Posts tagged as:

Frakkland

Pipar, pipar

Höfundur: Eiríkur Þann 29. desember 2011

Fyrir jól fór ég í tvígang út að borða með vinnufélugunum, og í bæði skiptin fórum við á veitingastaðinn Peppar, Peppar hér í Uppsölum. Staður mun vera nokkuð vinsæll og hefur undanfarin 3 ár verið útnefndur veitingastaðir ársins af lesendum bæjarblaðsins í Uppsölum. Guðrún hefur tvívegis borðað þarna og látið vel af. Ég bar því nokkrar væntingar til staðarins og mér fannst staðurinn standa undir þeim.  Ég fékk reyndar sama mat og vín í bæði skiptin, en í seinna skiptið voru tveir aukaréttir (þ.e. við fengum fullan “avsmaksmeny”, þ.e. fjölréttamatseðil).  Fyrst fengum við laxaterrín, því næst graskers- og trufflusveppasúpu með andaconfite, þá smjörsteiktan vatnaviðni (gös á sænsku), hreindýrasteik og að lokum perur með After Eight-frauði (laxinn og vatnaviðninn fékk ég bara í seinna skiptið).

Með fiskinum og súpunni drukkum við Turkheim Alsace Riesling Reserva 2009, dæmigerður þurr riesling með apríkósum og hunangi, en með hreindýrinu drukkum við Moebius Tempranillo 2007 frá Argentínu, þægilegt matarvín með krydduðu berjabragði og ágætisfyllingu.  Bæði vínin fá 7,5 í einkunn hjá mér.

Ég tel óhætt að mæla með Peppar Peppar og hlakka til að koma þangað aftur.

{ 0 comments }

Hið fullkomna Boeuf Bourguignonne

Höfundur: Eiríkur Þann 22. desember 2011

Síðastliðinn mánudag komu Össi og Gulla í mat til okkar.  Þetta matarboð var fyrir löngu orðið tímabært og því ekki um annað að ræða en að vanda vel til verksins.  Ég notaði því tækifærið og eldaði Boeuf Bourguignonne í þeirri útfærslu sem ég var búinn að hugsa út (mín útfærsla á uppskrift Thomas Keller á The French Laundry).  Með þessu drukkum við J.L. Chave St. Joseph Mon Coeur Côtes du Rhône 2005 og útkoman var frábær.

Hér er svo uppskriftin að hinu fullkomna Boeuf Bourguignonne (ef maður er að flýta sér þá er hægt að ná þessu á 3 tímum, annars er best að gera kjötið daginn áður og klára svo réttinn næsta dag):

Hráefni:

  • 1 flaska rauðvín (ekki eitthvað sull, en samt ekkert dýrt vín, best að velja eitthvað franskt)
  • 2 saxaðir laukar
  • 2 saxaðar gulrætur (3 ef litlar)
  • 1 stór blaðlaukur, sneiddur
  • 2 saxaðir skalottulaukar
  • 500 g sveppir (helst litlir sveppir, þá eru þeir fleiri!) – saxið rúm 100g (þannig að verði 1 bolli með söxuðum sveppum)
  • 1 búnt ferskt timjan
  • 1 búnt fersk steinselja
  • 7 lárviðarlauf
  • 2 msk svartur pipar, heill
  • 9 hvítlauksrif (kraminn, hýðið haft á)
  • 2 msk salt
  • 1,5 kg nautakjöt, skorið niður í 5 x 3 cm teninga
  • Olía til steikingar
  • 1,5 – 2 lítrar kálfa- eða nautasoð
  • 16 gulrætur (mjóar, ekki of stórar), skornar í tvennt og hvor helmingur klofinn í 4 bita á lengdina
  • 1 kg kartöflur, afhýddar og skornar í 1 cm þykkar sneiðar (ég notaði reyndar Asperges-kartöflur, sem eru langar og mjóar, afhýddi þær en sneiddi ekki niður)
  • 150 g beikon, skorið niður í 3 cm langar sneiðar
  • 2 msk smjör, ósaltað
  • 20 perlulaukar, soðnir

Aðferð:

