Posts tagged as:

Marlborough

Sushi, afmæli og heimsóknir

Höfundur: Eiríkur Þann 31. janúar 2010

Síðastliðin vika var frekar róleg hjá okkur. Guðfinna Ósk átti afmæli í gær og vikan fór að nokkru leyti í það að undirbúa veisluna. Von var á 15 gestum og eftirvæntingin mikil. Því miður þurfti þó að aflýsa heimsókninni á síðustu stundu þar sem ælupest skaut upp kollinum. Það breytti þó ekki því að við áttum ágæta helgi að öðru leyti. Guðjón vinur okkar kom í heimsókn – fyrsta skipti sem hann kemur til Uppsala. Það var því tvöfalt tilefni til að gera sér dagamun.

Guðfinna Ósk hafði óskað eftir nautalund (blóðugri!) í mat á afmælisdaginn sinn, en við ákváðum reyndar að hafa lundina daginn áður, enda líklegt að allir yrðu nokkuð saddir eftir kökuát og því lítið pláss fyrir nautasteik.  Með nautinu bauð ég upp á fondantes kartöflur, villisveppasósu og salat.  Með því drukkum við Tignanello 2005 – stórfenglegt vín að öllu leyti!  Fallega dökkt með mikla dýpt, ilmur af eik, leðri og sólberjum.  Nokkuð tannískt með góða fyllingu og langt og gott eftirbragð.  Einkunn: 9,0 – Góð Kaup! Eftir matinn fengum við okkur súkkulaði og Tommasi Amarone 2005.  Mjög gott amaronevín, dökkt og fallegt í glasi, hnausþykkur ilmur af rúsínum og fjólum.  Góð fylling og eftirbragð sem endist lengi. Einkunn: 8,5 – Góð Kaup!

Eins og áður sagði þurftum við að fresta afmælisveislunni þegar yngri dóttirin fékk ælupest, sem blessunarlega gekk fljótt yfir án þess að nokkur annar hafi veikst (enn sem komið er…).  Við ákváðum því að fá okkur sushi (McDonalds fyrir dæturinar) og með því drukkum við Saint Clair Marlborough Riesling 2008.  Það er ljósgult vín, ilmur af melónum og apríkósum, dálítið þurrt (svona mitt á milli þess að vera þurrt og hálfsætt) og passaði vel með sushinu.  Einkunn: 7,0. Við opnuðum svo að lokum eina Brancaia Tre 2007 - frábært vín sem ég hef áður farið lofsamlegum orðum um hér á Vínsíðunni.

{ 0 comments }

Fish Market

Höfundur: Eiríkur Þann 25. júní 2009

Fyrir rúmri viku fórum við á veitingastaðinn Fish Market við Aðalstræti.  Með í för voru Brekkan-hjónin ásamt nokkrum svíum, alls 11 manna hópur.  Við höfðum sammælst um að taka hópmatseðilinn, sem er s.k. tasting menu (hvað kallast slíkt á íslensku?) með 9 réttum.  Við fengum m.a. svínarif, krabbakjöt, sushi och sashimi, lax, wasabisallat ásamt fleiri réttum.  Flestir voru réttirnir mjög góðir og gestirnir voru sammála um að þetta hafi verið mjög vel heppnað kvöld.  Upphaflega ætluðum við bara að vera 8 og borðið pantað miðað við þann fjölda.  Smám saman bættist í hópinn og á endanum urðum við ellefu, en það var ekkert mál að bæta við nokkrum gestum!  Staðurinn var fullsetinn, en þjónustan var þó til fyrirmyndar.  Eini gallinn við staðinn er að það er mjög hljóðbært og því nokkuð mikill hávaði í salnum þegar hann er fullsetinn.  Matseðilinn sá ég eiginlega aldrei (við vorum jú búin að ákveða matinn fyrirfram) en vínseðillinn var nokkuð góður – ódýrustu vínin voru á rúmar 5.000 kr en einnig var hægt að fá alvöru bolta ef maður var tilbúinn að reiða fram hærri upphæðir!

Við fengum okkur Saint Clair Sauvignon Blanc 2007 og Saint Clair Pinot Noir 2007 frá Marlborough á Nýja-Sjálandi.  Sauvignon blanc er unglegt vín með epla- og stikilsberjakeim, frísklegt í munni með góðri sýru og í góðu jafnvægi.  Góð kaup.  Pinot noir var unglegur að sjá með berja- og kryddkeim, sýran aðeins yfir meðallagi og þokkalegt eftirbragð.

Ánægjuleg kvöldstund á góðum veitingastað sem ég væri alveg til í að endurtaka!

St. Clair sauvignon blanc og Pinot noir

{ 0 comments }