Posts tagged as:

Hvítvín

Næsta húsvín

Höfundur: Eiríkur Þann 24. júní 2011

Þá er fyrsta húsvínið uppurið og leit hafin að því næsta.  Við erum mjög ánægð með bæða Bolgarello og Campo Viejo en langar samt aðeins að breyta til.  Við skruppum því í vínbúðina í gær og keyptum nokkra nýja kandidata – Lindemans Bin 40 Merlot 2010, Lindemans Bin 50 Shiraz 2010 og Casillero del Diablo Carmenere 2010.  Hvítvínið er eiginlega sjálfgefið, því Leth Grüner Veltliner 2010 er í miklu uppáhaldi hjá mér núna, enda ákaflega gott vín fyrir lítinn pening.

Ég keypti líka tvær Seghesio Zinfandel 2009 og stakk í kælinn, því Seghesioinn er mjög góður í ár.

Nú er midsommar hér í Svíþjóð og allir að fara að skemmta sér – góða helgi!

{ 0 comments }

Hitabylgjan heldur áfram…

Höfundur: Eiríkur Þann 12. júní 2011

Já, það er sko sannkölluð hitabylgja hérna og nánast skömm frá að segja að maður er að verða pínu þreyttur á því að það sé 26-30 stiga hiti á hverjum degi.  Pirringurinn felstu þó kannski helst í því að Theódór sefur ekki vel í þessum hita og ég er ekki enn kominn í sumarfrí!  Sumarfríinu verður reyndar að mestu leyti varið á Íslandi og því líklega best að njóta hitans meðan hann er hér.

Um síðustu helgi fengum við góða heimsókn – Gestur og Sonja komu í fyrsta skipti til okkar í Svíþjóð, en þau eru nýflutt til Stokkhólms frá Danmörku.  Þar sem þau búa í fjölbýlishúsi á Östermalm (fínt hverfi í Stokkhólmi) þá mega þau ekki grilla á svölunum hjá sér og því aldrei annað inni í myndinni en að bjóða þeim upp á grill.  Við erum nýbúin að kaupa fjórðungshluta af ungnauti og steikurnar voru einmitt orðnar passlega meyrar.  Eftir að hafa boðið þau velkomin með glasi af Leth Grüner Veltliner 2010 skelltum við Entrecote á grillið og með því drukkum við Tignanello 2006, eitt af mínum uppáhaldsvínum.  Dásamlegur keimur af sólberjum, leðri, kaffi og kryddum.  Mikil fylling, þétt tannín og laaaangt eftirbragð.  Einkunn: 9,0 – bestu meðmæli!  Í eftirrétt fengum við okkur grillaða ávexti og ís, og með því drukkum við Jeanmaire kampavín.  Frábært kvöld sem var svo toppað með Camus XO koníaki og Tallisker vískí…

{ 0 comments }

Árshátíðin

06.02.2011

Vínklúbburinn Reinhardt hélt fyrstu árshátíð sína um síðustu helgi.  Þemað var ítalskt – bæði matur og vín.  Í forrétt gerðum við Carpaccio og með því drukkum við Stefano Antonucci Verdicchio Classico Riserva 2007.  Það var nokkuð sérstakt vín og í fyrsta sinn (að ég held) sem við prófuðum vín úr þessari þrúgu.  Vínið er gyllt [...]

Lesa meira →

Páskafrí – enn eitt húsvínið!

04.22.2011

Þá er ég loksins kominn í páskafrí eftir langa og stranga vinnutörn.  Það spáir sól og tuttugu stiga hita hérna hjá okkur og ljóst að grillið verður vel kynt um helgina!  Ég tók mig til og keypti húsvín um daginn, og þar sem ég gat ekki alveg gert upp á milli Bolgarello og Campo Viejo [...]

Lesa meira →

Nokkur góð frá Washington

03.10.2011

Unnendur vína frá Washington fylki geta glaðst yfir því að það er ágætis úrval fáanlegt í vínbúðum á Íslandi og í Svíþjóð.  Tímaritið Wine Spectator gerði nýlega úttekt á vínum þaðan og ég kannaði hvaða vín eru fáanleg í okkar vínbúðum.  Vínin fá flest afbragðsdóma og mörg þeirra eru á mjög aðgengilegu verði: Chateau Ste. [...]

Lesa meira →

Vín ársins 2010 á Vínsíðunni

01.08.2011

Undanfarin ár hef ég haft þann vana að tilnefna vín ársins hér á Vínsíðunni.  Árið 2010 var nokkuð gott ár þegar vín eru annars vegar – nóg af góðum vínum á góðu verði!  Ég náði að tjá mig um 35 mismunandi vín (listinn verður birtur á næstu dögum) og var yfirleitt nokkuð ánægður með það [...]

Lesa meira →

Góður Gewurztraminer

11.09.2010

Um helgina opnaði ég eina Jules Muller Gewurztraminer Réserve Alsace 2008 og hún kom mér þægilega á óvart.  Þetta er fallega gult vín með góðri angan af apríkósum, fläder (man ekki hvað það heitir á íslensku) og vott af hnetum sem kemur aðeins betur fram í bragðinu.  Vínið er aðeins sætara en ég bjóst við [...]

Lesa meira →

Liseberg og tvö frábær vín!

08.19.2010

Já, loksins komumst við í Liseberg! Dæturnar völdu nefnilega Liseberg sem sumarleyfisstaðinn í ár og tóku hann fram yfir sólarlandaferð eða annað þvíumlíkt. Við fórum reyndar til Íslands í 3 vikur en það er víst ekki hægt að kalla það sólarlandaferð þrátt fyrir að veðrið hafi verið með ágætum. Við ætluðum svo að fara í [...]

Lesa meira →

Villibráðarveisla veðurfræðingsins

07.16.2010

Um síðustu helgi vorum við boðin í villibráðarveislu í saumaklúbbnum hennar Guðrúnar.  Óli veðurfræðingur sá um kjötið – grillað hreindýr og gæs – og ég verð að segja að betri villibráð hef ég varla fengið!  Kjötið var svo meyrt að maður hefði nánast getað borðað það með skeið!  Kristó var maðurinn á bak við skötuselinn [...]

Lesa meira →

Sushi og Pouilly-Fumé

02.06.2010

Í gær fengum við okkur sushi og með því prófuðum við Fournier Pouilly-Fumé 2008.  Þetta vín er (eins og önnur P-F) frá Loire í Frakklandi og gert úr Sauvignon Blanc.  Það er ljósgult, unglegt að sjá.  Í nefið koma sítrusávextir og stikilsber, ásamt vott af eik.  Í munni er það frekar þurrt, sæmileg fylling og [...]

Lesa meira →