Posts tagged as:

Colchagua

Mmmm… “M”

Höfundur: Eiríkur Þann 10. janúar 2009

Í gær langaði okkur í góðan mat og gott vín.  Við buðum því Keizaranum og fjölskyldu hans í mat – Roastbeef með þreföldum piparhjúp og timjan ásamt rösti-kartöflum og skógarsveppasósu.  Algjört lostæti og með því þurfti auðvitað gott vín!  Fyrir valinu varð Montes Alpha “M” 2004. Vínið er frá Colchagua í Chile og er blanda Cabernet Sauvignon (80 %), Merlot (10 %), Cabernet Franc (5%) og Petit Verdot (5 %).  Mjög dökkt vín með mikla dýpt.  Enn sem komið er nokkuð lokuð lykt – leður og eik, smá ávöxtur en ekki mikið meira.  Í munni ákaflega mjúkt með mjög góða fyllingu, mikil tannín en samt með silkiáferð – frábært jafnvægi.  Springur út í munninum með ögn af eik og dökku súkkulaði.  Langt og gott eftirbragð.  Frábært vín sem hægt er að njóta núna eða geyma í nokkur ár til viðbótar (spjarar sig eflaust ágætlega í 10-15 ár!).

Montes Alpha M

{ 0 comments }

Vín ársins 2008

Höfundur: Eiríkur Þann 2. janúar 2009

Carmenére var talin útdauð í Chile eftir að rótarlúsin phylloxera barst þangað um 1880.  Árið 1993 fannst Carmenére þó aftur í Chile og það er enn sem komið er eina landið þar sem þrúgan er ræktuð í einhverju magni.  Á síðustu árum hafa komið fram mörg vín byggð á Carmenére, sum hver ansi mögnuð.  Þar á meðal er fjólublái engillinn frá Montes.  Þetta er nýtt vín sem strax með fyrsta árgangi skipaði sér í hóp bestu vína Suður-Ameríku.  Vínið er blanda Carmenére (92%) og Petit Verdot (8%) úr Colchagua-héraði og fær að þroskast 18 mánuði í nýjum tunnum úr franskri og amerískri eik.  Alveg hreint himneskt vín!

Vín ársins 2008 á Vínsíðunni er Montes Purple Angel 2005. Það er, líkt og nafnið gefur til kynna, nánast fjólublátt á lit, mjög dökkt og þétt að sjá.  Yndisleg angan af súkkulaði og kúbönskum vindlum.  Í munni gríðarlega tannískt en með góða sýru á móti, kryddað, gríðarlega þétt og elegant vín með dásamlegu eftirbragði sem endist allt kvöldið.  Geymist vel í 10-20 ár í kælinum!

label_purpleangel

{ 0 comments }

Montes Purple Angel 2005

06.07.2008

Í vikunni pantaði ég rúmlega 10% af öllu því sem til er af fjólublá englinum hér í Svíþjóð (þó ekki allt fyrir sjálfan mig).  Í dag var alveg einstaklega gott veður, sól og tæplega 30 stiga hiti og því alveg tilvalið að grilla nautalund og opna góða rauðvínsflösku.  Ég hreinlega stóðst ekki mátið og opnaði [...]

Lesa meira →

Fjólublái engillinn og Bordeauxboltinn!

05.20.2007

Við fengum góða gesti um síðustu helgi þegar Hugrún og Hermann komu í heimsókn. Þau tóku með sér ýmislegt góðgæti og ég reyndi því að draga fram eitt og annað lítilræði úr skápnum mínum (sem því miður er mjög lítill, en ég hef augastað á 200-flösku Bosch-kæli). Fyrsta kvöldið var fengum við okkur dálítið sushi [...]

Lesa meira →