Posts tagged as:

Lamb

Nokkrar góðar komnar í hús

by Eiríkur on 23. maí 2010

Vínkælirinn minn hefur tútnað dálítið út síðustu daga.  Ég fékk mínar þrjár flöskur af Dow’s 2007 árgangspúrtvíni og stefni að því að prófa eina flöskuna eftir 10 ár eða svo!  Þetta er besta púrtvín sem hefur komið frá Dow’s og það er ekki á hverju ári að púrtvíni fái fullt hús stiga hjá Wine Spectator.  Um daginn var svo hringt í mig frá vínbúðinni minni.  Þeir voru að taka til í hillunum sínum og fundu þá nokkrar flöskur af Casa Lapostolle Clos Apalta 2007 sem ég hafði pantað fyrir mig og Einar Brekkan.  Ég hafði aldrei fengið boð um að vínið hefði komið og var eiginlega búinn að afgreiða þetta sem svo að pöntunin hefði misfarist.  Nú er tvær slíkar flöskur komnar inn í kælinn minn og ástand hans er alveg einstaklega gott!

Í gær var auðvitað úrslitaleikur Meistaradeildarinnar og við hittumst félagarnir heima hjá dr. Leifssyni til að horfa á leikinn.  Ég hafði hitað upp fyrir leikinn með því að fara með eldri dótturina á fótboltamót þar sem þær náðu góðum árangri – einn sigur og eitt jafntefli.  Svo grillaði ég lambalæri (kryddað með blöndu af fersku timjan, rósmarín, hvítlauk, salti og pipar) og var ákaflega ánægður með útkomuna.  Með þessu drakk ég Peter Lehmann Cabernet Sauvignon Mentor 2004.  Mjög gott vín sem var orðið ágætlega þroskað – góður keimur af berjum og kryddi, mjúk tannín og þétt eftirbragð sem entist nokkuð lengi.  Passaði vel með lærinu!  Úrslit leiksins voru svo ekki alveg eins og við höfðum óskað okkur, en Keizarinn og Dr. Leifsson eru báðir mjög harðir stuðningsmenn FC Bayern (ekki Bayern Munchen eins og svo margir segja, heldur á segja FC Bayern – a.m.k. gera menn svo í Munchen).  Við náðum þó að prófa nokkrar tegundir af þýskum bjór og vonandi get ég greint betur frá þeim athugunum síðar, en dr. Leifsson hélt utanum bókhaldið og hér með er óskað eftir afriti af þeim niðurstöðum!

Ég er á leið til Falun í kvöld og get þá kannski laumað inn 1-2 færslum…

{ 0 comments }

Árshátíð Vínklúbbsins

by Eiríkur on 21. mars 2010

Vínklúbburinn hélt sína margrómuðu árshátíð í gær í veiðihúsinu við Grímsá í Borgarfirði.  Því miður var ég (að vanda) fjarri góðu gamni og löngu kominn tími á að bóka helgarferð í marsmánuði til að geta tekið þátt í þessari mögnuðu veislu.  Okkur tókst þó að fá smá nasaþef af veislunni í ár, því ég bauð Keizaranum í mat og bauð upp á sama matseðil og vínklúbburinn fékk.

Í forrétt var humar með hvítlauk, villisveppum og papriku.  Frábær réttur sem vakti einróma lukku hjá öllum sem hann smökkuðu (nema Örnu!).  Með humrinum drukkum við Domaines Schlumberger Gewurztraminer Les Princes Abbés Alsace 2007.  Ljósleitt vín með sætri angan af perum, sítrónu og smá rósakeim.  Í munni var vínið aðeins sætara en maður býst við af Gewurztraminer, góð sýra og fylling, örlítill möndlukeimur en þó ekki þessi týpiski hnetukeimur sem maður fær oft í Gewurztraminer.  Frísklegt vín sem smellpassaði með humrinum og vakti mikla ánægju.  Einkunn: 8,0 – Frábær Kaup! (SEK 149)

Í aðalrétt var lambakóróna með kóríanderraspi, parmakartöflum og juce, ásamt zucchini, kirsuberjatómötum og basiliku.  Við höfum hingað til verið hálf-skeptísk þegar kemur að sænsku lambakjöti og haft vissa fordóma gagnvart því, en í gær fengum við frábært lambakjöt, auðvitað frá Anderson & Tillman (kjötframleiðendur í Uppsala).  Kjötið var reyndar marinerað en ég hreinsaði bara marineringuna burt.  Kjötið var lungnamjúkt og bragðgott, og meðlætið var líka mikið lostæti.  Með kjötinu drukkum við Torres Gran Coronas Cabernet Sauvignon Reserva 2005.  Fallega rautt vín með sæmilega dýpt.  Í nefi áberandi eikartónar ásamt kryddum, vanillu og kirsuberjum.  Í munni er vínið ágætlega tannískt en þó farið að mýkjast, gott jafnvægi, smá kakó, kirsuber og eik.  Gott eftirbragð.  Einkunn: 7,0 – Góð Kaup. (SEK 89 / ISK 2599)

