Posts tagged as:

Nautakjöt

Gamall vinur í heimsókn

Höfundur: Eiríkur Þann 27. ágúst 2011

Við höfum smá matarboð um síðustu helgi og buðum m.a. Gísla og Jóhönnu.  Þau færðu okkur flösku af Penfolds Koonunga Hill Shiraz Cabernet 2010 og ég varð nokkuð ánægður að sjá þá flösku, því það er orðið ansi langt síðan ég prófaði þetta vín.  Í kvöld grillaði ég svo nautakjöt á spjóti og fannst tilvalið að opna þessa flösku með.  Vínið er að vanda dökkt og fallegt í glasi, unglegt en með smá dýpt.  Í nefið koma fjólur, súkkulaði og lakkrís, smá pipar ásamt eikarkeim.  Vínið er vel tannískt, sýran aðeins yfir meðallagi, góð fylling og eftirbragðið heldur sér þokkalega.  Ágætis vín sem hentaði vel með grillinu.  Einkunn: 7,5 – Góð Kaup!

{ 0 comments }

Hitabylgjan heldur áfram…

Höfundur: Eiríkur Þann 12. júní 2011

Já, það er sko sannkölluð hitabylgja hérna og nánast skömm frá að segja að maður er að verða pínu þreyttur á því að það sé 26-30 stiga hiti á hverjum degi.  Pirringurinn felstu þó kannski helst í því að Theódór sefur ekki vel í þessum hita og ég er ekki enn kominn í sumarfrí!  Sumarfríinu verður reyndar að mestu leyti varið á Íslandi og því líklega best að njóta hitans meðan hann er hér.

Um síðustu helgi fengum við góða heimsókn – Gestur og Sonja komu í fyrsta skipti til okkar í Svíþjóð, en þau eru nýflutt til Stokkhólms frá Danmörku.  Þar sem þau búa í fjölbýlishúsi á Östermalm (fínt hverfi í Stokkhólmi) þá mega þau ekki grilla á svölunum hjá sér og því aldrei annað inni í myndinni en að bjóða þeim upp á grill.  Við erum nýbúin að kaupa fjórðungshluta af ungnauti og steikurnar voru einmitt orðnar passlega meyrar.  Eftir að hafa boðið þau velkomin með glasi af Leth Grüner Veltliner 2010 skelltum við Entrecote á grillið og með því drukkum við Tignanello 2006, eitt af mínum uppáhaldsvínum.  Dásamlegur keimur af sólberjum, leðri, kaffi og kryddum.  Mikil fylling, þétt tannín og laaaangt eftirbragð.  Einkunn: 9,0 – bestu meðmæli!  Í eftirrétt fengum við okkur grillaða ávexti og ís, og með því drukkum við Jeanmaire kampavín.  Frábært kvöld sem var svo toppað með Camus XO koníaki og Tallisker vískí…

{ 0 comments }

Hitabylgja

06.04.2011

Það er sannkölluð hitabylgja sem gengur yfir Uppsala þessa dagana.  Þegar þetta er skrifað er klukkan hálf níu að morgni og hitinn er þegar kominn yfir 20 gráður!  Í gær var þvílík rjómablíða - sól, hægur andvari og 25 stiga hiti, sem er bara nokkuð gott í byrjun júní.  Við sátum úti á palli stærstan hluta [...]

Lesa meira →

Árshátíðir vínklúbbanna

05.21.2011
Thumbnail image for Árshátíðir vínklúbbanna

Það hefur verið frekar hljótt hér á Vínsíðunni að undanförnu og er þar ýmsu um að kenna.  Ég hef verið önnum kafinn í vinnunni, verið á dálitlu flandri í tengslum við það og einnig verið upptekinn við að koma frá mér vísindagrein.  Nú hefur heldur róast á þessu sviði og því hægt að halda áfram [...]

Lesa meira →

Mas La Plana 2006

12.11.2010

Um daginn opnaði ég Torres Cabernet Sauvignon Gran Reserva Mas La Plana 2006 – vín sem hefur alltaf verið í miklum metum hjá mér og ég varð ekki fyrir vonbrigðum í þetta skipti.  Vínið er enn ungt og á eftir að batna með geymslu í nokkur ár til viðbótar.  Í nefinu er góð leður- og [...]

Lesa meira →

Wellington fátæka mannsins?

11.14.2010

Á föstudaginn langaði okkur í góðan mat og gott vín, m.a. til að fagna því að Guðrún og sonurinn væru komin heim.  Ég fór í sund með dæturnar og maturinn varð því að vera einfaldur, hægt að útbúa fyrirfram eða hvoru tveggja.  Við gerðum því Beef Wellington með nautahakki í stað nautalundar, nokkurs konar Wellington [...]

Lesa meira →

Lúxusvandamál

09.13.2010

Ég á við ákveðið lúxusvandamál að stríða um þessar mundir.  Ég fór á laugardaginn ásamt Keizaranum og sótti pöntunina okkar.  Við (aðallega ég) urðum þó fyrir smá áfalli þegar heim var komið, því Brancaia Tre sem við pöntuðum reyndist vera annar árgangur en sá sem við pöntuðum – 2008 en ekki 2007!  Nú reyndust góð [...]

Lesa meira →

Liseberg og tvö frábær vín!

08.19.2010

Já, loksins komumst við í Liseberg! Dæturnar völdu nefnilega Liseberg sem sumarleyfisstaðinn í ár og tóku hann fram yfir sólarlandaferð eða annað þvíumlíkt. Við fórum reyndar til Íslands í 3 vikur en það er víst ekki hægt að kalla það sólarlandaferð þrátt fyrir að veðrið hafi verið með ágætum. Við ætluðum svo að fara í [...]

Lesa meira →

Engillinn og steikin

07.24.2010

Jæja, þá er síðasta sumarfrísvikan á enda (í bili, fæ eina viku til viðbótar í ágúst).  Við ætluðum að vera í Gautaborg þessa viku en þar sem bíllinn bilaði varð lítið úr því.  Við skelltum okkur því til Stokkhólms í staðinn og fórum í Gröna Lund, sem er tívolíið í Stokkhólmi.  Smáfólkið var nokkuð ánægt [...]

Lesa meira →

Á Íslandi

06.26.2010

Þessa dagana er ég staddur í fríi á Íslandi ásamt dætrum mínum og Guðrún er væntanleg í vikulokin.  Við fórum í dag og kíktum á gamlar drossíur, en Fornbílaklúbbur Íslands er með landsmót á Selfossi (þar sem foreldrar mínir búa).  Þar sáum við bæði glæsivagna og gamla skrjóða í misgóðu ástandi. Pabbi grillaði gómsæta nautasteik [...]

Lesa meira →