Posts tagged as:

kassavín

Heilsusamleg kassavín – eða hvað?

Höfundur: Eiríkur Þann 12. september 2009

Það nægir að drekka tvö glös af Chill Out Sunset til að fá í sig meira en æskilegan dagskammt af súlfíði (brennisteinstvíildi eða brennisteinsdíoxíð, sulphur dioxide).  Og hvað með það?

Jú, ef þú ert með astma gæti það verið sérstaklega slæmt fyrir þig!  Um 5 % af astmasjúklingum eru sérstaklega næmir fyrir þessu efni  Brennisteinstvíildi hefur í aldaraðir verið bætt út í vín til að bæta geymsluþol þess og fjarlægja óæskilega lykt.  Það var þó ekki fyrr en upp úr 1980 að farið var að veita því athygli að þetta væri kannski ekki alveg hættulaust.  Nokkur dauðsföll sem rakin voru til súlfíðs urðu til þess að sett voru lög sem takmarka notkun þessa efnis í matvælum, þ.á.m. vínum.  Vínframleiðendur eru nú skyldugir til að geta þess á flöskumiðanum ef vínið inniheldur súlfíð.  Yfirleitt eru um 50-150 mg af súlfíði í hverjum lítra víns, og hámarkið er um 160 mg.  Þar sem æskilegt hámark fyrir venjulegan einstakling eru um 0,7 mg fyrir hvert kíló líkamsþyngdar, þá myndi 80 kg karlmanni nægja eitt stórt (300 ml) vínglas af víni sem inniheldur 150 mg/l súlfíð.  Því hefur líka verið haldið fram að eftir því sem vínið inniheldur meira súlfíð séu meiri líkur á að fá höfuðverk af völdum víndrykkjunnar!

Í bæjarblaðinu mínu er í dag grein um einmitt þetta efni og samantekt rannsóknar sem rannsóknarstofan Eurofin hefur gert á kassavínum (í kassavínum er oft meira af súlfíðum til að verja vínið, því plastið veitir ekki sömu vörn og glerflaskan þannig að vínið skemmist fyrr, jafnvel áður en kassinn er opnaður, og venjuleg kassavín hafa yfirleitt ekki nema 6-9 mánaða geymsluþol, þ.e. áður en þau eru opnuð).  Einnig er greint frá magni sorbínsýru í víninu (rotvarnarefni sem bætt er í vín til að hindra að gerjun haldi áfram í flöskunni, líkt og gerist í kampavínum – magnið sem sett er í vínið það lítið að það er ekki skaðlegt heilsunni) og leifum af skordýraeitrum sem fundust í vínunum (fjöldi efna í víninu tilgreindur, ekki magn).  Athyglisvert er að í ítölsku vínunum er að finna leifar eftir flest skordýraeitur.

bundustar-kassi Bundu Star (S-Afríka)Súlfíð: 73,1 mg/l
Sorbinsýra: <6 mg/l
Skordýraeitur: 2
mauro-primitivo-kassi Mauro Primitivo (Ítalía)Súlfíð: 82,8 mg/l
Sorbinsýra: 154 mg/l
Skordýraeitur: 5
robertson-kassi Robertson Winery (S-Afríka)Súlfíð: 54,4 mg/l
Sorbinsýra: 65,1 mg/l
Skordýraeitur: 2
barone_ricasoli_kassi Barone Ricasoli Formuale (Ítalía)Súlfíð: 83,1 mg/l
Sorbinsýra: <0,5 mg/l
Skordýraeitur: 11
chenet-kassi J.P. Chenet (Frakkland)Súlfíð: 87,3 mg/l
Sorbinsýra: 140,8 mg/l
Skordýraeitur: 4
chill-out sunset Chill Out Sunset (Ástralía)Súlfíð: 120,2 mg/l
Sorbinsýra: <0,5 mg/l
Skordýraeitur: 2

{ 0 comments }

Kreppuvín með kreppuboltanum

Höfundur: Eiríkur Þann 14. janúar 2009

“It was the best of times, it was the worst of times…” sagði Dickens í A tale of two cities. Já, það eru víst sannkallaðir krepputímar núna og því ekki á hverjum degi að maður opnar kælinn til að fá sér góðan vínsopa.  Á þessum tímum grípur maður því til kreppuvína.  Eitt slíkt er Concha y Toro Carmenére Cabernet Sauvignon Reserve.  Það tilheyrir engum árgangi heldur er það aðeins venjulegt kassavín.  Þó ekki verra en svo að það er “kassavínið mitt” um þessar mundir.  Það er þokkalega dökkt líkt og önnur vín gerð úr þessum þrúgum.  Lyktin kannski ekki mjög aðlaðandi – pínulítið súr ávaxtalykt með vott av vanillu.  Í munni ekki mjög tannískt og sýran kannski full mikil og því pínulítið ójafnvægi en þokkalegasta eftirbragð gerir að vínið er sæmilega drekkandi svona í miðri viku eða þegar maður tímir ekki að opna neitt annað betra.  Það er líka tilvalið að fá sér eitt glas með boltanum og hæfir vel með leiknum sem ég er að fylgjast með núna – Southend gegn Chelsea.  Southend náði nokkuð óvænt jafntefli á útivelli í fyrri leiknum og verðlaunast með leik á heimavelli gegn stjörnum prýddu liði Chelski.  Það leynir sér svo sem ekki þegar maður horfir á leikinn að gestirnir hafa nokkuð hærra vikukaup og fara betur með boltann, en samt er það nú Southend sem er yfir 1-0, skoruðu úr eina færi sínu hingað til.  Áfram Southend!

{ 0 comments }

Kreppuvín

10.17.2008

Nú á nýhöfnum krepputímum þykir við hæfi að skoða hvað stendur til boða í formi kreppuvína.  Líklega þarf aðeins að lækka markmiðin þegar farið er í Ríkið, enda buddan væntanlega léttari en oft áður.  Að skera niður rauðvínsdrykkjuna er þó alveg út í hött, enda rauðvín í hófi gott fyrir heilsuna. Ég á yfirleitt eitthvert [...]

Lesa meira →

Cranswick Smith Barramundi Shiraz Merlot 2000

01.01.2001

Það er létt og ávaxtaríkt, í þokkalegu jafnvægi, kannski fullmikil sýra, eftirbragðið nokkuð stutt. Þokkalegt kassavín. Einkunn: 5,0

Lesa meira →