Posts tagged as:

Hreindýr

Carmen Maipo Valley Cabernet Sauvignon Gold Reserve 1997

09.06.2001

Dökkt og djúpt vín, byrjandi þroski, “leggjalangt.” Í nefinu mikil eik, leður og lakkrís og jafnvel útihús. Töluvert tannískt en með mikla og góða fyllingu, gott jafnvægi og eftirbragðið ágætt. Vín sem á nóg eftir. Hentar vel með villibráð og nautakjöt en væri lambinu líklega ofviða. Einkunn: 9,0

Lesa meira →

Lindemans St. George Vinyard Cabernet Sauvignon 1995

01.01.2001

Þetta vín er í nokkru uppáhaldi hjá mér, en þetta er þriðji árgangurinn sem ég kemst í kynni við og alltaf finnst mér það fara batnandi! Það hefur mjög djúpan og þroskaðan lit. Í lyktinni finnur maður vott af eik og ávöxtum sem skila sér til bragðlaukanna þegar maður smakkar á því, og hæfileg tannín [...]

Lesa meira →

Koonunga Hill Shiraz-Cabernet 1998

01.01.2001

Þetta er dökkt vín með nokkuð góða dýpt en er enn nokkuð ungt og nokkur blámi í rönd. Það angar af pipar, sólberjum, plómum og lakkrís, en einnig má greina leður og eik – nokkuð frísklegur og skemmtilegur ilmur. Í munni nokkur tannín, sýra rétt yfir meðallagi, dálítill hratkeimur (krækiber), eftirbragðið gott en er hins [...]

Lesa meira →

Joseph Phelps Cabernet Sauvignon 1996

01.01.2001

Mjög dökkt, góð dýpt og góður þroski. Fallegt vín í glasi. Upp stígur yndislegur ilmur af múskati, súkkulaði, kaffi, eik, bláberjum, grilli (BBQ) og vanillu. Í munninn komið hefur vínið gríðarlega góða fyllingu, langt og gott eftirbragð. Gengur vel með steik, villibráð eða bara eitt sér. Einkunn. 9,0

Lesa meira →

Lindemans St.-George Vinyard Cabernet Sauvignon 1994

11.01.2000

Tímaritið WineSpectator gefur 1994 árgangnum einkunnina 89 og þessa umsögn: “Dense in flavor, chewy in texture, sharply focused to show off its cedary currant and blackberry flavors, shaded with hints of mineral and sage. Has style and length.Best from 2001 through 2010.” Þeir sem hafa geymt flöskurnar geta nú farið að njóta ávaxtanna af þolinmæði [...]

Lesa meira →

Cakebread Cellars Cabernet Sauvignon 1996

10.07.2000

Vín mánaðarins í október 2000 er dúndurbolti frá Cakebread Cellars í Kaliforníu – Cabernet Sauvignon 1996. Sá árgangur var mjög góður í Kaliforníu, en heldur í smærra lagi þó, vegna rigninga í apríl 1996. Sumarið var hins vegar gott, þrúgurnar fengu góðan tíma til að ná þroska og urðu mjög kröftugar. Þrúgurnar í þessu víni [...]

Lesa meira →