Posts tagged as:

Gæs

Villibráðarveisla veðurfræðingsins

Höfundur: Eiríkur Þann 16. júlí 2010

Um síðustu helgi vorum við boðin í villibráðarveislu í saumaklúbbnum hennar Guðrúnar.  Óli veðurfræðingur sá um kjötið – grillað hreindýr og gæs – og ég verð að segja að betri villibráð hef ég varla fengið!  Kjötið var svo meyrt að maður hefði nánast getað borðað það með skeið!  Kristó var maðurinn á bak við skötuselinn sem var marineraður og grillaður á teini.  Nonni kom með grænfóðrið og það kom allt úr garðinum hans uppi á Skaga.  Kalli sá um eftirréttinn og Doddi lagði til húsnæði.  Ég kom með vínið og bauð upp á Montes Alpha Cabernet Sauvignon 2007 og Beringer Napa Valley Sauvignon Blanc 2007.  Montes Alpha var ávaxtaríkt (sólber og kirsuber), sæmilega tannískt með mjúkri eik, frísklegt og féll vel að grillaðri villibráðinni.  Einkunn: 7,5 – Góð Kaup! Beringer var frísklegur með góðum sítrus- og ananaskeim.  Ágætis fylling og gott eftirbragð.  Smellpassaði við skötuselinn.  Einkunn: 7,5 – Góð Kaup!

Af ýmsum ástæðum náðum við ekki að heimsækja alla þá sem við ætluðum að heimsækja í þessari Íslandsheimsókn og allir þeir sem eiga í hlut eru beðnir velvirðingar á því – við bætum úr því næst!

Nú er ég kominn heim í hitabylgjuna og tekinn til við nýjungina sem ég tók upp á í fyrra – bjórsmökkun!  Ég er búinn að kaupa ýmsar nýjar tegundir, þar á meðal ýmislegt sem mér myndi annars aldrei detta í hug að prófa.  Nánar um það síðar.

{ 0 comments }

Gómsæt gæs

Höfundur: Eiríkur Þann 24. maí 2009

Í gær ákváðum við að það væri kominn tími á gæsabringurnar sem við höfum átt í frystinum síðan í fyrra.  Það er auðvitað ómögulegt að láta svona fínt kjöt bíða of lengi og því ekki seinna vænna en að gæða sér á þessu lostæti.

Ég ákvað að nota uppskrifina sem er að finna í Landsliðsbók Hagkaupa og er komin frá Eyþór Rúnarssyni, sem m.a. hefur eldað á veitingastaðnum Ó á Óðinsvéum – Gæsabringur með brúnkáli, sellerírótarmús og kirsuberjum – en ég ákvað samt að sleppa kirsuberjunum og var í pínulitlu tímahraki þannig að ég eldaði bringurnar á “gamla mátann” – steikti á pönnu og stakk svo inn í ofn í smá stund!  Eflaust eru bringurnar mjög safaríkar ef þær eru eldaðar að hætti Eyþórs, en við söknuðum þess að hafa enga sósu með.

Með þessu drukkum við eitt af okkar uppáhaldsvínum, Seghesio Zinfandel 2007 – dásamlegt vín sem er ekki mjög dýrt (170 SEK).  Ég þarf að fara  að kaupa meira af þessu á meðan það er til í systeminu!

{ 0 comments }

Giftur!

07.23.2008

Við Guðrún gengum í það heilaga nú um helgina og ritstjórinn er því hættur að lifa í synd!  Við héldum veislu þar sem við buðum nánustu vinum og ættingjum og Páll Ólafsson frændi minn fór á kostum sem veislustjóri.  Hann þóttist vera eitthvað tvístígandi þegar við báðum hann um að taka þetta að sér, sagðist [...]

Lesa meira →

Chateau de Tertre Margaux 1999

07.30.2006

Glæsilegur litur með mikla dýpt en í meðallagi dökkt.  Ristað brauð með smjöri, kaffi og eik fyrir þyrlun. Eftir þyrlun hverfur ristaða brauðið, kaffi og eik verða meira áberandi. Einnig grænn pipar, leður, súkkulaði, fersk paprika og vanilla. Mild en margslungin lykt með gott jafnvægi.  Vín í mjög góðu jafnvægi með keim af kaffi, leðri [...]

Lesa meira →

Geyser Peak Alexander Valley Cabernet Sauvignon Reserve 1996

07.30.2006

Þetta vín var árshátíðarvín Vínklúbbsins árið 2000. Cabernet Sauvignon er ókrýnd drottning rauðu þrúganna í Kaliforníu og líkt og aðrar rauðar þrúgur þarf hún nokkuð harðneskjulegar aðstæður til að gefa af sér góð vín. Í Alexander Valley, sem er rétt norðan við Napa Valley í Sonoma-héraði, er hins vegar mjög hlýtt og jarðvegur frjór. Víngerðarmenn [...]

Lesa meira →

Carmen Maipo Valley Cabernet Sauvignon Gold Reserve 1997

09.06.2001

Dökkt og djúpt vín, byrjandi þroski, “leggjalangt.” Í nefinu mikil eik, leður og lakkrís og jafnvel útihús. Töluvert tannískt en með mikla og góða fyllingu, gott jafnvægi og eftirbragðið ágætt. Vín sem á nóg eftir. Hentar vel með villibráð og nautakjöt en væri lambinu líklega ofviða. Einkunn: 9,0

Lesa meira →

Lindemans St. George Vinyard Cabernet Sauvignon 1995

01.01.2001

Þetta vín er í nokkru uppáhaldi hjá mér, en þetta er þriðji árgangurinn sem ég kemst í kynni við og alltaf finnst mér það fara batnandi! Það hefur mjög djúpan og þroskaðan lit. Í lyktinni finnur maður vott af eik og ávöxtum sem skila sér til bragðlaukanna þegar maður smakkar á því, og hæfileg tannín [...]

Lesa meira →

Koonunga Hill Shiraz-Cabernet 1998

01.01.2001

Þetta er dökkt vín með nokkuð góða dýpt en er enn nokkuð ungt og nokkur blámi í rönd. Það angar af pipar, sólberjum, plómum og lakkrís, en einnig má greina leður og eik – nokkuð frísklegur og skemmtilegur ilmur. Í munni nokkur tannín, sýra rétt yfir meðallagi, dálítill hratkeimur (krækiber), eftirbragðið gott en er hins [...]

Lesa meira →

Joseph Phelps Cabernet Sauvignon 1996

01.01.2001

Mjög dökkt, góð dýpt og góður þroski. Fallegt vín í glasi. Upp stígur yndislegur ilmur af múskati, súkkulaði, kaffi, eik, bláberjum, grilli (BBQ) og vanillu. Í munninn komið hefur vínið gríðarlega góða fyllingu, langt og gott eftirbragð. Gengur vel með steik, villibráð eða bara eitt sér. Einkunn. 9,0

Lesa meira →

Lindemans St.-George Vinyard Cabernet Sauvignon 1994

11.01.2000

Tímaritið WineSpectator gefur 1994 árgangnum einkunnina 89 og þessa umsögn: “Dense in flavor, chewy in texture, sharply focused to show off its cedary currant and blackberry flavors, shaded with hints of mineral and sage. Has style and length.Best from 2001 through 2010.” Þeir sem hafa geymt flöskurnar geta nú farið að njóta ávaxtanna af þolinmæði [...]

Lesa meira →