Posts tagged as:

Mentor

Nokkrar góðar komnar í hús

by Eiríkur on 23. maí 2010

Vínkælirinn minn hefur tútnað dálítið út síðustu daga.  Ég fékk mínar þrjár flöskur af Dow’s 2007 árgangspúrtvíni og stefni að því að prófa eina flöskuna eftir 10 ár eða svo!  Þetta er besta púrtvín sem hefur komið frá Dow’s og það er ekki á hverju ári að púrtvíni fái fullt hús stiga hjá Wine Spectator.  Um daginn var svo hringt í mig frá vínbúðinni minni.  Þeir voru að taka til í hillunum sínum og fundu þá nokkrar flöskur af Casa Lapostolle Clos Apalta 2007 sem ég hafði pantað fyrir mig og Einar Brekkan.  Ég hafði aldrei fengið boð um að vínið hefði komið og var eiginlega búinn að afgreiða þetta sem svo að pöntunin hefði misfarist.  Nú er tvær slíkar flöskur komnar inn í kælinn minn og ástand hans er alveg einstaklega gott!

Í gær var auðvitað úrslitaleikur Meistaradeildarinnar og við hittumst félagarnir heima hjá dr. Leifssyni til að horfa á leikinn.  Ég hafði hitað upp fyrir leikinn með því að fara með eldri dótturina á fótboltamót þar sem þær náðu góðum árangri – einn sigur og eitt jafntefli.  Svo grillaði ég lambalæri (kryddað með blöndu af fersku timjan, rósmarín, hvítlauk, salti og pipar) og var ákaflega ánægður með útkomuna.  Með þessu drakk ég Peter Lehmann Cabernet Sauvignon Mentor 2004.  Mjög gott vín sem var orðið ágætlega þroskað – góður keimur af berjum og kryddi, mjúk tannín og þétt eftirbragð sem entist nokkuð lengi.  Passaði vel með lærinu!  Úrslit leiksins voru svo ekki alveg eins og við höfðum óskað okkur, en Keizarinn og Dr. Leifsson eru báðir mjög harðir stuðningsmenn FC Bayern (ekki Bayern Munchen eins og svo margir segja, heldur á segja FC Bayern – a.m.k. gera menn svo í Munchen).  Við náðum þó að prófa nokkrar tegundir af þýskum bjór og vonandi get ég greint betur frá þeim athugunum síðar, en dr. Leifsson hélt utanum bókhaldið og hér með er óskað eftir afriti af þeim niðurstöðum!

Ég er á leið til Falun í kvöld og get þá kannski laumað inn 1-2 færslum…

{ 0 comments }

Jólaævintýri ritstjórans

by Eiríkur on 7. janúar 2010

Við brugðum undir okkur betri fætinum og héldum til Íslands yfir jól og áramót – í fyrsta skipti síðan 2002 að við höldum jól og áramót á Íslandi.  Ferðin var þó hálf endasleppt því ég var kominn með hita nóttina fyrir brottför, var hundslappur um morguninn og nánast eins og liðið lík þegar við lentum á Íslandi.  Síðan lá ég í bælinu yfir jólin og endaði að lokum á sjúkrahúsi með veirusýkingu í hjartavöðvanum!  Ég var þó útskrifaður rétt fyrir áramót (rétt slapp við hjartaþræðingu!) og náði að fagna áramótunum á Selfossi hjá mömmu og pabba.  Það voru þó ekki mikil hátíðahöld hjá mér en þó snöggtum skárra en að vera á sjúkrahúsi yfir áramót! Ferðin heim var öllu þægilegri og nú þarf ég bara að taka því rólega næstu vikurnar.

Ég náði þó að kaupa mér pínulítið rauðvín í Fríhöfninni (tvær Tignanello, tvær Les Tourelles de Longueville og eina Peter Lehmann Mentor).  Nú ætla ég að reyna að taka saman árið 2009 á Vínsíðunni og útnefna vín ársins.  Líkt og áður hefur enginn komið með tillögu að víni ársins þannig að ég hef nokkuð frjálsar hendur með þetta.  Svo er ég að hugsa um hvort ég eigi að breyta aðeins einkunnagjöfinni hjá mér, kannski að færa hana í svipaðan stíl og Wine Spectator eða amaroneguiden.se, jafnvel með einhverri grafík fyrir hverja umsögn.  Allar athugasemdir um þetta eru vel þegnar.

{ 0 comments }

Vín með hreindýri

01.22.2009

Guðjón vinur minn hafði samband við mig í gær og leitaði ráða varðandi val á víni með hreindýrasteik.  Hann og Dóri vinur hans ætla að bjóða konunum sínum upp á þríréttaða veislumáltíð og eftir að hafa heyrt matseðilinn fékk ég sko vatn í munninn.  Meðal annars ætla þeir að elda hreindýrasteik og með slíku lostæti [...]

Lesa meira →