Posts tagged as:

Montes Alpha

Villibráðarveisla veðurfræðingsins

Höfundur: Eiríkur Þann 16. júlí 2010

Um síðustu helgi vorum við boðin í villibráðarveislu í saumaklúbbnum hennar Guðrúnar.  Óli veðurfræðingur sá um kjötið – grillað hreindýr og gæs – og ég verð að segja að betri villibráð hef ég varla fengið!  Kjötið var svo meyrt að maður hefði nánast getað borðað það með skeið!  Kristó var maðurinn á bak við skötuselinn sem var marineraður og grillaður á teini.  Nonni kom með grænfóðrið og það kom allt úr garðinum hans uppi á Skaga.  Kalli sá um eftirréttinn og Doddi lagði til húsnæði.  Ég kom með vínið og bauð upp á Montes Alpha Cabernet Sauvignon 2007 og Beringer Napa Valley Sauvignon Blanc 2007.  Montes Alpha var ávaxtaríkt (sólber og kirsuber), sæmilega tannískt með mjúkri eik, frísklegt og féll vel að grillaðri villibráðinni.  Einkunn: 7,5 – Góð Kaup! Beringer var frísklegur með góðum sítrus- og ananaskeim.  Ágætis fylling og gott eftirbragð.  Smellpassaði við skötuselinn.  Einkunn: 7,5 – Góð Kaup!

Af ýmsum ástæðum náðum við ekki að heimsækja alla þá sem við ætluðum að heimsækja í þessari Íslandsheimsókn og allir þeir sem eiga í hlut eru beðnir velvirðingar á því – við bætum úr því næst!

Nú er ég kominn heim í hitabylgjuna og tekinn til við nýjungina sem ég tók upp á í fyrra – bjórsmökkun!  Ég er búinn að kaupa ýmsar nýjar tegundir, þar á meðal ýmislegt sem mér myndi annars aldrei detta í hug að prófa.  Nánar um það síðar.

{ 0 comments }

Mmmm… “M”

Höfundur: Eiríkur Þann 10. janúar 2009

Í gær langaði okkur í góðan mat og gott vín.  Við buðum því Keizaranum og fjölskyldu hans í mat – Roastbeef með þreföldum piparhjúp og timjan ásamt rösti-kartöflum og skógarsveppasósu.  Algjört lostæti og með því þurfti auðvitað gott vín!  Fyrir valinu varð Montes Alpha “M” 2004. Vínið er frá Colchagua í Chile og er blanda Cabernet Sauvignon (80 %), Merlot (10 %), Cabernet Franc (5%) og Petit Verdot (5 %).  Mjög dökkt vín með mikla dýpt.  Enn sem komið er nokkuð lokuð lykt – leður og eik, smá ávöxtur en ekki mikið meira.  Í munni ákaflega mjúkt með mjög góða fyllingu, mikil tannín en samt með silkiáferð – frábært jafnvægi.  Springur út í munninum með ögn af eik og dökku súkkulaði.  Langt og gott eftirbragð.  Frábært vín sem hægt er að njóta núna eða geyma í nokkur ár til viðbótar (spjarar sig eflaust ágætlega í 10-15 ár!).

Montes Alpha M

{ 0 comments }

Sushi og Chile

11.09.2007

Í kvöld fengum við okkur (eins og svo oft áður) sushi frá Ayako’s sushi í Uppsölum. Með því prófuðum við Montes Alpha Casablanca Valley Chardonnay 2005. Vínið er í reynslusölu í vínbúðinni “minni” og ég ákvað að slá til. Þetta er hið ágætasta vín. Nokkuð einfaldur eikar- og sítrusilmur sem skilar sér yfir í munninn [...]

Lesa meira →