Höfundur: Eiríkur Þann 19. nóvember 2009
Hér eru vínin í sætum 2-5:
2. Numanthia-Termes Toro Termes 2005 (Spánn) – 96 punktar ($27) – “Austere yet alluring, this powerful red is thick and tannic, yet reveals a core of blackberry, mineral, hoisin and graphite that’s dense and pure. Monolithic now, but has depth and balance. Modern, but shows a real sense of place. Best after 2012.”
3. Domaine du Vieux Télégraphe Châteauneuf-du-Pape La Crau 2007 (Frakkland, S-Rhone) – 95 punktar ($70) – “Packed, in a brawny, muscular style atypical for this lush vintage, with a gravelly undertow to the currant paste, braised fig and dark licorice notes. Picks up even more steam on the finish, with grilled mesquite, mineral and garrigue notes and a long, hot stone-filled finish. Best from 2010 through 2030. 17,000 cases made.” – Fastagestur á listanum en því miður ekki fáanlegt á Íslandi eða í Svíþjóð.
4. Kosta Browne Pinot Noir Sonoma County 2007 (Bandaríkin, Kalifornía) – 95 punktar ($52) – “Firm and focused, with a wonderful purity of flavor, offering a complex, focused mix of black cherry, raspberry, spice and anise. Full-bodied and concentrated. Long and persistent on the finish. Drink now through 2014. 3,069 cases made.”
5. Barone Ricasoli Chianti Classico Castello di Brolio 2006 (Ítalía, Toscana) – 96 punktar ($54) – “Shows amazing aromas of blackberry, with hints of vanilla and flowers, along with black licorice and crushed berries. Full-bodied, with wonderfully caressing, ultrafine tannins. Very balanced and long. Best after 2011. 6,170 cases made.” – Fyrri árgangar hafa verið fáanlegir í Svíþjóð og nú er bara að bíða eftir þessum!
Á morgun verður svo tilkynnt um vín ársins og topp-100 listinn birtur!
Höfundur: Eiríkur Þann 18. október 2009
Já, það er skömm frá að segja en ég hreinlega gleymdi að panta mér Bordeaux 2006 í síðustu viku! Valið stóð helst á milli Talbot, Léoville-Barton og Chasse-Spleen en nú verð ég að bíða fram í lok næstu viku til að sjá hvort það sé eitthvað eftir handa mér. Ég var reyndar orðinn pínu þreytt, enda búinn að vera á næturvöktum alla vikuna og var einmitt á leið í vinnuna þegar ég mundi eftir þessu, en svona er þetta nú bara. Sem betur fer var þetta ekki annar 2005-árgangur – þá hefði maður jafnvel tekið frí frá vinnu til að ganga frá pöntuninni.
Ég fór þó í ríkið á föstudaginn og keypti mér Chateau Mont-Redon Chateauneuf-du-Pape 2005. Þetta var ágætisvín, kannski örlítið daufara en ég hafði gert mér vonir um. Líkt og mörg önnur Rónarvín er það að mestu leyti gert úr Grenache (65%), Syrah (15%) og Cinsault (10%), en nokkrar aðrar þrúgur hafa líka slæðst með. Það hefur dálítið blautan eikarkeim, ber og lakkrís í annars dálítið fátæklegri lykt. Í munni nokkuð gott jafnvægi þar sem áðurnefnd lyktar- og bragðelement koma ágætlega fram ásamt smávegis pipar. Sæmilegt eftirbragð. Einkunn: 6,5 – pínulítil vonbrigði með þetta vín þar sem ég borgaði 234 SEK fyrir það.
Ég keypti líka Ný-Sjálenskt rauðvín sem heitir Wild Rock Gravel Pit Red 2008, blanda Merlot og Malbec, og ég held örugglega að þetta sé í fyrsta sinn sem ég smakka slíka blöndu. Þetta er unglegt vín að sjá, ilmur af eik, plómum, myntu og súkkulaði sem skila sér í bragðinu, sem er nokkuð tannískt og skortir aðeins upp á sýru til að vega upp á móti tannínunum. Ágætis hversdagsvín og mun betri kaup en frakkinn sem ég fjallaði um hér að ofan. Einkunn: 6,5 – kostar 99 SEK.