by Eiríkur on 10. janúar 2010
Jæja, þá er komið að því að útnefna vín ársins 2009. Nokkuð mörg vín komu til álita að þessu sinni, flest þeirra í ódýrari kantinum, enda árið 2009 sannkallað kreppuár hjá neytendum en góðæri hjá mörgum framleiðendum sem hingað til hafa einkum framleitt vín í ódýrari kantinum.
Amalaya de Colomé 2007 kemur frá Calchaqui-dalnum í Argetínu, blanda Malbec, Cabernet Sauvignon, Syrah og Tannat. Dökkrautt og fallegt vín, áberandi plómur, lakkrís og kúrennur. Ódýrt og gott vín. Einkunn: 8,5 – Frábær kaup! (Verð 1990 ISK / 82 SEK)
Antinori Tignanello 2006 er frábær ofur-Toskani, og 2006-árgangurinn einn sá allra besti í sögu Tignanello. Dökkrautt með mikla dýpt, þéttur ilmur af sólberjum og kaffi ásamt örlitlum ávaxtakeim. Mikil og góð fylling, mikil en þó mjúk tannín og dásamlega langt eftirbragð. Einkunn: 9,0 – Góð Kaup! (Verð 6699 ISK (Fríhöfn) / 499 SEK)
Dr. Loosen Riesling QbA Mosel-Saar-Ruwer Dr. L 2008 er létt og skemmtilegt riesling-vín, hálfsætt með keim af mangó og apríkósum. Ódýrt og skemmtilegt vín. Einkunn: 8,5 – Frábær Kaup! (Verð – ISK / 79 SEK)
Bodega Catena Zapata Malbec Mendoza 2007 er pottþétt vín frá Argentínu með angan af kaffi, dökku súkkulaði og hindberjum, ásamt vott af plómum. Góð fylling og eftirbragð. Einkunn: 8,5 – Frábær Kaup! (Verð 2697 ISK / 119 SEK)
Vín ársins 2009 er hins vegar Peter Lehmann Shiraz Barossa 2006. Þetta er frábært vín með plómum, sólberjum og kirsuberjum, ásamt vott af súkkulaði og tóbaki. Góð fylling, mikil tannín til staðar en í góðu jafnvægi við sýruna. Langt og gott eftirbragð. Einkunn: 9,0 – Frábær Kaup! (Verð 2698 ISK / 119 SEK)

by Eiríkur on 18. október 2009
Já, það er skömm frá að segja en ég hreinlega gleymdi að panta mér Bordeaux 2006 í síðustu viku! Valið stóð helst á milli Talbot, Léoville-Barton og Chasse-Spleen en nú verð ég að bíða fram í lok næstu viku til að sjá hvort það sé eitthvað eftir handa mér. Ég var reyndar orðinn pínu þreytt, enda búinn að vera á næturvöktum alla vikuna og var einmitt á leið í vinnuna þegar ég mundi eftir þessu, en svona er þetta nú bara. Sem betur fer var þetta ekki annar 2005-árgangur – þá hefði maður jafnvel tekið frí frá vinnu til að ganga frá pöntuninni.
Ég fór þó í ríkið á föstudaginn og keypti mér Chateau Mont-Redon Chateauneuf-du-Pape 2005. Þetta var ágætisvín, kannski örlítið daufara en ég hafði gert mér vonir um. Líkt og mörg önnur Rónarvín er það að mestu leyti gert úr Grenache (65%), Syrah (15%) og Cinsault (10%), en nokkrar aðrar þrúgur hafa líka slæðst með. Það hefur dálítið blautan eikarkeim, ber og lakkrís í annars dálítið fátæklegri lykt. Í munni nokkuð gott jafnvægi þar sem áðurnefnd lyktar- og bragðelement koma ágætlega fram ásamt smávegis pipar. Sæmilegt eftirbragð. Einkunn: 6,5 – pínulítil vonbrigði með þetta vín þar sem ég borgaði 234 SEK fyrir það.
Ég keypti líka Ný-Sjálenskt rauðvín sem heitir Wild Rock Gravel Pit Red 2008, blanda Merlot og Malbec, og ég held örugglega að þetta sé í fyrsta sinn sem ég smakka slíka blöndu. Þetta er unglegt vín að sjá, ilmur af eik, plómum, myntu og súkkulaði sem skila sér í bragðinu, sem er nokkuð tannískt og skortir aðeins upp á sýru til að vega upp á móti tannínunum. Ágætis hversdagsvín og mun betri kaup en frakkinn sem ég fjallaði um hér að ofan. Einkunn: 6,5 – kostar 99 SEK.