Posts tagged as:

Gran Coronas

Árshátíð Vínklúbbsins

Höfundur: Eiríkur Þann 21. mars 2010

Vínklúbburinn hélt sína margrómuðu árshátíð í gær í veiðihúsinu við Grímsá í Borgarfirði.  Því miður var ég (að vanda) fjarri góðu gamni og löngu kominn tími á að bóka helgarferð í marsmánuði til að geta tekið þátt í þessari mögnuðu veislu.  Okkur tókst þó að fá smá nasaþef af veislunni í ár, því ég bauð Keizaranum í mat og bauð upp á sama matseðil og vínklúbburinn fékk.

Í forrétt var humar með hvítlauk, villisveppum og papriku.  Frábær réttur sem vakti einróma lukku hjá öllum sem hann smökkuðu (nema Örnu!).  Með humrinum drukkum við Domaines Schlumberger Gewurztraminer Les Princes Abbés Alsace 2007.  Ljósleitt vín með sætri angan af perum, sítrónu og smá rósakeim.  Í munni var vínið aðeins sætara en maður býst við af Gewurztraminer, góð sýra og fylling, örlítill möndlukeimur en þó ekki þessi týpiski hnetukeimur sem maður fær oft í Gewurztraminer.  Frísklegt vín sem smellpassaði með humrinum og vakti mikla ánægju.  Einkunn: 8,0 – Frábær Kaup! (SEK 149)

Í aðalrétt var lambakóróna með kóríanderraspi, parmakartöflum og juce, ásamt zucchini, kirsuberjatómötum og basiliku.  Við höfum hingað til verið hálf-skeptísk þegar kemur að sænsku lambakjöti og haft vissa fordóma gagnvart því, en í gær fengum við frábært lambakjöt, auðvitað frá Anderson & Tillman (kjötframleiðendur í Uppsala).  Kjötið var reyndar marinerað en ég hreinsaði bara marineringuna burt.  Kjötið var lungnamjúkt og bragðgott, og meðlætið var líka mikið lostæti.  Með kjötinu drukkum við Torres Gran Coronas Cabernet Sauvignon Reserva 2005.  Fallega rautt vín með sæmilega dýpt.  Í nefi áberandi eikartónar ásamt kryddum, vanillu og kirsuberjum.  Í munni er vínið ágætlega tannískt en þó farið að mýkjast, gott jafnvægi, smá kakó, kirsuber og eik.  Gott eftirbragð.  Einkunn: 7,0 – Góð Kaup. (SEK 89 / ISK 2599)

Í eftirrétt var bláberjakaka með garðablóðbergsís, bláberjasósu og skyrmús (ég þurfti reyndar að nota tyrkneskt jógúrt í staðinn fyrir skyr, sem því miður er ekki fáanlegt hér í Uppsölum).  Kakan var mjög góð, ísinn dálítið sérstakur en samt mjög góður.  Mjög íslenskur eftirréttur!  Passar eflaust vel með freyðivíni, en því miður hafi ég ekkert slíkt á boðstólum.  Í staðinn fengum við okkur kaffi og Camus Napoleon koníak…

Frábært kvöld og ég get ímyndað mér að stemmningin á árshátíðinni hafi verið stórkostleg að vanda.

{ 1 comment }

Torres og nautið

Höfundur: Eiríkur Þann 30. ágúst 2009

Í gær buðum við nokkrum nágrönnum í grill – eitthvað sem lengi hefur staðið til en ekki orðið af fyrr en nú.  Við grilluðum rauðvínsmarineraða nautasteik og með því bárum við fram kartöflugratín, salat og villisveppasósu.  Krakkarnir fengu grillaða hamborgara og voru alsælir með það.  Með nautinu drukkum við Torres Gran Coronas Reserva 2005.  Þetta vín er 85% Cabernet Sauvignon með 15% Tempranillo.  Ungt Reservavín sem er dökkt að sjá en samt unglegt í röndinni.  Ilmur af eik, kirsuberjum, kryddi og ávöxtum ásamt smá leðri.  Í munni dálítið tannískt en þau eru þó aðeins farin að mýkjast, eikar- og ávaxtabragð með vott af kakói.  Ágætis eftirbragð sem endist vel.  Smellpassaði við nautakjötið!  Einkunn: 7,0

{ 0 comments }

Kaup ársins

12.31.2008

Þegar kemur að því að velja bestu kaup ársins eru mörg vín sem koma til greina. Bodegas Ramón Bilbao Rioja Crianza 2005 er magnað Riojavín sem kostar aðeins 70 sænskar krónur.  Því miður ekki fáanlegt á Íslandi en engu að ein bestu kaup ársins. Guigal Côtes du Rhone 2004 er alltaf pottþét að eiga og [...]

Lesa meira →

Ennþá sambandslaus

03.27.2008

Það virðist ekki vera nokkur lausn í sjónmáli í deilu TeliaSonera og Cogent Communications, en þessi fyrirtæki eiga í barnalegri deilu um samskipti á Netinu og talast nú ekki við. Það væri svo sem í lagi ef það þýddi ekki um leið að þau loka á öll samskipti notenda sinna við net sem andstæðingurinn tengist, [...]

Lesa meira →