Posts tagged as:

Napa-Valley

Villibráðarveisla veðurfræðingsins

Höfundur: Eiríkur Þann 16. júlí 2010

Um síðustu helgi vorum við boðin í villibráðarveislu í saumaklúbbnum hennar Guðrúnar.  Óli veðurfræðingur sá um kjötið – grillað hreindýr og gæs – og ég verð að segja að betri villibráð hef ég varla fengið!  Kjötið var svo meyrt að maður hefði nánast getað borðað það með skeið!  Kristó var maðurinn á bak við skötuselinn sem var marineraður og grillaður á teini.  Nonni kom með grænfóðrið og það kom allt úr garðinum hans uppi á Skaga.  Kalli sá um eftirréttinn og Doddi lagði til húsnæði.  Ég kom með vínið og bauð upp á Montes Alpha Cabernet Sauvignon 2007 og Beringer Napa Valley Sauvignon Blanc 2007.  Montes Alpha var ávaxtaríkt (sólber og kirsuber), sæmilega tannískt með mjúkri eik, frísklegt og féll vel að grillaðri villibráðinni.  Einkunn: 7,5 – Góð Kaup! Beringer var frísklegur með góðum sítrus- og ananaskeim.  Ágætis fylling og gott eftirbragð.  Smellpassaði við skötuselinn.  Einkunn: 7,5 – Góð Kaup!

Af ýmsum ástæðum náðum við ekki að heimsækja alla þá sem við ætluðum að heimsækja í þessari Íslandsheimsókn og allir þeir sem eiga í hlut eru beðnir velvirðingar á því – við bætum úr því næst!

Nú er ég kominn heim í hitabylgjuna og tekinn til við nýjungina sem ég tók upp á í fyrra – bjórsmökkun!  Ég er búinn að kaupa ýmsar nýjar tegundir, þar á meðal ýmislegt sem mér myndi annars aldrei detta í hug að prófa.  Nánar um það síðar.

{ 0 comments }

Robert Mondavi Napa Valley Cabernet Sauvignon Unfiltered 1997

Höfundur: Eiríkur Þann 1. október 2001

Auga: Miðlungs dýpt, góður þroski, rauðbrún rönd.
Nef: Fremur lokuð þrátt fyrir umhellingu, eik, leður, aðalbláber, kaffi.
Munnur: Silkimjúkt, mikil fylling og langt og frábært eftirbragð.

Einkunn: 9,0

{ 0 comments }

Robert Mondavi Napa Valley Cabernet Sauvignon 1997

09.01.2001

Vín mánaðarins í september 2001 er Cabernet Sauvignon frá ókrýndum konungi bandarískrar víngerðar – Robert Mondavi. Vínklúbburinn smakkaði þetta vín í byrjun september og voru allir sammála um að hér væri á ferðinni úrvalsvín sem þó ætti mörg góð ár inni og væri í raun tilvalið að sanka að sér nokkrum flöskum og leggja til [...]

Lesa meira →

Beringer Private Reserve Cabernet Sauvignon 1995

05.04.2001

Dökkt vín en unglegt, sæmileg dýpt. Lyktar af tóbaki, leðri, lakkrís, karamellu og amerískri eik. Góð fylling, mikil tannín en góð sýra vegur upp á móti þeim. Gott eftirbragð. Einkunn: 8,0

Lesa meira →

Beringer Napa Valley Sauvignon Blanc 1998

01.01.2001

Ljóst/fölgult, nokkur dýpt. Í nefið kemur fyrst smjör og perubrjóstsykur, en síðan læðast fram nýslegið gras, sítróna, múskat, vægur útihúsakeimur við þyrlun, lax??? Vínið veitir góða fyllingu í munni, dálítið kryddað en milt, eplakeimur, gott eftirbragð en örlar aðeins á spíra í lokin. Frábært sumarvín, eitt og sér eða með salati og myndi einnig ganga [...]

Lesa meira →

Beringer Napa Valley Cabernet Sauvignon 1997

01.01.2001

Dökkt, ungt, sæmileg dýpt. Sólber, kaffi og eik, ögn af vanillu, frekar lokuð lykt. Mjög tannískt, jafnvel rammt, hrat. Góð fylling, skortir ögn á sýruna. Ágætt eftirbragð. Gott á grillið. Einkunn: 7,0 – Góð Kaup

Lesa meira →

Beringer Napa Valley Cabernet Sauvignon 1996

01.01.2001

Þetta vín er í miklu uppáhaldi hjá mér og mínum vinum. Þegar ég smakkaði þetta vín var það nokkuð ungt en byrjandi þroski, þokkalega dökkt og ágæt dýpt. Lyktin nokkuð einföld – eik, sólber, vottar fyrir leðri og pipar. Vínið er í góðu jafnvægi, með ágæta sýru og eik, mjúkt og ljúffengt, og eftirbragðið endist [...]

Lesa meira →

Robert Mondavi Napa Valley Oakville Cabernet Sauvignon 1997

01.01.2001

Auga: Fallega rautt en þó aðeins skýjað. Nokkuð þroskað að sjá og allgóð dýpt. Nef: Sæt berjasulta, leður og eik. Lykt af alkahóli og lakkrís í bakgruninum. Dálítið lokuð, en margslungin lykt. Munnur: Kröftugt og ávaxtaríkt. Mjög mikil fylling og er tilfiningin sú að vínið fylli út í allan munninn. Langt og kröftugt eftirbragð með [...]

Lesa meira →

Opus One 1996

01.01.2001

Vín mánaðarins í maí 2000 er Opus One frá samnefndum víngarði í Napa í Kaliforníu. Það er samstarfsverkefni tveggja risa í vínheiminum – Robert Mondavi, eins frægasta víngerðarmanns í Kaliforníu, og Philippe de Rothschild baróns frá Chateau Mouton-Rothschild í Bordeaux. Fyrsta uppskeran leit dagsins ljós árið 1979 og kom á markað 3 árum síðar. Það [...]

Lesa meira →

Niebaum-Coppola Francis Coppola Family Wines Chardonnay 1997

01.01.2001

Francis Ford Coppola er einn af meisturum kvikmyndanna og hann er einnig að skipa sér sess sem einn af meisturum víngerðar í Kaliforníu með Rutherford Rubicon og Fjölskylduvínum Coppola. Fjölskylduvínin voru upphaflega aðeins ætluð vinum og vandamönnum Coppola en hafa verið í almennri sölu undanfarin ár. Hann keypti Inglenook-vínsetrið árið 1975, gamalt og gróið fyrirtæki [...]

Lesa meira →