Posts tagged as:

Fiskur

Dinstlgut Loibner Schutt Gruner Veltliner 2004

08.10.2006

Ferskt, ávaxtaríkt vín með perum og grænum pipar í nefinu. Krydd, grænn pipar, sítróna og greipaldin bragð. Eftirbragðið er langt og ferskt með smá keim af alkóhóli. Gott austurískt vín þarf ekki að vera dýrt og Gruner Veltliner vínþrúgan passar mjög vel með ansi mörgum fisk réttum. Einkunn. 8,0

Lesa meira →

Pasqua Piuatti Collio Pinot Blanco 1998

02.13.2006

Fölgult og vatnsleitt að sjá. Hnetur, greipaldin og eik nokkuð sterk í nefi en einnig vottar fyrir hunangi og jafnvel smá súrheyi. Í munninn kemur fram gott hunangsbragð, dálítið eikað vín og nokkuð feitt í munni. Gott jafnvægi. Gæti passað vel við feitan og jafnvel reyktan fisk. Einkunn: 7,0

Lesa meira →

Domaine Laroche Grand Cru Les Blanchots 1999

02.07.2006

Mjög ljóst, góð dýpt, fallegt vín.  Ananas, vanilla, pipar, sítrus, blýantur, ávaxtahlaup, einföld lykt.  Sæmileg fylling, gott jafnvægi, gott eftirbragð sem heldur sér vel. Laxavín! Einkunn: 7,0

Lesa meira →

Rosemount Estate Semillon 1998

06.01.2001

Vín mánaðarins í júní 2000 er Semillon árg. 1998 úr Diamond-línunni frá Rosemount Estate í Ástralíu. Semillon-þrúgan hefur fram til þessa einkum verið notuð til íblöndunar við aðrar ljósar þrúgur og notuð jafnt í þurr hvítvín sem í sæt eftirréttavín. Ásamt Chardonnay er hún ein helsta ljósa þrúgan í Hunter Valley, sem er í Nýja [...]

Lesa meira →

Wolf Blass President’s Selection Chardonnay 1999

02.07.2001

Ljósgult, miðlungsdýpt, fallegur litur. Í lyktinni blautir ullarvettlingar (eða geitaostur!), smjör, sítrus, eik, pipar, jafnvel púðurkeimur. Þegar í munninn er komið kemur fram sítrónubörkur og eik, sæmilegt jafnvægi en kröftugt efirbragð. Myndi ganga vel með fiski og pasta.

Lesa meira →

Beringer Napa Valley Sauvignon Blanc 1998

01.01.2001

Ljóst/fölgult, nokkur dýpt. Í nefið kemur fyrst smjör og perubrjóstsykur, en síðan læðast fram nýslegið gras, sítróna, múskat, vægur útihúsakeimur við þyrlun, lax??? Vínið veitir góða fyllingu í munni, dálítið kryddað en milt, eplakeimur, gott eftirbragð en örlar aðeins á spíra í lokin. Frábært sumarvín, eitt og sér eða með salati og myndi einnig ganga [...]

Lesa meira →

Rosemount Estate Show Reserve Chardonnay 1999

01.01.2001

Fallega strágult vín, með örlítilli grænni slikju í röndina. Ilmar af eik, sítrus og hunangi, með örlitlum ananaskeim. Dálítið eikað í munni, gott jafnvægi og góð fylling, skortir þó líklega aðeins upp á þroskann. Gæti haft gott af 2-3 árum í vínskápnum. Passaði frábærlega með ofnsteiktri Sandhverfu með pestó og parmesan Einkunn: 8,0

Lesa meira →

Niebaum-Coppola Francis Coppola Family Wines Chardonnay 1997

01.01.2001

Francis Ford Coppola er einn af meisturum kvikmyndanna og hann er einnig að skipa sér sess sem einn af meisturum víngerðar í Kaliforníu með Rutherford Rubicon og Fjölskylduvínum Coppola. Fjölskylduvínin voru upphaflega aðeins ætluð vinum og vandamönnum Coppola en hafa verið í almennri sölu undanfarin ár. Hann keypti Inglenook-vínsetrið árið 1975, gamalt og gróið fyrirtæki [...]

Lesa meira →

Lindemans Padthaway Chardonnay 1997

01.01.2000

Vín mánaðarins í janúar 2000 er hið ljúffenga Padthaway Chardonnay 1997 frá Lindemans í Ástralíu. Þetta vín fæst í öllum verslunum ÁTVR og kostar tæpar 1600 krónur. Padthaway-vínekrurnar eru á svæði sem kallast Limestone Coast rúmlega 300 km suður af borginni Adelaide í Suður-Ástralíu. Þar er jarðvegur og loftslag svipað og í nágrannahéraðinu Coonawarra, sem [...]

Lesa meira →