki hér í Uppsölum) og þá fór ég að velta fyrir mér hvað maður ætti eiginlega að drekka með því. Ég hef ekki oft borðað sushi en er þó orðinn verulega hrifinn af því og það kæmi mér ekki á óvart þó [...]

Lesa meira →

Concha y Toro Amelia Chardonnay 2001

11.19.2006

Fallega gullinn litur, með vott af grænni slikju. Peruangan og ilmur af ristuðu brauði mætir manni í fyrstu. Frekari ávaxtatónar aðskiljast og minntu á þurrkaða banana og græn epli. Einnig var vottur af vanillu og kryddi sem kveiktu hugmyndir um saffran. Vín í gríðarlega góðu jafnvægi, meðalþurrt, vel smurt og áferðarmjúkt með þægilegu eftirbragði. Perur [...]

Lesa meira →