Posts tagged as:

Gewurztraminer

Vín ársins 2010 á Vínsíðunni

Höfundur: Eiríkur Þann 8. janúar 2011

Undanfarin ár hef ég haft þann vana að tilnefna vín ársins hér á Vínsíðunni.  Árið 2010 var nokkuð gott ár þegar vín eru annars vegar – nóg af góðum vínum á góðu verði!  Ég náði að tjá mig um 35 mismunandi vín (listinn verður birtur á næstu dögum) og var yfirleitt nokkuð ánægður með það sem ég prófaði.  Vínkælirinn minn var líka í óvenjulega góðu ástandi megnið af árinu og náði meira að segja þeirri eftirsóknarverðu stöðu að vera yfirfullur! Ástandið er enn frekar gott og nú eru mörg spennandi vín sem liggja og bíða þess að verða tekin fram þegar þeirra tími er kominn!

Þegar kemur að valinu á víni árins eru margvísleg atriði höfð til hliðsjónar – verð og gæði skipta miklu máli – en þegar öllu er á botninn hvolft er það auðvitað mín eigin skoðun sem skiptir mestu – hvaða vín var mest spennandi!

Eftirfarandi vín stóðu helst upp úr á árinu:

  • Lammershoek Red Roulette 2006 – alveg einstaklega gott vín, ávaxtaríkt með kirsuberjum, plómum og leðri mest áberandi í seiðandi angan.  Góð fylling í munni, mjúk tannín og hæfileg sýra.  Langt og gott eftirbragð.  Einkunn: 9,0 – Bestu Meðmæli.
  • William Fevre Chablis 2008 – góður sítrusilmur með ögn af eik, perum og smjöri, frísklegt í munni með mjúkum eikartónum.  Sítrusinn áberandi í eftirbragðinu.  Einkunn: 9,0 – Bestu Meðmæli.
  • Sette Ponti Crognolo 2007 – vínið er enn mjög ungt, óvenjumiklar fjólur í ilminum ásamt plómum, leðri og smá eik.  Mikil tannín og greinilegt sólberjabragð, góð fylling og gríðarlega langt og gott eftirbragð.  Frábært vín sem þarfnast samt smá tíma til að þroskast betur.  Einkunn: 9,0 – Bestu Meðmæli.
  • Seghesio Zinfandel 2008 – vínið er enn nokkuð ungt, sætur berja- og lakkrískeimur með vott af pipar, leðri og amerískri eik.  Í munni nokkuð þétt tannín og góð sýra, berjabragðið kemur vel fram og eftirbragðið heldur sér vel.  Einkunn: 8,5 – Góð Kaup!
  • Domaines Schlumberger Gewurztraminer Les Princes Abbés Alsace 2007 -  ljósleitt vín með sætri angan af perum, sítrónu og smá rósakeim.  Í munni var vínið aðeins sætara en maður býst við af Gewurztraminer, góð sýra og fylling, örlítill möndlukeimur en þó ekki þessi týpiski hnetukeimur sem maður fær oft í Gewurztraminer.  Einkunn: 8,0 – Frábær Kaup!

En þegar kemur að víni ársins er í raun aðeins eitt vín sem kemur til greina. Ekkert vín hefur hlotið jafn mikið lof á árinu og Brancaia Tre 2007! Vínið prófaði ég fyrst í janúar og þegar upp er staðið er þetta það vín sem ég hef drukkið mest af á síðastliðnu ári (aldrei pantað jafn mikið af einu víni!) og er mjög glaður að eiga enn einhverjar flöskur í kælinum.  Vínið lenti í 10. sæti á topp-100 listanum hjá Wine Spectator árið 2009 en þar sem vínið var ekki fáanlegt hér fyrr en ár síðasta ári (og ekki prófað fyrr en þá) þá finnst mér að það eigi heima á listanum fyrir árið 2010.  Ég á reyndar líka vínið sem lenti í 6. sæi á sama lista (Barone Ricasole Castello di Brolio Chianti Classico 2006) en mér finnst þetta hafa verið miklu betri kaup.  Umsögn mín þegar ég smakkaði Brancaia Tre 2007 var á þessa leið:

