Posts tagged as:

Mendoza

Vín ársins!

by Eiríkur on 10. janúar 2010

Jæja, þá er komið að því að útnefna vín ársins 2009.  Nokkuð mörg vín komu til álita að þessu sinni, flest þeirra í ódýrari kantinum, enda árið 2009 sannkallað kreppuár hjá neytendum en góðæri hjá mörgum framleiðendum sem hingað til hafa einkum framleitt vín í ódýrari kantinum.

Amalaya de Colomé 2007 kemur frá Calchaqui-dalnum í Argetínu, blanda Malbec, Cabernet Sauvignon, Syrah og Tannat.  Dökkrautt og fallegt vín, áberandi plómur, lakkrís og kúrennur.  Ódýrt og gott vín. Einkunn: 8,5 – Frábær kaup! (Verð 1990 ISK / 82 SEK)

Antinori Tignanello 2006 er frábær ofur-Toskani, og 2006-árgangurinn einn sá allra besti í sögu Tignanello.  Dökkrautt með mikla dýpt, þéttur ilmur af sólberjum og kaffi ásamt örlitlum ávaxtakeim.  Mikil og góð fylling, mikil en þó mjúk tannín og dásamlega langt eftirbragð.  Einkunn: 9,0 – Góð Kaup! (Verð 6699 ISK (Fríhöfn) / 499 SEK)

Dr. Loosen Riesling QbA Mosel-Saar-Ruwer Dr. L 2008 er létt og skemmtilegt riesling-vín, hálfsætt með keim af mangó og apríkósum.  Ódýrt og skemmtilegt vín.  Einkunn: 8,5 – Frábær Kaup! (Verð – ISK / 79 SEK)

Bodega Catena Zapata Malbec Mendoza 2007 er pottþétt vín frá Argentínu með angan af kaffi, dökku súkkulaði og hindberjum, ásamt vott af plómum.  Góð fylling og eftirbragð.  Einkunn: 8,5 – Frábær Kaup! (Verð 2697 ISK / 119 SEK)

Vín ársins 2009 er hins vegar Peter Lehmann Shiraz Barossa 2006. Þetta er frábært vín með plómum, sólberjum og kirsuberjum, ásamt vott af súkkulaði og tóbaki.  Góð fylling, mikil tannín til staðar en í góðu jafnvægi við sýruna.  Langt og gott eftirbragð.  Einkunn: 9,0 – Frábær Kaup! (Verð 2698 ISK / 119 SEK)

Peter Lehmann Shiraz 2006

{ 0 comments }

Ísvín frá Argentínu?

by Eiríkur on 24. ágúst 2009

Yfirleitt sér maður Argentínu fyrir sér sem hlýtt og sólríkt land, en þarlendir vínframleiðendur hafa verið að prófa sig áfram með ísvín (eiswein) og nú hefur annar árgangurinn litið dagsins ljós.  Um er að ræða sætt Malbec-vín frá Las perdices í Mendoza-héraði.  Framleiðslan er um 10.000 flöskur og megnið af því er selt innanlands.  Eitthvað hefur þó ratað í útflutning, einkum til Bandaríkjanna og sennilega verður bið á því að við fáum að sjá Argentískt ísvín í hillum Vínbúða ÁTVR.

{ 0 comments }

Ágætt vín frá Argentínu

04.21.2007

Nágrannar okkar gáfu okkur argentískt vín þegar þau komu í grill um síðustu helgi – Santa Ana Reserve Shiraz-Malbec 2005. Vínið kemur frá Mendoza-dalnum í Argentínu og þetta er í fyrsta skipti sem ég smakka Shiraz-Malbec blöndu og hún er hreint ekki svo vitlaus!
Þetta er fallega rautt vín, þokkalega dökkt en þó ekki mikil [...]

Lesa meira →

Bodegas y Cavas de Weinert Mendoza Malbec 1997

01.01.2001

Bragðmikið og þroskað¸ með bökuðum keim. (ÁTVR)
Moldarkeimur, útihús og eik. Sýra yfir meðallagi, sæmilegt eftirbragð. Óspennandi vín.
Einkunn: 5,0

Lesa meira →

Bodegas Y Cavas de Weinert Mendoza Malbec 1996

01.01.2001

Þetta vín er miðlungsdökkt, hefur litla dýpt en hefur náð þokkalegum þroska. Eik, dálítil sýra, pipar og leður. Nokkuð gróf tannín, sýra yfir meðallagi, frekar rislítið og óspennandi vín.
Einkunn: 4,0

Lesa meira →

Bodegas Y Cavas de Weinert Mendoza Carrascal 1997

01.01.2001

Frekar bragðmikið¸ kryddað¸ nokkuð stamt. (ÁTVR)
Fremur rausnarleg lýsing á mjög svo óspennandi víni sem tekur bara hillupláss frá öðrum vínum eiga meira heima í hillum ÁTVR.
Einkunn: 4,0

Lesa meira →

Chateau Meyney St. Estephe 1994

01.01.2001

Byrjandi þroski, ríflega meðaldökkt, góð dýpt. Þegar glasið er borið að nefi kemur fram kaffi, eik, mynta, blýantur, lakkrís, pipar og leður. Bragðið er þægilegt, sýra aðeins yfir meðallagi, eftirbragðið stutt.
Einkunn: 6,0

Lesa meira →