Posts tagged as:

Chile

Gamall kunningi

Höfundur: Eiríkur Þann 10. febrúar 2011

Casillero del Diablo Merlot prófaði ég fyrst fyrir rúmum 10 árum síðan, þegar ég smakkaði 1997-árganginn.  Það var slíkt fyrirtaks vín að ég féll strax fyrir því og hef (að ég held) smakkað hvern einasta árgang síðan þá.

Í kvöld bauð tengdó upp á 2009-árganginn og hann stendur vel fyrir sínu.  Unglegt að sjá, ekki mikil dýpt en góður ilmur af berjum, hvítum pipar og vott af leðri laumast upp úr glasinu.  Vínið er dálítið tannískt, skortir kannski aðeins upp á sýruna en þó sæmilegasta jafnvægi.  Eftirbragðið í styttra lagi.  Fyrirtaksvín til að njóta á góðu kvöldi.  Einkunn: 6,5 – Góð Kaup!

{ 0 comments }

Engillinn og steikin

Höfundur: Eiríkur Þann 24. júlí 2010

Jæja, þá er síðasta sumarfrísvikan á enda (í bili, fæ eina viku til viðbótar í ágúst).  Við ætluðum að vera í Gautaborg þessa viku en þar sem bíllinn bilaði varð lítið úr því.  Við skelltum okkur því til Stokkhólms í staðinn og fórum í Gröna Lund, sem er tívolíið í Stokkhólmi.  Smáfólkið var nokkuð ánægt með þá ferð, þó það hafi verið pínulítil vonbrigði að fá ekki að gista í tjaldi (reyndar er Gothia Cup í Gautaborg þessa viku og því ekki víst að það hafi verið mikið pláss eftir á tjaldstæðum í Gautaborg).

Við fullorðna fólkið vildum líka fá smá sárabót og ákváðum því að grilla og taka gott vín út úr kælinum.  Útkoman varð grilluð Entrecote og með því drukkum við Montes Purple Angel 2004.  Þetta er hreint út sagt frábært vín, aðeins farið að þroskast, með hnausþykkri angan af kirsuberjum og dökku súkkulaði, ásamt ögn af amerískri eik og pipar.  Í munninn fær maður nóg af mjúkum tannínum, sama súkkulaði- og kirsuberjakeim, mikil fylling og laaaangt eftirbragð.  Einkunn: 9,0 – Góð Kaup! Keizarinn, sem var í mat ásamt fjölskyldu sinni, kom með Chateau de Caraguiles 2005 (vona að ég stafi þetta rétt), sem er frá Corbier í Frakklandi.  Það stóð sig furðu vel á eftir englinum, mjúkur berjakeimur og þægileg tannín ásamt þokkalegu eftirbragði.  Einkunn: 7,5.

Engillinn stóð vel undir væntingum og ég bíð spenntur eftir 2007-árgangnum sem bíður í kælinum mínum…

{ 0 comments }

Villibráðarveisla veðurfræðingsins

07.16.2010

Um síðustu helgi vorum við boðin í villibráðarveislu í saumaklúbbnum hennar Guðrúnar.  Óli veðurfræðingur sá um kjötið – grillað hreindýr og gæs – og ég verð að segja að betri villibráð hef ég varla fengið!  Kjötið var svo meyrt að maður hefði nánast getað borðað það með skeið!  Kristó var maðurinn á bak við skötuselinn [...]

Lesa meira →

Nokkrar góðar komnar í hús

05.23.2010

Vínkælirinn minn hefur tútnað dálítið út síðustu daga.  Ég fékk mínar þrjár flöskur af Dow’s 2007 árgangspúrtvíni og stefni að því að prófa eina flöskuna eftir 10 ár eða svo!  Þetta er besta púrtvín sem hefur komið frá Dow’s og það er ekki á hverju ári að púrtvíni fái fullt hús stiga hjá Wine Spectator.  [...]

Lesa meira →

Þetta ættuð þið ekki að drekka!

09.18.2009

Um daginn villtist Viña Maipo Cabernet Sauvignon inn til okkar (sænskur nágranni kom með það).  Í gær ákvað ég að smakka og í stuttu máli sagt þá var víninu hellt niður eftir tvo sopa!  Súr óþverri, svona eins og gamall krækiberjasafi.  Lesendum er hér með bent á að forðast þennan óþverra! Í kvöld ætla ég [...]

Lesa meira →

Misjöfn uppskera á suðurhvelinu

08.22.2009

Ég er alltaf spenntur að fá fréttir af nýrri vínuppskeru, og eins og venjulega koma fyrstu fréttirnar af suðurhveli jarðar: Argentína – Sumarið var þurrt og heitt, jafnvel of heitt fyrir grænu þrúgurnar en rauðvínin ættu að verða nokkuð góð. Ástralía – Þrátt fyrir mikla hitabylgju í ársbyrjun eru vínbændur í Ástralíu nokkuð bjartsýnir á [...]

Lesa meira →

Sumarhátíðin

06.28.2009

Í fyrradag fögnuðum við því að vera komin í sumarfrí.  Lambalærið var sett á grillið og á meðan það var að steikjast opnuðum við Montes Sauvignon Blanc 2007 og gæddum við okkur á grilluðum humri.  Með lambinu drukkum við Les Tourelles de Longueville 2005.  Þetta er “litla” vínið frá Chateau Pichon de Longueville í Pauillac, [...]

Lesa meira →

Nautnakvöld

05.23.2009

Í gær bað frúin mig um extra góðan kvöldmat og ég ákvað að skella humri á grillið. Ég hef prófað ýmsar aðferðir við að elda humar, en alltaf finnst mér best aðferðin sem ég lærði á Höfn í Hornafirði fyrir 10 árum. Humarinn er klofinn með góðum hníf alveg niður að kviðnum og humarinn síðan [...]

Lesa meira →

Casa Lapostolle

04.19.2009

Í gær grillaði ég maískólfa og brasilíska nautalund, meðlætið kartöflur, bernaisesósa og salat. Með þessu drukkum við Casa Lapostolle Cuvée Alexandre Pinot Noir 2005.  Vínið er frá Casablanca-héraði í Chile og framleiðandinn Casa Lapostolle skaust nýlega upp á stjörnuhimin vínheimsins þegar Casa Lapostolle Clos Apalta 2005 var útnefnt sem vín ársins 2008 hjá Wine Spectator. [...]

Lesa meira →

Kvöldið góða

03.28.2009

Í gær buðum við Evu (deildarstjóranum hennar Guðrúnar) og manninum hennar í mat.  Líkt og venja er þegar við bjóðum svíum í mat (a.m.k. þegar þeir koma í fyrsta skipti) þá buðum við upp á íslenskt lambakjöt.  Á undan bauð ég upp á s.k. “minisnäckor” (litlir smjördeigssnúðar með kalkúnakjötsfyllingu) og með því drukkum við Montes [...]

Lesa meira →