Höfundur: Eiríkur Þann 27. febrúar 2010
Í gær eldaði ég lambalæri, kryddað með hvítlauk og rósmarín, og bar fram með ofnsteiktu rótargrænmeti. Uppskriftina er að finna í Gestgjafanum, nánar tiltekið í blaðinu þar sem er að finna bestu uppskriftir ársins 2009. Með þessu drukkum við Les Tourelles de Longueville Pauillac 2005. Þetta er “litla” vínið frá Chateau de Longueville en samt er þetta í raun ekkert lítið vín. Árið 2005 var auðvitað ákaflega gott í Bordeaux og það skiptir nánast engu máli hvaða vín maður velur – öll 2005-vín frá Bordeaux eru örugg kaup. Þetta vín keypti ég í Fríhöfninni í Keflavík og borgaði að mig minnir rúmar 4000 krónur fyrir og ég vil kalla það góð kaup. Vínið er unglegt að sjá en með góða dýpt. Í nefið fær maður fjólur, plómur, leður og vott af hesthúsi, en er ekki alveg búið að opna sig, þrátt fyrir að hafa verið umhellt klukkustund áður en það var drukkið. Í munni hefur vínið góða fyllingu, nóg af sýru og tannínum, en samt er það mjúkt og með langt og gott eftirbragð. Vínið þarf a.m.k. 1-2 ár í viðbót áður en það blómstrar út, en mun örugglega njóta sín vel næstu 7-10 árin. Einkunn: 8,5 – Góð Kaup!
Í eftirrétt gerði ég þrílitan súkkulaðibúðing. Með því drukkum við Ruppertsberger Linsenbusch Riesling Eiswein 2008. Fallegt, gullið vín með angan af apríkósum og sítrusávöxtum. Í munni sætt og þétt með góðu eftirbragði.

Höfundur: Eiríkur Þann 2. mars 2009
Síðastliðið laugardagskvöld var “opnaðu flöskuna”-kvöldið – tilefni handa þeim sem hafa beðið eftir rétta tækifærinu til að opna flöskuna góðu sem legið hefur í kælinum, en aldrei verið opnuð þar sem tilefnið hefur látið á sér standa. Ég hef átt eina góða – Tenuta dell’Ornellaia Bolgheri Superiore Ornellaia 2002 – sem ég fékk fyrir nokkru síðan og lengi langað. Ég ákvað því að halda slíkt kvöld og bauð Keizaranum í hreindýrasteik. Hann tók með sér Rosemount Traditional 2005.
Hreindýrið var með þreföldum piparhjúp og timjan, meðlætið innbakað rótarávextir og maltsósa. Þetta tókst auðvitað frábærlega vel upp og Ornellaian smellpassaði með þessu, og Rosemountinn var líka góður. Á eftir fengum við okkur eplaköku á hvolfi og með henni drukkum við Lenz Moser Trockenbeerenauslese 2006 frá Austurríki.
Ornellaian var mögnuð – dökkt og fallegt í Riedelglösunum, mikil dýpt og kominn smá þroski í vínið. Upp úr glasinu svifu plómur, fjólur og pipar ásamt ögn af ristuðum hnetum. Gott jafnvægi, mikil fylling og langt, langt eftirbragð. Frábært vín!
Rosemount Traditional var góð – dökkt með byrjandi þroska, góð dýpt. Berjakeimur ásamt lakkrís og amerískri eik. Gott jafnvægi, talsverð tannín, gott eftirbragð. Mjög gott vín fyrir tiltölulega lítinn pening.
Lenz Moser – sætt vín frá Austurríki, gullið og fallegt í glasi. Hunang, apríkósur og smá ananas sem skilar sér meira í bragðinu sem er frísklegt og gott. Gott eftirbragð. Góð kaup.
Mjög gott kvöld með frábærum mat og frábærum vínum.