Höfundur: Eiríkur Þann 9. júlí 2011
Nú er ég kominn í helgarfrí og það styttist í sumarfrí – aðeins tvær vikur eftir! Helginni var fagnað í gær með grilli og tilheyrandi – grilluð svínarif með grillsósunni minni og öðru meðlæti, namm! Með þessu drukkum við Seghesio Zinfandel 2009 og það verður að segjast eins og er, að þó að vínið hafi verið firna gott þá passaði það auðvitað engan veginn með svona mat en naut sín miklu betur eftirá. Þessi árgangur er ekki alveg jafn góður og hið magnaða 2007 en engu að síður mjög gott vín – Einkunn: 8,5 – Góð Kaup!
Ég opnaði líka Dr. Loosen riesling 2010, létt og þægilegt vín eins og þýsk riesling eiga að vera, kannski aðeins of grösugt í bragði en engu að síður góð kaup (kostar aðeins um 70 SEK). Það passaði a.m.k. vel með eftirréttinum sem voru ber með vanillurjóma.
Höfundur: Eiríkur Þann 4. júní 2011
Það er sannkölluð hitabylgja sem gengur yfir Uppsala þessa dagana. Þegar þetta er skrifað er klukkan hálf níu að morgni og hitinn er þegar kominn yfir 20 gráður! Í gær var þvílík rjómablíða - sól, hægur andvari og 25 stiga hiti, sem er bara nokkuð gott í byrjun júní. Við sátum úti á palli stærstan hluta úr deginum, drukkum hvítvín og bjór og grilluðum svo fyrirtaks nautasteik. Með henni drukkum við Lous M. Martini Cabernet Sauvignon 2007, fyrirtaks amerískur Cabernet sem hentaði vel með grillinu. Smá leður og sólber, eik og tóbak í annars einföldum ilm, vínið hæfilega tannískt í munni og ágætis eftirbragð. Einkunn: 7,5 – Góð Kaup.
Það er mikið um að vera í dag – sextugsafmæli Einars Brekkans og svo grill hér um kvöldið þegar Gestur og Soffía koma í sína fyrstu heimsókn til Uppsala (nýflutt til Stokkhólms frá Kaupmannahöfn). Stefnir í meira nautakjöt og eitthvað vel valið vín úr kælinum…