Posts tagged as:

Lambakjöt

Kvöldið góða

Höfundur: Eiríkur Þann 28. mars 2009

Í gær buðum við Evu (deildarstjóranum hennar Guðrúnar) og manninum hennar í mat.  Líkt og venja er þegar við bjóðum svíum í mat (a.m.k. þegar þeir koma í fyrsta skipti) þá buðum við upp á íslenskt lambakjöt.  Á undan bauð ég upp á s.k. “minisnäckor” (litlir smjördeigssnúðar með kalkúnakjötsfyllingu) og með því drukkum við Montes Sauvignon Blanc 2007 frá Chile.  Það er frekar ljóst á lit, góður ilmur af greipaldin og ananas ásamt blómakeim.  Frísklegt í munni þar sem sítruskeimurinn kemur betur fram.  Góð kaup!

Lambalærið var marinerað með hvítlauk, timjan og rósmarín (sjá uppskrift í Landsliðsbók Hagkaupa), borið fram með “fondantes” kartöflum, gulrótarmauki, salati og villisveppasósu.  Mjög góð máltíð og með því drukkum við Seghesio Sonoma County Zinfandel 2007.  Það er vín sem ég hef beðið eftir að komast yfir og biðin var þess virði!  Dökkt og fallegt vín með frábærum ilmi af sólberjum og plómum, kryddað með ögn af fjólum.  Kröftugt vín í munni, tannín og sýra með gott jafnvægi, langt og gott eftirbragð – frábært!  Kostar ekki nema um 165 SEK.  Vínið fékk 93 punkta hjá Wine Spectator og lenti í 10. sæti á topp-100 listanum þeirra.

Í eftirrétt fengum við okkur Tiramisu, kaffi og koníak (Renault carte noir extra eins og vera ber).  Síðar um kvöldið tók ég svo upp eina Markus Molitor Wehlener Sonnenuhr Riesling Auslese** 2005 – stórkostlegt hvítvín sem fékk 97 punkta á sínum tíma.

Saman tekið var þetta mjög vel heppnað kvöld sem erfitt verður að toppa, a.m.k. á næstunni.

{ 1 comment }

Datt í lukkupottinn!

Höfundur: Eiríkur Þann 25. júlí 2008

Í gær datt ég heldur betur í lukkupottinn!

Við vorum boðin í mat til Hugrúnar og Hermanns og eins og alltaf á þeim bænum var glæsilega tekið á móti okkur.  Hemmi þóttist vera með einhverja tilraunastarfsemi á forréttinum - grilluð skötuselsspjót – en maður gæti haldið að hann gerði þetta nokkuð oft því útkoman var hreint frábær.  Síðan var boðið upp á grillað lambainnanlæri og það var líka hreinasta sælgæti.  Rúsínan í pylsuendanum var þó auðvitað vínið sem boðið var upp á – Les Tourelles de Longueville 2002 og Joseph Phelps 1996!

Longueville var þrælgott þrátt fyrir að við hefðum drukkið það nokkuð kalt (nýtekið úr vínkælinum).  Phelpsinn hins vegar var magnaður – sólber, leður, vanilla og súkkulaði í nokkuð sætum ilmi, góð fylling, þétt og gott eftirbragð.  Orðið 12 ára gamalt en hefði sjálfsagt staðið af sér nokkur ár til viðbótar (ég hefði þó ekki lagt í mikið meira en 3-5 ár).

Frábært kvöld – takk fyrir okkur!

{ 0 comments }

Don Melchor Cabernet Sauvignon 1997

06.02.2008

Ég ákvað að það væri kominn tími á þessa flösku (þó hún hafi ekki verið nema nokkrar vikur í vínskápnum) nú um helgina.  Guðrún búin að fá stöðuhækkun, frábært veður (sól og 25 stig), grillað lambakjöt og góður félagsskapur – auðvitað kallar það á gott vín. Fallega dökkt vín með góða dýpt, orðið nokkuð þroskað.  [...]

