Höfundur: Eiríkur Þann 3. desember 2011
Eitt af vínunum á topp-100 lista ársins er Fonterutoli Chianti Classico 2008. Þetta vín er fáanlegt hér í Svíþjóð fyrir litlar 149 sænskar krónur og ég keypti nokkrar flöskur um daginn. Ég drakk það svo með svínakótilettum að hætti Per Morberg, sem er sjónvarpskokkur hér í Svíþjóð og hefur m.a. unnið sér til frægðar að hafa leikið í myndum um lögreglumanninn Beck (kallinn er nefnilega líka leikari).
Kótiletturnar voru ágætar en rauðvínið var skrambi gott. Góður berjakeimur með smá tóbaki og lakkrís, góð fylling og langt eftirbragð. Einkunn 8,5 – Góð Kaup.
Fonterutoli, svínakótilettur að hætti Per Morberg
Höfundur: Eiríkur Þann 25. maí 2011
Nú er ég í stuttri útlegð í Falun (heim á morgun) og til að stytta mér stundir er ég búinn að vera að vinna í árgangstöflu fyrir Vínsíðuna, vonandi get ég sett hana inn á síðuna fljótlega (helst á PDF-sniði svo hægt sé að prenta hana út). Ég leit við í Vínbúðinni hérna og tók með eina hálfflösku af Barone Ricasoli Chianti Classico Rocca Guicciarda 2006. Þetta er fyrirtaks Chianti Classco, fallega rautt með góða dýpt í litnum. Í nefið koma strax ber og plómur með smá kryddi. Góð fylling, talsvert að tannínum sem þó eru nokkuð mjúk. Langt og gott eftirbragð. Einkunn: 8,5 – Góð Kaup! Hálfflaskan kostar 79 SEK, heilflaska 139 SEK sem er fínt verð fyrir gott vín.