Posts tagged as:

Lamb

Góðir gestir

11.12.2008

Hulda og Steini frá Karlskrona komu í heimsókn til okkar eftir að hafa verið nokkra daga í Stokkhólmi.  Steini er mikill vínáhugamaður og á öfundsvert vínsafn.  Hann segist hafa fengið vínáhuga í kringum 1999 og þá fyrst farið að safna ítölskum vínum frá 1997.  Hann á nokkuð vænt safn af þessum frábæra árgangi og tók [...]

Lesa meira →

Athuganir síðustu viku

11.02.2008

Sænsk-Íslenski vínklúbburinn hittist heima hjá mér í vikunni og þemað var að allir komu með eitt vín sem þeir vildu kynna fyrir klúbbnum: Keizarinn kom með Domaine Dominique Guyon Hautes Cotes de Nuits Les Dames de Vergy 2007.  Ljóst og kornungt Búrgúndarvín með krydduðum sólberja- og sítrónkeim ásamt útihúsakeim.  Tannínsnautt með frekar mikilli sýru, dálitlum [...]

Lesa meira →

Frábær kaup!

11.01.2008

Sænsk-Íslenski vínklúbburinn hélt fund heima hjá mér í vikunni og prófaði nokkur vín.  Ber þar hæst vín sem ég bauð upp á: Bodegas Ramón Bilbao Rioja Crianza 2005. Þemað var að allir komu með vín sem þeir vildu kynna fyrir klúbbmeðlimum.  Ég var ekki viss um hvað ég ætti að taka og ákvað að fletta [...]

Lesa meira →

Cepparello!

10.16.2008

Já, loksins kom að því að ég smakkaði Cepparello! Ég hef fylgst með þessu víni s.l. 7-8 ár eftir að hafa lesið umsagnir um hinn frábæra 1997 árgang.  Það þótti hreint stórkostlegt vín, líkt og mörg önnur ofur-Toscanavín þetta árið.  Ekki hefur mér þó tekist að eignast vínið fyrr en ég gifti mig í sumar, [...]

Lesa meira →

Fantagóður Pinotage

06.29.2008

Það hefur verið frekar rólegt yfir Vínsíðunni síðustu vikur enda mikið að gera hjá ritstjóranum.  Þursabit, pallasmíðar, skjólveggur, bakvakt og síðast en ekki síst – undirbúningur Íslandsferðarinnar.  Vínsmökkun hefur því mátt víkja fyrir öðru en nú er kannski hægt að bæta úr því og fjalla meira um það sem landanum stendur til boða. Hvað um [...]

Lesa meira →