Í eftirrétt var bláberjakaka með garðablóðbergsís, bláberjasósu og skyrmús (ég þurfti reyndar að nota tyrkneskt jógúrt í staðinn fyrir skyr, sem því miður er ekki fáanlegt hér í Uppsölum).  Kakan var mjög góð, ísinn dálítið sérstakur en samt mjög góður.  Mjög íslenskur eftirréttur!  Passar eflaust vel með freyðivíni, en því miður hafi ég ekkert slíkt á boðstólum.  Í staðinn fengum við okkur kaffi og Camus Napoleon koníak…

Frábært kvöld og ég get ímyndað mér að stemmningin á árshátíðinni hafi verið stórkostleg að vanda.

{ 1 comment }

Lamb og rauðvín

02.27.2010

Í gær eldaði ég lambalæri, kryddað með hvítlauk og rósmarín, og bar fram með ofnsteiktu rótargrænmeti. Uppskriftina er að finna í Gestgjafanum, nánar tiltekið í blaðinu þar sem er að finna bestu uppskriftir ársins 2009. Með þessu drukkum við Les Tourelles de Longueville Pauillac 2005. Þetta er “litla” vínið frá Chateau de [...]

Lesa meira →

Nammi namm!

10.04.2009

Já, hryggurinn var algjört nammi og ekki var vínið síðra!  Hryggurinn var eldaður á gamla mátann og var meyr og mjúkur þegar hann kom út úr ofninum.  Meðlætið var klassísk rauðvínssósa, kartöflur og salat.  Með þessu drukkum við svo Beringer Cabernet Sauvignon Private Reserve 2004.  Þetta er alvöru amerískur cabernet-bolti eins og ég vil hafa [...]

Lesa meira →

Hryggur og Beringer

10.03.2009

Ég er að fara til Falun í næstu viku og verð því að kúldrast á hóteli eina vikuna enn.  Ég á líka afmæli í næstu viku og við ákváðum að halda smá forveislu í kvöld.  Okkur langar í góðan mat og gott vín!  Ég er því búinn að setja lambahrygg í ofninn og taka fram [...]

Lesa meira →

Sumarhátíðin

06.28.2009

Í fyrradag fögnuðum við því að vera komin í sumarfrí.  Lambalærið var sett á grillið og á meðan það var að steikjast opnuðum við Montes Sauvignon Blanc 2007 og gæddum við okkur á grilluðum humri.  Með lambinu drukkum við Les Tourelles de Longueville 2005.  Þetta er “litla” vínið frá Chateau Pichon de Longueville í Pauillac, [...]

Lesa meira →

Sólguð Inkanna

06.16.2009

Síðastliðið föstudagskvöld var ég veislustjóri í tæplega 500 manna veislu og stóð mig auðvitað með stakri prýði!  Veislan fór fram á Broadway og gestirnir voru að lang stærstum hluta erlendir.  Í forrétt var gestum boðið upp á koníaksbætta humarsúpu sem var bara nokkuð góð.  Aðalrétturinn var lambavöðvi með kryddhjúp (fór reyndar lítið fyrir kryddhjúpnum) og [...]

Lesa meira →

Basilisk

05.07.2009

Það hefur verið frekar rólegt í vínsmökkunum undanfarna daga. Um síðustu helgi buðum við þó í grill og elduðum lambalæri. Með þessu drukkum við Basilisk 2007, blanda af Shiraz og Mourvédre frá hinum ástralska McPherson. Unglegt vín með angan af berjum, eik, kaffi og kryddjurtum ásamt vott af lakkrís, ávaxtaríkt í munni, nokkuð eikað og [...]

Lesa meira →

Páskalambið góða

04.13.2009

Í gær elduðum við lambahrygg á gamla mátann – einföld kryddun og hryggurinn eldaður lengi við lágan hita.  Til að fullkomna nostalgíuna þá höfðum við brúnaðar kartöflur, grænar baunir og rauðkál með hryggnum!  Með þessu drukkum við Joseph Drouhin Vosne Romanee 2006.  Klassískur búrgúndari með kirsuberjum, myntu, pipar og dálitlum eikartónum.  Silkimjúkt, í góðu jafnvægi [...]

Lesa meira →

Lambalæri og … ?

03.26.2009

Á morgun erum við með matargesti sem ekki hafa komið til okkar áður (deildarstjórinn hennar Guðrúnar og maðurinn hennar).  Að sjálfsögðu bjóðum við þeim upp á íslenskt lambakjöt – ofnsteikt lambalæri með villisveppasósu, Fondantes kartöflum og salati.  Ég er ekki alveg búinn að ákveða vínið með þessu – er að spá í Seghesio Zinfandel, gæti [...]

Lesa meira →