Posts tagged as:

Ítalía

Grilluð Entrecote og vín ársins

by Eiríkur on 21. febrúar 2010

Í gær grillsteikti ég entrecote sem tókst ákaflega vel.  Við keyptum nefnilega fjórðung af nautaskrokki í haust og þetta kjöt er alveg einstaklega gott – mun betra en það sem ég hef verið að kaupa hér úti í búð.  Ég er líka loksins búinn að læra að nota grillpönnuna mína og nýti nú hvert tækifæri sem gefst til að grillsteikja!    Með steikinni drukkum við Peter Lehmann Shiraz 2006, sem ég valdi sem vín ársins 2009.

Í kvöld ætla ég að elda Bolognese og spaghetti – Keizarinn kemur í mat.  Með þessu er ég að hugsa um að taka fram eina Brancaia Tre

{ 0 comments }

Sushi, afmæli og heimsóknir

by Eiríkur on 31. janúar 2010

Síðastliðin vika var frekar róleg hjá okkur. Guðfinna Ósk átti afmæli í gær og vikan fór að nokkru leyti í það að undirbúa veisluna. Von var á 15 gestum og eftirvæntingin mikil. Því miður þurfti þó að aflýsa heimsókninni á síðustu stundu þar sem ælupest skaut upp kollinum. Það breytti þó ekki því að við áttum ágæta helgi að öðru leyti. Guðjón vinur okkar kom í heimsókn – fyrsta skipti sem hann kemur til Uppsala. Það var því tvöfalt tilefni til að gera sér dagamun.

Guðfinna Ósk hafði óskað eftir nautalund (blóðugri!) í mat á afmælisdaginn sinn, en við ákváðum reyndar að hafa lundina daginn áður, enda líklegt að allir yrðu nokkuð saddir eftir kökuát og því lítið pláss fyrir nautasteik.  Með nautinu bauð ég upp á fondantes kartöflur, villisveppasósu og salat.  Með því drukkum við Tignanello 2005 – stórfenglegt vín að öllu leyti!  Fallega dökkt með mikla dýpt, ilmur af eik, leðri og sólberjum.  Nokkuð tannískt með góða fyllingu og langt og gott eftirbragð.  Einkunn: 9,0 – Góð Kaup! Eftir matinn fengum við okkur súkkulaði og Tommasi Amarone 2005.  Mjög gott amaronevín, dökkt og fallegt í glasi, hnausþykkur ilmur af rúsínum og fjólum.  Góð fylling og eftirbragð sem endist lengi. Einkunn: 8,5 – Góð Kaup!

Eins og áður sagði þurftum við að fresta afmælisveislunni þegar yngri dóttirin fékk ælupest, sem blessunarlega gekk fljótt yfir án þess að nokkur annar hafi veikst (enn sem komið er…).  Við ákváðum því að fá okkur sushi (McDonalds fyrir dæturinar) og með því drukkum við Saint Clair Marlborough Riesling 2008.  Það er ljósgult vín, ilmur af melónum og apríkósum, dálítið þurrt (svona mitt á milli þess að vera þurrt og hálfsætt) og passaði vel með sushinu.  Einkunn: 7,0. Við opnuðum svo að lokum eina Brancaia Tre 2007 - frábært vín sem ég hef áður farið lofsamlegum orðum um hér á Vínsíðunni.

{ 0 comments }

Frábær kaup!

01.17.2010

Síðastliðna viku hef ég nánast verið rúmliggjandi með þursabit en er nú allur á batavegi.  Ég reyndi að nota tímann í eitthvað gagnlegt og kannaði m.a. stöðuna á sérpöntunarlistanum hjá systembolaget.  Nánar tiltekið var ég að athuga hvort að Brancaia Tre 2007 væri ekki örugglega komið til innflytjandans, Johan Lidby Vinhandel.  Þetta vín lenti nefnilega [...]

Lesa meira →

Vín ársins!

01.10.2010

Jæja, þá er komið að því að útnefna vín ársins 2009.  Nokkuð mörg vín komu til álita að þessu sinni, flest þeirra í ódýrari kantinum, enda árið 2009 sannkallað kreppuár hjá neytendum en góðæri hjá mörgum framleiðendum sem hingað til hafa einkum framleitt vín í ódýrari kantinum.
Amalaya de Colomé 2007 kemur frá Calchaqui-dalnum í Argetínu, [...]

Lesa meira →

Uppskrift að góðu kvöldi

11.27.2009

Eftir tæplega vikulanga fjarveru frá fjölskyldunni er efst á óskalistanum að eiga notalega kvöldstund í faðmi fjölskyldunnar. Við skruppum út í búð í dag og sáum þar hreindýrasteik sem við ákváðum að skella okkur á. Hún var kannski í dýrari kantinum en samt hverrar krónu virði, enda einstaklega góður biti sem við fengum [...]

Lesa meira →

Topp 1005: Sæti 2-5

11.19.2009

Hér eru vínin í sætum 2-5:
2. Numanthia-Termes Toro Termes 2005 (Spánn) – 96 punktar ($27) – “Austere yet alluring, this powerful red is thick and tannic, yet reveals a core of blackberry, mineral, hoisin and graphite that’s dense and pure. Monolithic now, but has depth and balance. Modern, but shows a real sense of place. [...]

Lesa meira →

Topp 100: Sæti 6 – 10

11.18.2009

Hér eru vínin sem lentu í sætum 6 – 10 á topp-100 lista Wine Spectator:
6. Chappellet Cabernet Sauvignon Napa Valley Signature 2006 (Bandaríkin, Kalifornía) – 94 punktar ($42) – “Assertive herb, anise, blackberry and wild berry fruit is tight, firm, tannic and well-structured, picking up depth and length on the finish. Best from 2010 through [...]

Lesa meira →

2009 gott ár á Ítalíu?

10.25.2009

Morgunblaðið greinir frá því í dag að árgangur 2009 á Ítalíu verði óvenju góður:
“Ítölsku vínþrúgurnar eru óvenju góðar í ár og er fastlega gert ráð fyrir því að árgangurinn 2009 verði góður en um leið verði framleiðslan lítil. Skýrist það af miklum hitum í sumar og miklu regni síðari hluta sumars.
Alls er talið að framleiðslan [...]

Lesa meira →

Tignanello 2006

09.16.2009

Ég rölti inn í eina vínbúð í dag, ekki mína venjulega heldur búðina í miðbænum.  Sú búð fær oft fleiri nýjungar en vínbúðin mín, og mig langaði að sjá hvort það væri eitthvað athyglisvert á boðstólum.  Ég rakst þar á nokkur eintök af Tignanello 2006 á 499 SEK (rúmar 8.900 ISK).  Ég var að velta [...]

Lesa meira →

Heilsusamleg kassavín – eða hvað?

09.12.2009

Það nægir að drekka tvö glös af Chill Out Sunset til að fá í sig meira en æskilegan dagskammt af súlfíði (brennisteinstvíildi eða brennisteinsdíoxíð, sulphur dioxide).  Og hvað með það?
Jú, ef þú ert með astma gæti það verið sérstaklega slæmt fyrir þig!  Um 5 % af astmasjúklingum eru sérstaklega næmir fyrir þessu efni  Brennisteinstvíildi hefur [...]

Lesa meira →