Höfundur: Eiríkur Þann 29. júlí 2009
Sumarvínið mitt í ár er Foot of Africa Chenin Blanc, létt og skemmtilegt hvítvín í kassa! Þetta er einstaklega þægilegur sumardrykkur, tilvalið þegar verið er að undirbúa matinn og grillið að hitna. Chenin Blanc er ekki mjög þekkt þrúga – hana er aðallega að finna í Loire-héraði í Frakklandi og í Suður-Afríku, þar sem hún er reyndar algengasta þrúgan og gengur þar oft undir nafninu Steen. Þrúgan er sýrurík og fjölhæf, þannig að hana má nota jafnt í freyðivín sem sætvín og allt þar á milli. Hún er einnig móttækileg fyrir staðbundnum áhrifum, eða terroir, og getur þannig haft súrsætan eplakeim eða eða hunangs- og blómakeim, allt eftir því hvar hún vex. Í góðu árferði er einnig hægt að láta þrúgurna fá á sig eðalmyglu og nota í sætvín. Hún hentar einnig vel til blöndunar við Sauvignon Blanc og Chardonnay, og víngúrúinn Jancis Robinsson telur hana eina fjölhæfustu þrúguna sem finnst.
Chenin Blanc gengur vel með salati, fiskréttum og kjúklingi, og sætari vín úr þessari ágætu þrúgu geta gengið vel með krydduðum réttum frá Asíu og Mið-Ameríku.
Höfundur: Eiríkur Þann 11. júlí 2009
Í gær var hefðbundin íslensk föstudagsmáltíð á borðum hjá okkur (kannski pínu gamaldags en þó klassísk) – grillaður kjúklingur með frönskum, salati og kokteilsósu (sósa og salat segja dætur mínar sem nú eru heillaðar af gömlu Stuðmanna-myndinni “Með allt á hreinu”, einkum laginu “Franskar (sósa og salat)”). Með þessu drukkum við Penfolds Koonunga Hill Shiraz Cabernet 2008. Þetta er gamall vinur sem hefur litið við á svo til hverju ári s.l. áratug og rúmlega það. Þetta er fallega rautt vín með sæmilega dýpt. Áberandi súkkulaðiilmur ásamt angan af berjum og amerískri eik. Gott jafnvægi, góð fylling og þægilegt eftirbragð. Einkunn: 8,0 – Góð Kaup.
Annars hef ég verið að vinna að vínbókinni undanfarna daga, farið yfir gamlar færslur og er að safna saman gömlum víndómum, en ég stefni að því að allir víndómarnir verði með í bókinni (hvað er vínbók án víndóma?).
Á morgun förum við upp í Dalarna þar sem við munum dvelja í sumarbústað ásamt Keizaranum og fjölskyldu hans. Að því loknu er sumarfríinu lokið…