Höfundur: Eiríkur Þann 8. janúar 2009
Nei, það er kannski ekki svo auðvelt. Hins vegar benda nýjustu rannsóknir til að hófleg áfengisneysla, einkum víndrykkja, auki magn omega-3 fitusýru í blóði. Þetta kemur fram í grein í janúarhefti American Journal of Clinical Nutrition.
Fyrri rannsóknir hafa sýnt fram á að omega-3 fitusýrur, sem finnast í miklu magni í fiskiolíum, og hófleg áfengisneysla, einkum víndrykkja, dragi úr líkum á hjartasjúkdómum. Vísindamenn fengu aukinn áhuga á omega-3 eftir að matvælastofnun Bandaríkjanna lýsti því yfir að omega-3 drægi úr hjartasjúkdómum, og tilgreindi einkum fisk, s.s.. lax, silung og túnfisk sem dæmi um matvæli sem innihalda hátt hlutfall omega-3.
Líkaminn getur ekki framleitt omega-3 fitusýrur upp á eigin spýtur, en getur hins vegar umbreytt jurtaolíum í omega-3 með hjálp víns, en ekki með hjálp bjórs eða sterks áfengis (spíra) skv. niðurstöðum rannsóknahópsins sem hefur aðsetur í Campobasso á Ítalíu. Líklega eru það því önnur efni en alkóhólið (s.s. pólýfenól) sem hafa þessi áhrif.
Sjá nánar á www.winespectator.com. Ágrip af rannsókninni má lesa hér.
Höfundur: Eiríkur Þann 26. maí 2006
Dagleg hófneysla áfengis virðist draga úr líkum á hjartasjúkdómum hjá körlum en minna þarf hjá konum svo áhrif drykkjunnar séu góð. Þetta kemur fram í skýrslu, sem birt var í breska læknatímaritinu í dag. Rannsóknin var gerð á 50.000 Dönum á aldrinum 50 til 65 ára hjá danskri miðstöð sem sérhæfir sig í áfengisrannsóknum.
Rannsóknin sýndi að karlmenn, sem drukku áfengi daglega, voru um 40% síður líklegir til að fá hjartasjúkdóma en þeir sem ekkert drukku eða drukku sjaldnar. Konur sem drekka áfengi fá einnig síður hjartasjúkdóma, en litlu máli virðist skipta hvort konurnar drekka daglega eða vikulega.
Drykkjuvenjur þeirra, sem tóku þátt í rannsókninni, voru mældar á sex ára tímabili. Þá voru þættir á borð við aldur, reykingar og matarvenjur teknir til hliðsjónar, 2,6% kvennanna og 5,1% karlanna fengu hjartasjúkdóma á meðan á rannsókninni stóð.
Judy O’Sullivan, talsmaður Bresku hjartastofnunarinnar, varar þó fólk við því að taka niðurstöðurnar of bókstaflega og segir að bindindisfólk ætti ekki að hefja drykkju til að minnka líkur á hjartsjúkdómum. Þá segir hún að þeir sem drekka verði að hafa það í huga að ókostir mikillar drykkju séu mun fleiri en kostirnir.
Af www.mbl.is