Posts tagged as:

Grenache

Gleymdi að panta!

Höfundur: Eiríkur Þann 18. október 2009

Já, það er skömm frá að segja en ég hreinlega gleymdi að panta mér Bordeaux 2006 í síðustu viku!  Valið stóð helst á milli Talbot, Léoville-Barton og Chasse-Spleen en nú verð ég að bíða fram í lok næstu viku til að sjá hvort það sé eitthvað eftir handa mér.  Ég var reyndar orðinn pínu þreytt, enda búinn að vera á næturvöktum alla vikuna og var einmitt á leið í vinnuna þegar ég mundi eftir þessu, en svona er þetta nú bara.  Sem betur fer var þetta ekki annar 2005-árgangur – þá hefði maður jafnvel tekið frí frá vinnu til að ganga frá pöntuninni.

Ég fór þó í ríkið á föstudaginn og keypti mér Chateau Mont-Redon Chateauneuf-du-Pape 2005.  Þetta var ágætisvín, kannski örlítið daufara en ég hafði gert mér vonir um.  Líkt og mörg önnur Rónarvín er það að mestu leyti gert úr Grenache (65%), Syrah (15%) og Cinsault (10%), en nokkrar aðrar þrúgur hafa líka slæðst með.  Það hefur dálítið blautan eikarkeim, ber og lakkrís í annars dálítið fátæklegri lykt.  Í munni nokkuð gott jafnvægi þar sem áðurnefnd lyktar- og bragðelement koma ágætlega fram ásamt smávegis pipar.  Sæmilegt eftirbragð.  Einkunn: 6,5 – pínulítil vonbrigði með þetta vín þar sem ég borgaði 234 SEK fyrir það.

Ég keypti líka Ný-Sjálenskt rauðvín sem heitir Wild Rock Gravel Pit Red 2008, blanda Merlot og Malbec, og ég held örugglega að þetta sé í fyrsta sinn sem ég smakka slíka blöndu.  Þetta er unglegt vín að sjá, ilmur af eik, plómum, myntu og súkkulaði sem skila sér í bragðinu, sem er nokkuð tannískt og skortir aðeins upp á sýru til að vega upp á móti tannínunum.  Ágætis hversdagsvín og mun betri kaup en frakkinn sem ég fjallaði um hér að ofan.  Einkunn: 6,5 – kostar 99 SEK.

{ 0 comments }

Bestu kaupin í Ríkinu ?

Höfundur: Eiríkur Þann 13. mars 2009

Eftir að hafa skoðað vínlistann hjá ÁTVR (sjá síðasta pistil) dundaði ég mér líka við að reikna út einhvers konar Q/P-hlutfall, þ.e. gæði/verð sem má útleggja svona: Hvað kostar hver punktur?  Það er ágætis samanburðaraðferð en það gefur auga leið að dýrustu (og bestu?) vínin koma alltaf verst út úr slíkum aðferðum og því þyrfti líklega að nota mismunandi reiknireglur í ólíkum verðflokkum eða beita ýmsum frádráttarreglum, en þannig mætti líka lengi halda áfram.

Samkvæmt mínum einföldu reiknikúnstum kemur hér topp-10 listinn yfir bestu kaupin í Ríkinu um þessar mundir:

  1. Dr. Loosen Riesling Dr. L 2007
  2. Planeta La Segreta Bianco 2006
  3. Montes Sauvignon Blanc 2007
  4. Alamos Cabernet Sauvignon Mendoza 2006
  5. Alamos Malbec Mendoza 2007
  6. Norton Cabernet Sauvignon Reserva 2006
  7. Norton Malbec Reserva Mendoz 2006
  8. Feudo Arancio Chardonnay Sicilia 2007
  9. d’Arenberg The Custodian Grenache 2006
  10. d’Arenberg The Dry Dam Riesling 2007

Það kemur sjálfsagt ekkert á óvart að þrjú efstu vínin skuli vera hvítvín, því þau eru jú almennt ódýrari en rauðvínin. Það er kannski áhugaverðara að þarna séu 4 argentínsk rauðvín og 2 ítölsk hvítvín, því við erum jú að tala um vín sem fengu a.m.k. 88 punkta.  Þar að auki fengu bæði vínin frá Norton 90 punkta.

Ef einhver veit um góða aðferð við útreikning gæði/verð-hlutfalls þá lýsi ég hér með eftir tillögum!

{ 0 comments }

Louis Bernard Chateauneuf du Pape 1999

07.30.2006

Ryðrautt, talsverður þroski og dýpt. Fallegt vín. Mjög fersk lykt af sjörnuávexti, lime, útihúsum og lakkrís. Mild og þægileg lykt, fáguð með góðan karakter – vottar fyrir myntu og eik (örlítil skápalykt), jafnvel reykjarkeim. Vín í mjög góðu jafnvægi. Fínlegt, góð fylling, tiplar létt á tungu. Fágað og vel gert vín (aðgengilegt).

Lesa meira →

Rosemount Estates GSM 1999

01.01.2003

Fallega rautt og dökkt vín, ungt. Í nefi sólber, plómur, lakkrís og eik. Kraftmikið í munni, góð tannín og sýra, langt og gott eftirbragð sem heldur sér vel. Klassískur GSM! Einkunn: 9,0

Lesa meira →

Rosemount Estates GSM 1997

04.02.2002

Þetta vín var árshátíðarvín Vínklúbbsins árið 2002 GSM stendur fyrir Grenache, Shiraz og Mourvedre, en þessi blanda er nokkuð vinsæl í Suður-Rhone í Frakklandi. Hér er hún í hlutföllunum 50% Grenache, 40% Shiraz og 10% Mourvedre. Þrúgurnar í þessu víni koma frá McLaren Vale, sem er eitt besta vínræktarsvæðið í Ástralíu og þaðan koma mörg [...]

Lesa meira →

Peter Lehmann Seven Surveys 1997

02.01.2001

Þetta vín er úr nokkuð óvenjulegri blöndu sem hefur þó verið að ryðja sér til rúms, einkum í Ástralíu, þ.e. Mourvèdre, Shiraz og Grenache (stundum kallað Mataro) – GSM, en þessar þrúgur þrífast mjög vel í Barossa-dalnum í Ástralíu. Nafn vínsins, Seven Surveys, er til heiðurs fyrstu landnemunum sem settust að í Barossa árið 1842. [...]

Lesa meira →