Posts tagged as:

Lax

Rolling Chardonnay

by Eiríkur on 12. desember 2009

Í gær var kósíkvöld hjá fjölskyldunni – góður matur og gott kvöld framundan fyrir framan imbann.  Það byrjaði reyndar með því að eldri dóttirinn reyndist vera lasin og komin með 40 stiga hita.  Hún var því heldur framlág en náði þó takmarkinu – að horfa á lokakvöldið í hinu sænska Idol þar sem hetjan hennar bar sigur úr býtum.  Hún missti hins vegar af laxinum – pönnusteiktur, borinn fram með ofnsteiktu rótarávöxtum og kartöflum.  Með laxinum drukkum við Rolling Unoaked Chardonnay 2008.  Þetta er ástralskt vín sem, líkt og nafnið bendir til, hefur ekki verið sett á eikartunnur.  Útkoman er nokkuð frísklegt vín með angan af ananas og sítrusávöxtum.  Ágætis hvítvín sem kostar bara 72 SEK.  Einkunn: 7,0 – Góð Kaup.

rolling chardonnay

{ 0 comments }

De Bortoli Shiraz 2008

by Eiríkur on 14. nóvember 2009

Í gær vorum við boðin í afríkanskan laxapottrétt hjá Keizaranum.  Ég kippti með einni De Bortoli Shiraz 2008 sem ég hafði keypt í gær, ekki vegna þess að ég taldi hana passa svo vel við laxinn (út frá því sjónarmiði hefði verið betra að taka með góða Chardonnay) heldur einfaldlega af því að mig langaði til að smakka hana!  Þetta er auðvitað mjög ungt vín að sjá, ekki mikil dýpt en kannski ekki við því að búast heldur.  Í nefinu einkum pipar og skógarber sem skila sér í munninn.  Sýran aðeins of mikil, ekki of mikil tannín, sæmileg fylling og þokkalegt eftirbragð.  Í heildina sér þokkalegasta hversdagsvín – Einkunn: 7,0 – Góð Kaup! Flaskan kostaði ekki nema 69 SEK og maður fær því nokkuð mikið fyrir peninginn (fékk 86 punkta hjá Wine Spectator).

De Bortoli Shiraz

{ 0 comments }

Kominn heim, árinu eldri!

10.10.2009

Þá er Falu-dvölinni lokið í bili, fer reyndar aftur þangað í lok nóvember.  Þessi vika var frekar róleg – ég fór ekkert út að borða, ekki einu sinni á afmælinu mín en þá var ég reyndar boðinn í mat hjá Þorsteini Ástráðssyni og Berglindi Árnadóttur.  Þau buðu upp á Tikka-lax að hætti Jamie Oliver, sem [...]

Lesa meira →

Laxinn og risottoið

09.18.2009

Ég er nokkuð ánægður með mig núna!  Ég eldaði lax (ofnsteiktur við lágan hita – með mango chutney og pistasíuhnetum) og risotto (mitt venjulega risotto) og var ákaflega ánægður með útkomuna, þ.e.a.s. ég er vel saddur núna.  Með þessu drukkum við ekki Joseph Drouhin Chablis eins og áður var getið, heldur Olivier Leflaive Les Sétilles [...]

Lesa meira →

Þetta ættuð þið ekki að drekka!

09.18.2009

Um daginn villtist Viña Maipo Cabernet Sauvignon inn til okkar (sænskur nágranni kom með það).  Í gær ákvað ég að smakka og í stuttu máli sagt þá var víninu hellt niður eftir tvo sopa!  Súr óþverri, svona eins og gamall krækiberjasafi.  Lesendum er hér með bent á að forðast þennan óþverra!
Í kvöld ætla ég hins [...]

Lesa meira →

Góður Guigal

02.22.2009

Á föstudaginn eldaði ég ofnbakaðan lax á grænmetisbeði og svepparisotto.  Tókst auðvitað alveg stórkostlega vel og með þessu drukkum við E. Guigal Condrieu 2005 – hreint Viognier líkt og svo mörg önnur hvít rónarvín.  Gullið vín og fallegt í glasi.  Sítrusaldin (einkum greip), eik, smá krydd og steinefnakeimum, fjólur og möndlur – seiðandi ilmur!  Í [...]

Lesa meira →

Jordan, mmm…!

06.21.2007

Á morgun liggur leiðin til Ítalíu og við ákváðum að taka því rólega í kvöld, keyptum dálítið sushi til að borða sem kvöldsnakk og þá er ómissandi að fá sér hvítvín með. Fór því í systemið (sænska Ríkið) og rakst á Jordan Stellenbosch Chardonnay 2006. Ég hef aldrei smakkað það áður en hef [...]

Lesa meira →

Guigal-veislan

06.06.2007

Ég komst í fína Guigal-veislu um daginn. Einar Brekkan bauð mér í mat ásamt finnskum kunningja sínum sem er mikill vínsérfræðingur. Þar var m.a. boðið upp á ýmis Guigal vín og aðra eins veislu hef ég ekki komið í síðan Hermann og Hugrún voru í heimsókn (reyndar bara 3 vikur síðan!). Í [...]

Lesa meira →

Domaine Laroche Grand Cru Les Blanchots 1999

02.07.2006

Mjög ljóst, góð dýpt, fallegt vín.  Ananas, vanilla, pipar, sítrus, blýantur, ávaxtahlaup, einföld lykt.  Sæmileg fylling, gott jafnvægi, gott eftirbragð sem heldur sér vel. Laxavín!
Einkunn: 7,0

Lesa meira →

Caliterra Chardonnay 1999

05.06.2001

Vín mánaðarins í maí 2001 er Chardonnay árg. 1999 frá Caliterra í Chile, en það fyrirtæki er samstarfsverkefni Eduardo Chadwick og sjálfs Roberts Mondavi, sem hefur verið iðinn við að stofna til samstarfsverkefna með vínframleiðendum hvaðanæva að úr heiminum, og nægir að benda á Opus One, sem er samstarfsverkefni Mondavo og Rothschild-ættarinnar frönsku. Ég smakkaði [...]

Lesa meira →