Höfundur: Eiríkur Þann 11. mars 2011
Argentína hefur verið í mikilli sókn undanfarin ár og vínin sem þaðan koma verða sífellt betri. Verðið spillir heldur ekki fyrir, því í flestum tilvikum er það mjög viðráðanlegt. Hér er listi yfir nokkuð góð kaup í Ríkinu/Systeminu:
- Alamos Cabernet Sauvignon Mendoza 2009 – 86p – 1899 ISK
- Alamos Malbec Mendoza 2009 – 83p – 1899 ISK / 89 SEK
- Catena Malbec Mendoza 2008 – 90p – 2697 ISK / 119 SEK
- Luigi Bosca Pinot Noir Maipú Reserva 2007 – 82p – 3068 ISK
- Norton Cabernet Sauvignon Mendoza 2007 – 84p – 1650 ISK
- Norton Cabernet Sauvignon Mendoza Reserva 2007 – 88p – 2295 ISK
- Norton Malbec Mendoza 2008 – 84p – 1650 ISK
- Norton Privada Mendoza 2007 – 91p – 2995 ISK
- Bodega Renacer Punto Final Reserva Malbec Mendoza 2005 – 89p – 3190 ISK
- Trivento Malbec Golden Reserve 2007 – 90p – 2990 ISK
Höfundur: Eiríkur Þann 15. febrúar 2011
Undanfarin ár hafa vín frá Nýja heiminum verið í tísku – kröftug vín sem er tilbúin til neyslu nú þegar og þurfa sjaldnast nokkurar geymslu við. Nú virðist hins vegar Gamli heimurinn (les. Evrópa) aftur vera á uppleið – klassísk, mjúk og fáguð vín úr hefðbundnum þrúgum í stað steratröllanna. Vín með sögu og hefð – Bordeaux, Bourgogne, Rhone, Rioja, Valpolicella, Toscana, Piemonte…
Hér er stuttur listi frá Mikael Mölstad yfir nokkur góð evrópsk vín á góðu verði. Mikael gefur vínunum yfirleitt einkunn frá 1 upp í 6 (venjulega sýnt sem tölur á teningi, hér sem t.d. 5/6). Því miður er aðeins eitt af þessum vínum fáanlegt á Íslandi, en ég ætla að reyna að nota tækifærið á meðan ég er staddur á landinu til að kynna mér betur framboðið í Vínbúðunum, enda löngu kominn tími á að uppfæra innkaupalistann hér til hliðar.
- Villa Puccini Toscana 1899 ISK/85 SEK – 5/6
- La Vignée Pinot Noir 109 SEK – 6/6
- Chateau de Sequin 89 SEK – 5/6
- Conde de Valdemar Reserva 109 SEK – 5/6
- Schloss Vollrads Riesling Trocken 99 SEK – 6/6
- Couvent des Jacobins Bourgogne Blanc 115 SEK – 6/6
- Sancerre Domaine de la Vaillaudiére 129 SEK – 5/6