Posts tagged as:

Keizarinn

Gamall vinur á ferð

Höfundur: Eiríkur Þann 11. júlí 2009

Í gær var hefðbundin íslensk föstudagsmáltíð á borðum hjá okkur (kannski pínu gamaldags en þó klassísk) – grillaður kjúklingur með frönskum, salati og kokteilsósu (sósa og salat segja dætur mínar sem nú eru heillaðar af gömlu Stuðmanna-myndinni “Með allt á hreinu”, einkum laginu “Franskar (sósa og salat)”). Með þessu drukkum við Penfolds Koonunga Hill Shiraz Cabernet 2008.  Þetta er gamall vinur sem hefur litið við á svo til hverju ári s.l. áratug og rúmlega það.  Þetta er fallega rautt vín með sæmilega dýpt.  Áberandi súkkulaðiilmur ásamt angan af berjum og amerískri eik.  Gott jafnvægi, góð fylling og þægilegt eftirbragð.  Einkunn: 8,0 – Góð Kaup.

Annars hef ég verið að vinna að vínbókinni undanfarna daga, farið yfir gamlar færslur og er að safna saman gömlum víndómum, en ég stefni að því að allir víndómarnir verði með í bókinni (hvað er vínbók án víndóma?).

Á morgun förum við upp í Dalarna þar sem við munum dvelja í sumarbústað ásamt Keizaranum og fjölskyldu hans.  Að því loknu er sumarfríinu lokið…

{ 0 comments }

Mmmm… “M”

Höfundur: Eiríkur Þann 10. janúar 2009

Í gær langaði okkur í góðan mat og gott vín.  Við buðum því Keizaranum og fjölskyldu hans í mat – Roastbeef með þreföldum piparhjúp og timjan ásamt rösti-kartöflum og skógarsveppasósu.  Algjört lostæti og með því þurfti auðvitað gott vín!  Fyrir valinu varð Montes Alpha “M” 2004. Vínið er frá Colchagua í Chile og er blanda Cabernet Sauvignon (80 %), Merlot (10 %), Cabernet Franc (5%) og Petit Verdot (5 %).  Mjög dökkt vín með mikla dýpt.  Enn sem komið er nokkuð lokuð lykt – leður og eik, smá ávöxtur en ekki mikið meira.  Í munni ákaflega mjúkt með mjög góða fyllingu, mikil tannín en samt með silkiáferð – frábært jafnvægi.  Springur út í munninum með ögn af eik og dökku súkkulaði.  Langt og gott eftirbragð.  Frábært vín sem hægt er að njóta núna eða geyma í nokkur ár til viðbótar (spjarar sig eflaust ágætlega í 10-15 ár!).

Montes Alpha M

{ 0 comments }

Lesendum er bent á að forðast…

01.05.2009

Viña Maipo Carmenere 2007.  Keizarinn prófaði þennan ófögnuð – hálf súrt, hratkennt, nánst ekkert eftirbragð. Hræðilegt vín að mati Keizarans og ber að forðast með öllum tiltækum ráðum!

Lesa meira →

Carmen og Sushi

10.25.2008

Í gær var ég þreyttur eftir næturvaktina.  Sá sem var með mér sást í samtals 25 sekúndur á bráðamóttökunni og ég held að það sé met!  Ég var sem sagt einn með bráðamóttökuna (fyrir skurðsviðið) en sem betur fer var rólegt.  Merkilegt hvað það getur verið óskaplega mikið að gera upp í húsi hjá sumum [...]

Lesa meira →

Cepparello!

10.16.2008

Já, loksins kom að því að ég smakkaði Cepparello! Ég hef fylgst með þessu víni s.l. 7-8 ár eftir að hafa lesið umsagnir um hinn frábæra 1997 árgang.  Það þótti hreint stórkostlegt vín, líkt og mörg önnur ofur-Toscanavín þetta árið.  Ekki hefur mér þó tekist að eignast vínið fyrr en ég gifti mig í sumar, [...]

Lesa meira →

Helgarferð til London

09.18.2008

Við hjónin brugðum okkur til London um daginn – fyrsta skipti sem við förum eitthvað barnlaus.  Keizarinn og frú fengu reyndar að fljóta með.  Dinner og söngleikur, Covent Garden, Oxford Street og svo auðvitað vínbúðin í Selfridges! Fyrsta kvöldið borðuðum við á Clos Maggiore, frönskum stað við Covent Garden.  Staðurinn hefur viðurkenninguna Best of Award [...]

Lesa meira →