Lesa meira →

Síðasti engillinn – meira Chianti?

06.17.2007

Guðrún kom heim frá Íslandi í síðustu viku og tók með sér síðustu flöskuna af fjólubláa englinum í Fríhöfninni – kærkomin viðbót í vínkælinn minn! Annars hefur lítið verið drukkið af fínum veigum undanfarið, þrátt fyrir að ég hafi m.a. brugðið mér til Aþenu. Þó stendur til að gera á því bragarbót því fjölskyldan er [...]

Lesa meira →

Í sumarhúsi Marie Antoinette

04.20.2007

Ég var á námskeiði í Frakklandi nú í vikunni, nánar tiltekið í Versölum. Hótelið sem ég gisti á var aðeins nokkur hundruð metra frá höllinni frægu, en hótelið sjálft, Trianon palace, á sér þó merka sögu. Það var á sínum tíma byggt sem “sumarhús” fyrir Marie Antoinette og sjálfsagt verið notalegt lítið slot til að [...]

Lesa meira →

Góð þrenna

02.26.2007

Við vorum með matarboð um helgina, buðum Einari og Árdísi Brekkan í mat. Í forrétt höfðum við risarækjur með ávaxtasalsa og með því drukkum við Kloster Eberbach Riesling Spätlese 2006 frá Rheingau í Þýskalandi. Hálfþurrt vín með góðum ávaxtakeim (aðallega perur með smá hunangi), frísklegt með góðum sítruskeim. Í aðalrétt höfðum við fyllt lambalæri og [...]

Lesa meira →

Chateau de Tertre Margaux 1999

07.30.2006

Glæsilegur litur með mikla dýpt en í meðallagi dökkt.  Ristað brauð með smjöri, kaffi og eik fyrir þyrlun. Eftir þyrlun hverfur ristaða brauðið, kaffi og eik verða meira áberandi. Einnig grænn pipar, leður, súkkulaði, fersk paprika og vanilla. Mild en margslungin lykt með gott jafnvægi.  Vín í mjög góðu jafnvægi með keim af kaffi, leðri [...]

Lesa meira →

Antinori Santa Cristina 1998

06.23.2002

Þetta er ungt vín, fallega rautt, ekki mjög dökkt, sæmileg dýpt. Í lyktinni er mikill ávöxtur, pipar og blómaangan. Létt og skemmtileg lykt og dæmigerð fyrir Sangiovese. Í munni dálítil sýra, létt tannín, mikill ávöxtur og þokkalegt eftirbragð. Hæfir vel með grilluðu lambakjöti, pizzum og pasta. Tímaritið WineSpectator gefur 1998 árgangnum einkunnina 83 og þessa [...]

Lesa meira →

Tenute Marchesi Antinori Chianti Classico Riserva 1999

03.01.2002

Vínið er blandað úr 90% Sangiovese og 10% Cabernet Sauvignon og öðrum rauðum þrúgum sem valdar eru af Santa Cristina, Peppoli og Badia a Passignano vínekrum á Mercatele Val di Pesa svæðinu í Chianti Classico, en það eru bestu vínekrur Antinori-fyrirtækisins. Fallega rautt vín, þokkaleg dýpt en er ennþá með rönd æskunnar. Indæl angan af [...]

Lesa meira →

Tenute Marchesi Antinori Chianti Classico Riserva 1997

03.01.2001

Vín mánaðarins í mars 2001 heitir því langa nafni Tenute Marchesi Antinori Chianti Classico DOCG Riserva 1997 og kemur frá sjálfum Marchesi Antinori. Vínið er blandað úr 90% Sangiovese og 10% Cabernet Sauvignon og öðrum rauðum þrúgum sem valdar eru af Santa Cristina, Peppoli og Badia a Passignano vínekrum á Mercatele Val di Pesa svæðinu [...]

Lesa meira →