Posts tagged as:

Lax

Caliterra Chardonnay 1999

05.06.2001

Vín mánaðarins í maí 2001 er Chardonnay árg. 1999 frá Caliterra í Chile, en það fyrirtæki er samstarfsverkefni Eduardo Chadwick og sjálfs Roberts Mondavi, sem hefur verið iðinn við að stofna til samstarfsverkefna með vínframleiðendum hvaðanæva að úr heiminum, og nægir að benda á Opus One, sem er samstarfsverkefni Mondavo og Rothschild-ættarinnar frönsku. Ég smakkaði [...]

Lesa meira →

Pierre Frick Gewurztraminer 1992

01.01.2001

Gul slikja utan á víninu. Í nefinu pera, mikið krydd og mikill ávöxtur, jafnvel púðurreykur! Nokkuð kröftugt kryddbragð, jafnvel aggressíft í munni. Í góðu jafnvægi við ávöxtinn. Eftirbragðið mjúkt og gott. Vín sem hentar með feitum fiski, t.d. laxi, lúðu eða bara eitt og sér.

Lesa meira →

Niebaum-Coppola Francis Coppola Family Wines Chardonnay 1997

01.01.2001

Francis Ford Coppola er einn af meisturum kvikmyndanna og hann er einnig að skipa sér sess sem einn af meisturum víngerðar í Kaliforníu með Rutherford Rubicon og Fjölskylduvínum Coppola. Fjölskylduvínin voru upphaflega aðeins ætluð vinum og vandamönnum Coppola en hafa verið í almennri sölu undanfarin ár. Hann keypti Inglenook-vínsetrið árið 1975, gamalt og gróið fyrirtæki [...]

Lesa meira →