Þetta er nokkuð ljóst vín að sjá, dæmigert Chianti-útlit.  Í nefið kemur kaffi- og berjailmur ásamt ögn af lakkrís og blómum.  Í munni dálítið tannískt en hins vegar mikil sýra, góð fylling og gott eftirbragð.  Frábært vín sem vakti mikla hrifningu meðal allra viðstaddra.  Vínið er blanda Sangiovese (80%), Cabernet Sauvignon (10%) og Merlot (10%), fellur undir IGT-flokkinn og gæti því tæknilega talist vera ofur-Toskani. Einkunn: 9,0 – Frábær Kaup!

Það tilkynnist því hér með að vín ársins 2010 á Vínsíðunni er Brancaia Tre 2007!

Brancaia Tre

Þetta er nokkuð ljóst vín að sjá, dæmigert Chianti-útlit.  Í nefið kemur kaffi- og berjailmur ásamt ögn af lakkrís og blómum.  Í munni dálítið tannískt en hins vegar mikil sýra, góð fylling og gott eftirbragð.  Frábært vín sem vakti mikla hrifningu meðal allra viðstaddra.  Vínið er blanda Sangiovese (80%), Cabernet Sauvignon (10%) og Merlot (10%), fellur undir IGT-flokkinn og gæti því tæknilega talist vera ofur-Toskani. Einkunn: 9,0 – Frábær Kaup!

{ 0 comments }

Góður Gewurztraminer

Höfundur: Eiríkur Þann 9. nóvember 2010

Um helgina opnaði ég eina Jules Muller Gewurztraminer Réserve Alsace 2008 og hún kom mér þægilega á óvart.  Þetta er fallega gult vín með góðri angan af apríkósum, fläder (man ekki hvað það heitir á íslensku) og vott af hnetum sem kemur aðeins betur fram í bragðinu.  Vínið er aðeins sætara en ég bjóst við af þessari þrúgu, apríkósan áberandi ásamt áðurnefndu fläder-blómi.  Smellpassar við lax og aðra fiskrétti.  Einkunn: 7,0 – Góð Kaup.

{ 0 comments }

Árshátíð Vínklúbbsins

03.21.2010

Vínklúbburinn hélt sína margrómuðu árshátíð í gær í veiðihúsinu við Grímsá í Borgarfirði.  Því miður var ég (að vanda) fjarri góðu gamni og löngu kominn tími á að bóka helgarferð í marsmánuði til að geta tekið þátt í þessari mögnuðu veislu.  Okkur tókst þó að fá smá nasaþef af veislunni í ár, því ég bauð [...]

Lesa meira →

Alsace

01.16.2010

Árið 2007 var einstaklega gott í hinu franska Alsace, líkt og nánast allur síðasti áratugur, og árgangurinn einn sá besti í tæp 20 ár.  Vínframleiðendur höfðu þó áhyggjur um vorið, því það var eitt hið heitasta og þurrasta i áraraðir.  Hlýindin héldu áfram um sumarið, en með hæfilegri úrkomu svo að vaxtarskilyrði voru eins og [...]

Lesa meira →

Trimbach Gewürztraminer Reserve 1998

01.01.2001

Auga: Fallega gullið vín með mikla dýpt og þykka tauma. Nef: Græn epli, pera og engifer. Munnur; Ávaxtaríkt og kryddað, með keim af eðalmyglu. Langt og mjúkt eftirbragð. Matur: Fjölhæft vín, prófa kínverskt eða indverskt

Lesa meira →

Pierre Frick Gewurztraminer 1992

01.01.2001

Gul slikja utan á víninu. Í nefinu pera, mikið krydd og mikill ávöxtur, jafnvel púðurreykur! Nokkuð kröftugt kryddbragð, jafnvel aggressíft í munni. Í góðu jafnvægi við ávöxtinn. Eftirbragðið mjúkt og gott. Vín sem hentar með feitum fiski, t.d. laxi, lúðu eða bara eitt og sér.

Lesa meira →