Posts tagged as:

Napa

Í Stokkhólmi

by Eiríkur on 29. mars 2010

Tengdó eru í heimsókn hjá okkur um þessar mundir og við gripum tækifærið að hafa barnapössun!

Um helgina brugðum við undir okkur betri fætinum og skruppum til Stokkhólms að hitta Hugrúnu og Hermann sem voru þar stödd í helgarferð.  Við röltum um gamla bæinn og brugðum okkur inn á veitingahúsið Mårten Trotzig þar sem við snæddum mjög góðan hádegisverð – lambakjöt, entrecote og villibráðarkjötbollur.  Með þessu drukkum við flösku af Becquer Rioja 2005, prýðisgott rauðvín með mjúkum eikar- og pipartónum.

Um kvöldið ætluðum við að fá okkur eitt glas á Prime Winebar en þar var allt uppbókað svo að ekkert varð af þeirri heimsókn.  Við héldum því á Sturehof, veitingahús við hið margfræga Stureplan, sem mér skilst að sé miðpunkturinn í skemmtanalífi Stokkhólms (ef svo er eiga þeir ýmislegt ólært af miðbæ Reykjavíkur!).  Sturehof er frekar trendý veitingastaður sem leggur áherslu á fisk og skelfisk, en er einnig með fínan vínlista.  Vínið sem mælt var með þetta kvöld var Joseph Phelps Cabernet Sauvignon 2005, hvorki meira né minna, og fyrir ekki meiri pening en 750 SEK per flösku.  Það leiddi nánast til þess að maturinn var valinn út frá víninu!  Í forrétt fékk ég mér andalifrarterrine en hin fengu sér hörpuskel.  Forrétturinn var mjög góður og gaf fögur fyrirheit um það sem koma skyldi.  Aðalrétturinn var unglamb með var borin fram með m.a. einhvers konar lambapylsu og kartöflum.  Lambið og pylsan voru hins vegar brimsölt!  Við höfðum orð á því við þjóninn og það var eins og við manninn mælt – hann lét varla sjá sig það sem eftir lifði kvöldins!  Hann reyndi undir lokin að selja okkur eftirrétt en okkur fannst vera nóg komið og héldum okkar leið.  Rauðvínið var hins vegar firnagott!!!  Við fengum okkur Creme Brulé á nálægri krá og héldum síðan á rölt um bæinn að prófa bjór og annað gott…

Niðurstaðan af þessu rölti okkar var sú að ég get eindregið mælt með veitingastaðnum Mårten Trotzig, en það verður bið á því að ég fari aftur á Sturehof.

{ 0 comments }

Nammi namm!

by Eiríkur on 4. október 2009

Já, hryggurinn var algjört nammi og ekki var vínið síðra!  Hryggurinn var eldaður á gamla mátann og var meyr og mjúkur þegar hann kom út úr ofninum.  Meðlætið var klassísk rauðvínssósa, kartöflur og salat.  Með þessu drukkum við svo Beringer Cabernet Sauvignon Private Reserve 2004.  Þetta er alvöru amerískur cabernet-bolti eins og ég vil hafa þá.  Kraftmikið vín, hnausþykkur ilmur af amerískri eik (aðeins brenndur keimur, franska eikin meira eins og blautur viður), plómum og sólberjum.  Öflug tannín sem aðeins eru farin að mýkjast (víninu var umhellt u.þ.b. 1½ klst áður), mikil fylling og vínið feiknagott! Dásamlegt eftirbragð sem hefði þótt mátt vera aðeins lengra.  Einkunn: 9,0 – Góð Kaup! Hér erum við að tala um vín sem kostar aðeins 5.999 í Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli (í brottfararverslun) og því tvímælalaust hægt að mæla með því við alla sem þar eiga leið um.  Sjálfur ætla ég að kippa einni eða tveimur flöskum með mér næst þegar ég fer þarna um (næstu jól/áramót).  Athugið að skv. Wine Spectator (sem gefur víninu 93 punkta) kostar þetta vín um 116 dollara í Ameríku, sem gera um 14.500 krónur, þannig að þetta er algjört brunaútsöluverð!

{ 1 comment }

Hryggur og Beringer

10.03.2009

Ég er að fara til Falun í næstu viku og verð því að kúldrast á hóteli eina vikuna enn.  Ég á líka afmæli í næstu viku og við ákváðum að halda smá forveislu í kvöld.  Okkur langar í góðan mat og gott vín!  Ég er því búinn að setja lambahrygg í ofninn og taka fram [...]

Lesa meira →

Bragðlaukaorgían

06.23.2009

Í nýafstaðinni Íslandsheimsókn okkar vorum við boðin í mat til Hugrúnar og Hermanns.  Þau búa á Álftanesinu í námunda við húsbrjótinn alræmda (réttara sagt, hann bjó þarna nálægt).
Það er alltaf gaman að koma heim til Hugrúnar og Hemma.  Þau töfra alltaf fram dásamlega rétti og Hemmi kann sko að velja vín við hæfi!  Að þessu [...]

Lesa meira →

Fyllt á vínskápinn

08.04.2008

Þá er viðburðaríkri Íslandsdvöl lokið og við aftur komin heim til Uppsala.  Ég passaði auðvitað upp á að kaupa pínulítið í vínskápinn minn og keypti m.a. vín sem ég hef ekki séð í mörg ár (les. síðan ég flutti út) – Beringer Cabernet Sauvignon Private Reserve 2004. Þetta vín var orðið þokkalega dýrt fyrir nokkrum [...]

Lesa meira →

Datt í lukkupottinn!

07.25.2008

Í gær datt ég heldur betur í lukkupottinn!
Við vorum boðin í mat til Hugrúnar og Hermanns og eins og alltaf á þeim bænum var glæsilega tekið á móti okkur.  Hemmi þóttist vera með einhverja tilraunastarfsemi á forréttinum - grilluð skötuselsspjót – en maður gæti haldið að hann gerði þetta nokkuð oft því útkoman var hreint frábær.  [...]

Lesa meira →

Um Gullinbrú og fleira

02.20.2008

Í síðustu viku var ég staddur í San Francisco í USA, skrapp á fund þar. Það var orðið ansi langt síðan ég var síðast þar vestra – nánar tiltekið rúm 17 ár! Auðvitað voru eingöngu “héraðsvín” á borðum, enda Napa Valley hinu megin við hólinn. Meðal annars prófaði ég ágætis Sauvignon Blanc [...]

Lesa meira →