Posts tagged as:

Chile

Tveir góðir

01.17.2009

Í gær kíkti Keizarinn inn að vanda og við enduðum á því að opna tvær flöskur.  Með matnum (grillaður kjúklingur) drukkum við Ramón Bilbao Rioja Crianza 2005. Næst-bestu kaupin í vínbúðinni minni!  Á eftir opnuðum við svo Ventisquero Queullat Carmeniere Maipo Valley Gran Reserva 2005. Það eru einmitt bestu kaupin í vínbúðinni minni!  Tvö ódýr [...]

Lesa meira →

Kreppuvín með kreppuboltanum

01.14.2009

“It was the best of times, it was the worst of times…” sagði Dickens í A tale of two cities. Já, það eru víst sannkallaðir krepputímar núna og því ekki á hverjum degi að maður opnar kælinn til að fá sér góðan vínsopa.  Á þessum tímum grípur maður því til kreppuvína.  Eitt slíkt er Concha [...]

Lesa meira →

Mmmm… “M”

01.10.2009

Í gær langaði okkur í góðan mat og gott vín.  Við buðum því Keizaranum og fjölskyldu hans í mat – Roastbeef með þreföldum piparhjúp og timjan ásamt rösti-kartöflum og skógarsveppasósu.  Algjört lostæti og með því þurfti auðvitað gott vín!  Fyrir valinu varð Montes Alpha “M” 2004. Vínið er frá Colchagua í Chile og er blanda [...]

Lesa meira →

Lesendum er bent á að forðast…

01.05.2009

Viña Maipo Carmenere 2007.  Keizarinn prófaði þennan ófögnuð – hálf súrt, hratkennt, nánst ekkert eftirbragð. Hræðilegt vín að mati Keizarans og ber að forðast með öllum tiltækum ráðum!

Lesa meira →

Vín ársins 2008

01.02.2009

Carmenére var talin útdauð í Chile eftir að rótarlúsin phylloxera barst þangað um 1880.  Árið 1993 fannst Carmenére þó aftur í Chile og það er enn sem komið er eina landið þar sem þrúgan er ræktuð í einhverju magni.  Á síðustu árum hafa komið fram mörg vín byggð á Carmenére, sum hver ansi mögnuð.  Þar [...]

Lesa meira →

Topp 100 hjá WS

11.19.2008

Ég var að kíkja á topp-100 listann hjá Wine Spectator.  Sé að Chateau Clerc Milon 2005 er í 11. sæti og vinur minn Don Melchor 2005 frá Concha y Toro er í 12. sæti.  Síðan fer lítið fyrir kunnuglegum andlitum fyrr en kemur að 47. sæti þar sem Beringer Chardonnay Private Reserve 2006 hafnaði, en [...]

Lesa meira →

Athuganir síðustu viku

11.02.2008

Sænsk-Íslenski vínklúbburinn hittist heima hjá mér í vikunni og þemað var að allir komu með eitt vín sem þeir vildu kynna fyrir klúbbnum: Keizarinn kom með Domaine Dominique Guyon Hautes Cotes de Nuits Les Dames de Vergy 2007.  Ljóst og kornungt Búrgúndarvín með krydduðum sólberja- og sítrónkeim ásamt útihúsakeim.  Tannínsnautt með frekar mikilli sýru, dálitlum [...]

Lesa meira →

Carmen og Sushi

10.25.2008

Í gær var ég þreyttur eftir næturvaktina.  Sá sem var með mér sást í samtals 25 sekúndur á bráðamóttökunni og ég held að það sé met!  Ég var sem sagt einn með bráðamóttökuna (fyrir skurðsviðið) en sem betur fer var rólegt.  Merkilegt hvað það getur verið óskaplega mikið að gera upp í húsi hjá sumum [...]

Lesa meira →

Montes Purple Angel 2005

06.07.2008

Í vikunni pantaði ég rúmlega 10% af öllu því sem til er af fjólublá englinum hér í Svíþjóð (þó ekki allt fyrir sjálfan mig).  Í dag var alveg einstaklega gott veður, sól og tæplega 30 stiga hiti og því alveg tilvalið að grilla nautalund og opna góða rauðvínsflösku.  Ég hreinlega stóðst ekki mátið og opnaði [...]

Lesa meira →

Don Melchor Cabernet Sauvignon 1997

06.02.2008

Ég ákvað að það væri kominn tími á þessa flösku (þó hún hafi ekki verið nema nokkrar vikur í vínskápnum) nú um helgina.  Guðrún búin að fá stöðuhækkun, frábært veður (sól og 25 stig), grillað lambakjöt og góður félagsskapur – auðvitað kallar það á gott vín. Fallega dökkt vín með góða dýpt, orðið nokkuð þroskað.  [...]

Lesa meira →