Posts tagged as:

Lambakjöt

Peter Lehmann Seven Surveys 1997

02.01.2001

Þetta vín er úr nokkuð óvenjulegri blöndu sem hefur þó verið að ryðja sér til rúms, einkum í Ástralíu, þ.e. Mourvèdre, Shiraz og Grenache (stundum kallað Mataro) – GSM, en þessar þrúgur þrífast mjög vel í Barossa-dalnum í Ástralíu. Nafn vínsins, Seven Surveys, er til heiðurs fyrstu landnemunum sem settust að í Barossa árið 1842. [...]

Lesa meira →

Lindemans Coonawarra Pyrus 1992

01.01.2001

Þetta var alveg meiri háttar vín, þykkt og kröftugt. Sólberin voru sterk í lyktinni en einnig pipar og það var útihúsakeimur inn á milli. Piparinn og lakkrísinn voru fremst í flokki í bragðinu, tannínin mjúk og vínið í frábæru jafnvægi – alveg á toppnum. Tímaritið WineSpectatorgefur 1994 árgangnum einkunnina 88 og þessa umsögn: “Firm and [...]

Lesa meira →

Penfolds Kalimna Bin 28 Shiraz 1998

01.01.2001

Dökkt vín, þokkaleg dýpt, byrjandi þroski. Fín angan af leðri, eik, lakkrís og ögn af plómum, dálítið lokuð lykt. Silkimjúk tannín, sýra rétt yfir meðallagi, gott eftirbragð en örlítið rammt í lokin. Fer vel með nauti og grilluðu lambi. Einkunn: 7,5

Lesa meira →