Posts tagged as:

Dr. Loosen

Vín ársins!

by Eiríkur on 10. janúar 2010

Jæja, þá er komið að því að útnefna vín ársins 2009.  Nokkuð mörg vín komu til álita að þessu sinni, flest þeirra í ódýrari kantinum, enda árið 2009 sannkallað kreppuár hjá neytendum en góðæri hjá mörgum framleiðendum sem hingað til hafa einkum framleitt vín í ódýrari kantinum.

Amalaya de Colomé 2007 kemur frá Calchaqui-dalnum í Argetínu, blanda Malbec, Cabernet Sauvignon, Syrah og Tannat.  Dökkrautt og fallegt vín, áberandi plómur, lakkrís og kúrennur.  Ódýrt og gott vín. Einkunn: 8,5 – Frábær kaup! (Verð 1990 ISK / 82 SEK)

Antinori Tignanello 2006 er frábær ofur-Toskani, og 2006-árgangurinn einn sá allra besti í sögu Tignanello.  Dökkrautt með mikla dýpt, þéttur ilmur af sólberjum og kaffi ásamt örlitlum ávaxtakeim.  Mikil og góð fylling, mikil en þó mjúk tannín og dásamlega langt eftirbragð.  Einkunn: 9,0 – Góð Kaup! (Verð 6699 ISK (Fríhöfn) / 499 SEK)

Dr. Loosen Riesling QbA Mosel-Saar-Ruwer Dr. L 2008 er létt og skemmtilegt riesling-vín, hálfsætt með keim af mangó og apríkósum.  Ódýrt og skemmtilegt vín.  Einkunn: 8,5 – Frábær Kaup! (Verð – ISK / 79 SEK)

Bodega Catena Zapata Malbec Mendoza 2007 er pottþétt vín frá Argentínu með angan af kaffi, dökku súkkulaði og hindberjum, ásamt vott af plómum.  Góð fylling og eftirbragð.  Einkunn: 8,5 – Frábær Kaup! (Verð 2697 ISK / 119 SEK)

Vín ársins 2009 er hins vegar Peter Lehmann Shiraz Barossa 2006. Þetta er frábært vín með plómum, sólberjum og kirsuberjum, ásamt vott af súkkulaði og tóbaki.  Góð fylling, mikil tannín til staðar en í góðu jafnvægi við sýruna.  Langt og gott eftirbragð.  Einkunn: 9,0 – Frábær Kaup! (Verð 2698 ISK / 119 SEK)

Peter Lehmann Shiraz 2006

{ 0 comments }

Bestu kaupin í Ríkinu ?

by Eiríkur on 13. mars 2009

Eftir að hafa skoðað vínlistann hjá ÁTVR (sjá síðasta pistil) dundaði ég mér líka við að reikna út einhvers konar Q/P-hlutfall, þ.e. gæði/verð sem má útleggja svona: Hvað kostar hver punktur?  Það er ágætis samanburðaraðferð en það gefur auga leið að dýrustu (og bestu?) vínin koma alltaf verst út úr slíkum aðferðum og því þyrfti líklega að nota mismunandi reiknireglur í ólíkum verðflokkum eða beita ýmsum frádráttarreglum, en þannig mætti líka lengi halda áfram.

Samkvæmt mínum einföldu reiknikúnstum kemur hér topp-10 listinn yfir bestu kaupin í Ríkinu um þessar mundir:

  1. Dr. Loosen Riesling Dr. L 2007
  2. Planeta La Segreta Bianco 2006
  3. Montes Sauvignon Blanc 2007
  4. Alamos Cabernet Sauvignon Mendoza 2006
  5. Alamos Malbec Mendoza 2007
  6. Norton Cabernet Sauvignon Reserva 2006
  7. Norton Malbec Reserva Mendoz 2006
  8. Feudo Arancio Chardonnay Sicilia 2007
  9. d’Arenberg The Custodian Grenache 2006
  10. d’Arenberg The Dry Dam Riesling 2007

Það kemur sjálfsagt ekkert á óvart að þrjú efstu vínin skuli vera hvítvín, því þau eru jú almennt ódýrari en rauðvínin. Það er kannski áhugaverðara að þarna séu 4 argentínsk rauðvín og 2 ítölsk hvítvín, því við erum jú að tala um vín sem fengu a.m.k. 88 punkta.  Þar að auki fengu bæði vínin frá Norton 90 punkta.

Ef einhver veit um góða aðferð við útreikning gæði/verð-hlutfalls þá lýsi ég hér með eftir tillögum!

{ 0 comments }

Jólavínin

12.31.2008

Í ár brugðum við út af venjunni með jólamatinn okkar.  Við vorum orðin þreytt á þungum og reyktum jólamatnum og vildum prófa eitthvað annað.  Niðurstaðan varð kalkúni sem lagður var í kryddaðan saltpækil og tókst alveg frábærlega vel.  Forrétturinn var risahörpuskel með balsamvinaigrette að hætti Gutta.  Mamma og pabbi hafa verið hjá okkur yfir jólin [...]

Lesa meira →