Posts tagged as:

Columbia-Crest

Vín ársins 2009

Höfundur: Eiríkur Þann 20. nóvember 2009

Þá er það ljóst – vín ársins 2009 hjá tímaritinu Wine Spectator er Columbia Crest Columbia Valley Cabernet Sauvignon Reserve 2005!  Þetta er tiltölulega ódýrt vín frá “venjulegum” bandarískum framleiðanda, sem hingað til hefur verið þekktur fyrir góð vín á góðu verði.  Hann hefur ekki verið að gera neina “blockbusters” hingað til en kannski verður breyting á því eftir þetta.  Reyndar hafa undanfarin ár verið einstaklega góð í Washington, sem sést á því að  nokkur vín þaðan eru á topp-100 listanum í ár, og öll eru þau verðlögð í lægri kantinum.

Því miður er vín ársins hvorki fáanlegt á Íslandi né í Svíþjóð, en hins vegar eru önnur vín frá Columbia Crest fáanleg og þau svíkja heldur engan.

Umsögn ritstjóra Wine Spectator hljómar á þessa leið:

Ripe in flavor, with a vivid array of black currant, blackberry, violet, black tea and black pepper aromas and flavors that zoom through to a long, expressive finish. Shows subtlety in the layers of complex flavor against a refined structure. Tannins are present but nicely contained. Best from 2010 through 2015. Tasted twice, with consistent notes. 6,000 cases made.

crest2005

{ 0 comments }

Columbia Crest Grand Estates Cabernet Sauvignon 2000

Höfundur: Eiríkur Þann 10. ágúst 2006

Mikið af skógarberjum og tóbaki í nefinu. Pipar, krydd, tóbak, paprika, tannín og smá ristað brauð voru mest áberandi í bragðinu. Eftirbragðið var þurrt og tannínríkt með krydd í bakgrunni. Þó að þetta vín sé 2000 árgangur og mjög gott núna kæmi mér ekki á óvart þó vínið verði jafnvel betra eftir 4-5 ár.

Einkunn. 8,5

{ 0 comments }

Columbia Crest Cabernet Sauvignon Estate 1996

01.02.2001

Vín mánaðarins í janúar 2001 er Columbia Valley Cabernet Sauvignon Estate 1996 frá Columbia Crest í Washington-fylki í Bandaríkjunum. Það hefur nú verið í reynslusölu í verslunum ÁTVR og kemst vonandi í fasta sölu, því að þar á það heima. Vínið er dökkt og fallegt á að líta, með góða dýpt en nokkuð ungt. Áberandi [...]

Lesa meira →

Columbia Crest Chardonnay Estate 1996

01.01.2001

Strágult og ágætlega þroskað vín. Lyktar af eik og rauðum eplum og dálítið blátt áfram. Í munni eik, dálítil sýra, jafnvægið gott og sömuleiðis eftirbragðið. Tímaritið WineSpectator gaf þessum 1997 árgangnum einkunnina 91-Spectator Selection og þessa umsögn: “Tightly wound, with jammy currant and berry flavors that are graced by all kinds of spicy, chocolaty, toasty [...]

Lesa meira →

Columbia Crest Cabernet Sauvignon 1996

01.01.2001

Sólberin yfirgnæfa flest annað í þessu víni, en smá krydd, einkum pipar, gægist fram, einkum við þyrlun. Eftirbragðið er gott og í meðallagi langt, kannski aðeins gróft en á eflaust eftir að batna með tímanum. Þetta vín á eftir að batna enn frekar á næstu 2-5 árum. Alls voru framleiddir 122,000 kassar af þessu víni, [...]

Lesa meira →