  1. Setjið rauðvín, 1 saxaðan lauk, 1 saxaða gulrót, helminginn af blaðlauknum, 1 bolla af söxuðum sveppum, 3 timjangreinar, 6 steinseljugreinar, 2 lárviðarlauf, ½ tsk svört piparkorn og 3 hvítlauksrif í pott – sjóðið niður um 2/3 (þar til eru 2 dl eftir).
  2. Saltið og piprið kjötið, og brúnið í olíu við háan hita.  Ekki setja of marga bita á pönnuna í einu, betra að gera þetta í nokkrum skömmtum.
  3. Setjið það sem eftir er af rauðvínssoðinu úr lið 1 er sett í ofnfast form (eða stóran pott sem má setja í ofn) og bætið við 3 timjangreinum, 3 steinseljugreinum, 2 lárviðarlaufum, 2 hvítlauksrifjum og því sem eftir er af saxaða lauknum, gulrótinni og blaðlauknum.  Leggið kjötið ofan á og hellið kálfa-/nautakjötsoðinu þannig að rétt fljóti yfir kjötið. Setjið í 175 gráðu heitan ofn.  Eldið í 2 klst.
  4. Takið út úr ofninum og færið kjötið yfir í annað eldfast mót eða pott.  Soðið síað og það síðan soSðið niður um rúmlega helming.  Þegar hingað er komið má hella soðinu yfir kjötið og geyma í ísskáp yfir nótt.  Ef ætlunin er að bera kjötið strax fram er best að gera lið 5-9 á síðari klukkutíma kjötsins í ofninum.
  5. Setjið kartöflur í pott ásamt 2 timjangreinum, 1 lárviðarlaufi,  10 svörtum piparkornum, 2 hvítlauksrifjum og 1 msk salti.  Setjið vatn yfir svo rétt fljóti yfir kartöflurnar.  Sjóðið í 10-15 mínútur þar til kartöflurnar eru soðnar.  Hellið af vökvanum og hreinsið kryddjurtirnar frá.
  6. Setjið gulrætur í pott ásamt 4 timjangreinum, 1 lárviðarlaufi,  10 svörtum piparkornum, 2 hvítlauksrifjum og 1 msk salti.  Setjið vatn yfir svo rétt fljóti yfir kartöflurnar.  Sjóðið í 5 mínútur.  Hellið af vökvanum og hreinsið kryddjurtirnar frá.
  7. Leggið beikonbitana á bökunarpappír og ofnsteikið í 10 mínútur, snúið þeim og ofnsteikið í 10 mínútur til viðbótar.  Þerrið beikonið með eldhúspappír.
  8. Skerið af stilknum á sveppunum við neðri brún sveppsins.  Steikið sveppina í smjöri í 3-4 mínútur.
  9. Steikið perlulaukana upp úr smjöri í 3-4 mínútur.
  10. Ef kjötið hefur verið kælt er það nú sett í ofnfast mót/pönnu og vökvanum hellt yfir kjötið.  Sveppunum og laukunum blandað saman við og hitað í ofni í 10 mínútur við 190 gráður.
  11. Kjötið sett á stórt fat, sósunni hellt yfir, beikonbitarnir lagðir ofan á, og kartöflum og gulrótum raðað í kring. Stráið síðan saxaðri steinselju og sjávarsalti yfir.  Ef fatið er ekki nógu stórt til að hægt sé að setja allt á það er hægt að bera gulræturnar og kartöflurnar fram í skálum (stráið þá líka salti og steinselju yfir).

Verði ykkur að góðu!

{ 0 comments }

Púrtvín og ostar

12.18.2011

Hingað til hef ég ekki verið þekktur fyrir að vera mikið fyrir osta, en það er allt að breytast til hins betra.  Um daginn drakk ég Chateau Mont Redon 2007 sem Einar Brekkan bauð upp á, og með þessu borðuðum við svissneskan Appenzeller sem passaði ákaflega vel með (Einar var líka með Gorgonzola sem ég [...]

Lesa meira →

Chateau Prat-Majou-Gay

08.28.2011

Já, það er til vínhús og vín með þessu nafni!  Það kemur frá Languedoc-Roussillon í suðurhluta Frakkland, nánar tiltekið frá Minervois.  Ég keypti 2008-árganginn um daginn sem hugsanlegan húsvínskandidat (eins og lesendur vafalaust eru nú farnir að taka eftir þá er ég alltaf að leita að nýju húsvíni) og við vorum bara nokkuð ánægð með [...]

Lesa meira →

Bordeaux 2010

05.23.2011

Þegar 2000-árgangurinn af Bordeaux kom voru margir gagnrýnendur sem varla héldu vatni – sögðu hann stórkostlegan, betri en 1982, 1959, jafnvel betri 1947 og nánast eins og 1929 – slík voru gæðin.  Svo kom 2001 og þá voru stóru orðin ekki spöruð.  Svo kom 2003, 2005, 2007 og loks 2009 sem sagður var jafnvel betri [...]

Lesa meira →

Delas Les Launes

03.31.2011

Í nýjasta Insider-hefti Wine Spectator er fjallað um nokkur ný og spennandi vín.  Áhugaverðast finnst mér að Delas Crozes-Hermitages Les Launes 2009 fær 91 stig.  Þetta vín fæst bæði á Íslandi og í Svíþjóð og kostar ekki mikið.  Hér í Svíþjóð kostar flaskan 139 SEK en á Íslandi 3370 kr.  Reyndar er það 2007-árgangurinn sem [...]

Lesa meira →

Vín ársins 2010 á Vínsíðunni

01.08.2011

Undanfarin ár hef ég haft þann vana að tilnefna vín ársins hér á Vínsíðunni.  Árið 2010 var nokkuð gott ár þegar vín eru annars vegar – nóg af góðum vínum á góðu verði!  Ég náði að tjá mig um 35 mismunandi vín (listinn verður birtur á næstu dögum) og var yfirleitt nokkuð ánægður með það [...]

Lesa meira →

Góður Gewurztraminer

11.09.2010

Um helgina opnaði ég eina Jules Muller Gewurztraminer Réserve Alsace 2008 og hún kom mér þægilega á óvart.  Þetta er fallega gult vín með góðri angan af apríkósum, fläder (man ekki hvað það heitir á íslensku) og vott af hnetum sem kemur aðeins betur fram í bragðinu.  Vínið er aðeins sætara en ég bjóst við [...]

Lesa meira →

Liseberg og tvö frábær vín!

08.19.2010

Já, loksins komumst við í Liseberg! Dæturnar völdu nefnilega Liseberg sem sumarleyfisstaðinn í ár og tóku hann fram yfir sólarlandaferð eða annað þvíumlíkt. Við fórum reyndar til Íslands í 3 vikur en það er víst ekki hægt að kalla það sólarlandaferð þrátt fyrir að veðrið hafi verið með ágætum. Við ætluðum svo að fara í [...]

Lesa meira →

Gúrkutíð

08.03.2010

Það hefur verið hálfgerð gúrkutíð hjá mér að undanförnu og lítið um vínprófanir frá því að engillinn góði var tekinn upp.  Ég var að vinna í Falun alla síðustu viku þar sem ég smakkaði reyndar eitt gott rauðvín.  Ég fékk mér glas af Gnarly Head Zinfandel 2008 og það var bara skrambi gott.  Gott berjabragð [...]

Lesa meira →