Posts tagged as:

Concha y Toro

Kreppuvín með kreppuboltanum

Höfundur: Eiríkur Þann 14. janúar 2009

“It was the best of times, it was the worst of times…” sagði Dickens í A tale of two cities. Já, það eru víst sannkallaðir krepputímar núna og því ekki á hverjum degi að maður opnar kælinn til að fá sér góðan vínsopa.  Á þessum tímum grípur maður því til kreppuvína.  Eitt slíkt er Concha y Toro Carmenére Cabernet Sauvignon Reserve.  Það tilheyrir engum árgangi heldur er það aðeins venjulegt kassavín.  Þó ekki verra en svo að það er “kassavínið mitt” um þessar mundir.  Það er þokkalega dökkt líkt og önnur vín gerð úr þessum þrúgum.  Lyktin kannski ekki mjög aðlaðandi – pínulítið súr ávaxtalykt með vott av vanillu.  Í munni ekki mjög tannískt og sýran kannski full mikil og því pínulítið ójafnvægi en þokkalegasta eftirbragð gerir að vínið er sæmilega drekkandi svona í miðri viku eða þegar maður tímir ekki að opna neitt annað betra.  Það er líka tilvalið að fá sér eitt glas með boltanum og hæfir vel með leiknum sem ég er að fylgjast með núna – Southend gegn Chelsea.  Southend náði nokkuð óvænt jafntefli á útivelli í fyrri leiknum og verðlaunast með leik á heimavelli gegn stjörnum prýddu liði Chelski.  Það leynir sér svo sem ekki þegar maður horfir á leikinn að gestirnir hafa nokkuð hærra vikukaup og fara betur með boltann, en samt er það nú Southend sem er yfir 1-0, skoruðu úr eina færi sínu hingað til.  Áfram Southend!

{ 0 comments }

Topp 100 hjá WS

Höfundur: Eiríkur Þann 19. nóvember 2008

Ég var að kíkja á topp-100 listann hjá Wine Spectator.  Sé að Chateau Clerc Milon 2005 er í 11. sæti og vinur minn Don Melchor 2005 frá Concha y Toro er í 12. sæti.  Síðan fer lítið fyrir kunnuglegum andlitum fyrr en kemur að 47. sæti þar sem Beringer Chardonnay Private Reserve 2006 hafnaði, en eftir það sé ég ekkert sem ég kannast við.  Ég á reyndar eftir að athuga hvort eitthvað af þessum vínum fáist hérna – geri það við tækifæri.

Ég komst líka að því að ástæða þess að hann Markús vinur minn Molitor er ekki með á listanum er að hann tilheyrir umsögnum ársins 2007, en þá þykir mér þeim mun merkilegra að hann komist ekki á blað á topp-100 fyrir það ár – fær 97 punkta og kostar ekki nema 40 dollara.  Kannski gerir útslagið að það voru bara framleiddir 375 kassar (og ég keypti einn!).

{ 0 comments }

Vínklúbburinn

05.14.2008

Á meðan á Íslandsheimsókninni stóð tókst mér að komast á fyrsta vínklúbbsfundinn í heil 6 ár! Óhætt að segja að það var löngu kominn tími á fund! Við prófuðum nokkur góð vín, m.a. Chateau Pibran 2004 og Almaviva 2003, sem er alveg einstaklega gott vín og kom verulega á óvart. Þéttur og öflugur bolti og [...]

Lesa meira →

Á leið í víking…

03.18.2007

Það hefur verið heldur rólegt hjá ritstjóra Vínsíðunnar síðustu viku og lítið verið smakkað. Opnaði þó Concha y Toro Casillero del Diablo Cabernet Sauvignon 2005 um helgina, einfalt og þægilegt vín fyrir venjulegt laugardagskvöld, passaði ágætlega með grillmatnum – já, ég er byrjaður að grilla! Ég hélt að vorið væri komið hér í Uppsölum, en [...]

Lesa meira →

Concha y Toro Cabernet Sauvignon Don Melchor 2004

01.06.2007

Ég ætlaði að ná mér í 2003 árganginn þar sem hann var svo ofarlega á lista WS yfir vín ársins 2006, en þegar ég sótti pöntunina mína fékk ég afhent 2004 árganginn. Ég ákvað þó að slá til og varð síður en svo fyrir vonbrigðum! Mjög dökkt, næstum því þykkt að sjá, þó unglegt. Örlítill [...]

Lesa meira →

Concha y Toro Amelia Chardonnay 2001

11.19.2006

Fallega gullinn litur, með vott af grænni slikju. Peruangan og ilmur af ristuðu brauði mætir manni í fyrstu. Frekari ávaxtatónar aðskiljast og minntu á þurrkaða banana og græn epli. Einnig var vottur af vanillu og kryddi sem kveiktu hugmyndir um saffran. Vín í gríðarlega góðu jafnvægi, meðalþurrt, vel smurt og áferðarmjúkt með þægilegu eftirbragði. Perur [...]

Lesa meira →

Concha y Toro Casillero del Diablo Cabernet Sauvignon 2001

06.18.2003

Fallega rautt, ekki ýkja mikil dýpt, ungt. Eik, lakkrís, svartur pipar, leður, sólber í þægilegum en frekar einföldum ilm. Hæfileg tannín, sýra yfir meðallagi, sæmileg fylling en frekar stutt eftirbragð. Þægilegt hversdagsvín sem ekki er ætlað til geymslu.

Lesa meira →

Concha y Toro Casillero del Diablo Cabernet Sauvignon 1999

05.02.2001

SmMeðaldökkt, lítil dýpt, byrjandi þroski. Eik, aðalbláber, vanilla, lakkrís og anís. Virðist vera vín sem þarfnast frekari geymslu. Eik og tannín áberandi í munni, tóbak einnig til staðar. Skortir ferskleika en hefur skrokk. Einkunn: 6,0

Lesa meira →

Concha y Toro Central Valley Sunrise Cabernet Sauvignon 1998

01.01.2001

Þokkalegt vín með léttu berjabragði, frekar einfalt, stutt eftirbragð. Þorri Hringsson, vínkynnir Gestgjafans, gefur þessum árgangi einkunnina 3 glös (af 5) og þessa umsögn: “Þessi Cabernet Sauvignon frá Chile hefur sæmilega þéttan fjólurauðan lit og einfaldan og jafnframt nokkuð lokaðan ilm. Þar má greina sólbet, tóbak og eftir nokkra stund í glasinu, dæmigerða lykt af [...]

Lesa meira →

Concha y Toro Casillero Del Diablo Merlot 1998

01.01.2001

Vín ársins 2000 á Íslandi er Concha y Toro Casillero Del Diablo Merlot 1998 frá Chile. Þar er á ferðinni frábært vín sem hlaut frábærar viðtökur hjá undirrituðum og öllum meðlimum Vínklúbbsins. Umsögn Vínklúbbsins frá 23. mars 2000 er svohljóðandi: “Blóðrautt! Lítil dýpt en dökkt, ungt en massíft að sjá. Eik, sólber, blýantur, leður, plómur, [...]

Lesa meira →