Höfundur: Eiríkur Þann 22. nóvember 2010
Í gær ætluðum við að eiga notalega kvöldstund og borða góðan en einfaldan mat. Við ætluðum fyrst að gera lasagna en svo fann ég uppskrift að rétti sem heitir Anelletti al Forno, sem líkt og lasagna er ofnbakaður pastaréttur. Rétturinn var einfaldur og tiltölulega fljótlegur í matreiðslu (eldunartíminn um 1½ klst). Niðurstaðan var mjög góður réttur sem börnin skófluðu í sig af bestu lyst! Með þessu drukkum við Brancaia TRE 2008 sem eftir duglega umhellingu hafði gott berjabragð með ágætis fyllingu og eftirbragði – smellpassaði með matnum.
Höfundur: Eiríkur Þann 18. apríl 2010
Um síðustu helgi héldum við ítalskt kvöld heima hjá Einari Brekkan. Við hittumst þar
- ég, Einar og Johan Heinius – og elduðum stórfenglega ítalska máltíð. Við tókum á móti gestunum með kampavíni og með því gæddum við okkur á Sedani al formaggio (sellerí með ostasósu) og Crostini alla Napoletana. Síðan var boðið upp á Carpaccio, Pasta alla Grímsá (humarpasta alla Gutti), Risotto con fegatini (risotto með kjúklingalifur), Spinaci gratinati (gratínerað spínat), Asparagi alla Parmigiana (aspas med parmesan), Caprese (Mozarella með tómötum og basilíku) og Farsumagru (fyllt nautasteik). Þvílíkt lostæti allt saman og auðvitað verður það alltaf betra í góðra vina hóp.
Með Carpaccio drukkum við barolo frá árinu 1997 (man því miður ekki hvað það heitir – Einar, þú manst það kannski?). Hvítvínið með pastanu og risottonu var Barone Ricasoli Torricella 2008 og með aðalréttinum drukkum við Antinori Tignanello 2001.
Stórkostlegt kvöld – takk fyrir mig!