Posts tagged as:

Pauillac

Á Íslandi

Höfundur: Eiríkur Þann 26. júní 2010

Þessa dagana er ég staddur í fríi á Íslandi ásamt dætrum mínum og Guðrún er væntanleg í vikulokin.  Við fórum í dag og kíktum á gamlar drossíur, en Fornbílaklúbbur Íslands er með landsmót á Selfossi (þar sem foreldrar mínir búa).  Þar sáum við bæði glæsivagna og gamla skrjóða í misgóðu ástandi.

Pabbi grillaði gómsæta nautasteik og með henni drukkum við Les Tourelles des Longueville Pauillac 2005.  Ákaflega gott vín, unglegt með frísklega berjakeim þar sem einnig má finna angan af eik, leðri og tóbaki.  Rífandi tannín og sýra í góðu jafnvægi gefa góð fyrirheit um framtíðina, en þetta vín á nokkuð í land með að ná fullum þroska og væri best að geyma í a.m.k. 3-4 ár til viðbótar.  Engu að síður ljúffengt nú þegar – Einkunn: 9,0 – Góð Kaup!

{ 0 comments }

Lamb og rauðvín

Höfundur: Eiríkur Þann 27. febrúar 2010

Í gær eldaði ég lambalæri, kryddað með hvítlauk og rósmarín, og bar fram með ofnsteiktu rótargrænmeti. Uppskriftina er að finna í Gestgjafanum, nánar tiltekið í blaðinu þar sem er að finna bestu uppskriftir ársins 2009. Með þessu drukkum við Les Tourelles de Longueville Pauillac 2005. Þetta er “litla” vínið frá Chateau de Longueville en samt er þetta í raun ekkert lítið vín. Árið 2005 var auðvitað ákaflega gott í Bordeaux og það skiptir nánast engu máli hvaða vín maður velur – öll 2005-vín frá Bordeaux eru örugg kaup. Þetta vín keypti ég í Fríhöfninni í Keflavík og borgaði að mig minnir rúmar 4000 krónur fyrir og ég vil kalla það góð kaup. Vínið er unglegt að sjá en með góða dýpt. Í nefið fær maður fjólur, plómur, leður og vott af hesthúsi, en er ekki alveg búið að opna sig, þrátt fyrir að hafa verið umhellt klukkustund áður en það var drukkið. Í munni hefur vínið góða fyllingu, nóg af sýru og tannínum, en samt er það mjúkt og með langt og gott eftirbragð. Vínið þarf a.m.k. 1-2 ár í viðbót áður en það blómstrar út, en mun örugglega njóta sín vel næstu 7-10 árin. Einkunn: 8,5 – Góð Kaup!

Í eftirrétt gerði ég þrílitan súkkulaðibúðing.  Með því drukkum við Ruppertsberger Linsenbusch Riesling Eiswein 2008.  Fallegt, gullið vín með angan af apríkósum og sítrusávöxtum.  Í munni sætt og þétt með góðu eftirbragði.

Les Tourelles de Longueville

{ 0 comments }

Sumarhátíðin

06.28.2009

Í fyrradag fögnuðum við því að vera komin í sumarfrí.  Lambalærið var sett á grillið og á meðan það var að steikjast opnuðum við Montes Sauvignon Blanc 2007 og gæddum við okkur á grilluðum humri.  Með lambinu drukkum við Les Tourelles de Longueville 2005.  Þetta er “litla” vínið frá Chateau Pichon de Longueville í Pauillac, [...]

Lesa meira →

Vín ársins

11.12.2008

Wine Spectator er nú byrjað að birta vínin á topp 10 á hinum árlega lista sínum yfir 100 bestu vín ársins.  Nú hafa verið birt hvaða vín lentu í sætum 7-10. Í 10. sæti er Seghesio Zinfandel Sonoma County 2007, 93p/24$. Í 9. sæti er Mollydooker Shiraz McLaren Vale Carnival of Love 2007, 95p/90$. Í [...]

Lesa meira →

Fyllt á vínskápinn

08.04.2008

Þá er viðburðaríkri Íslandsdvöl lokið og við aftur komin heim til Uppsala.  Ég passaði auðvitað upp á að kaupa pínulítið í vínskápinn minn og keypti m.a. vín sem ég hef ekki séð í mörg ár (les. síðan ég flutti út) – Beringer Cabernet Sauvignon Private Reserve 2004. Þetta vín var orðið þokkalega dýrt fyrir nokkrum [...]

Lesa meira →

Datt í lukkupottinn!

07.25.2008

Í gær datt ég heldur betur í lukkupottinn! Við vorum boðin í mat til Hugrúnar og Hermanns og eins og alltaf á þeim bænum var glæsilega tekið á móti okkur.  Hemmi þóttist vera með einhverja tilraunastarfsemi á forréttinum - grilluð skötuselsspjót – en maður gæti haldið að hann gerði þetta nokkuð oft því útkoman var hreint [...]

Lesa meira →

Chateau Batailley

10.06.2007

Það var orðið nokkuð langt síðan ég smakkaði Chateau Batailley síðast og varð því ánægður er ég sá að það voru til nokkrar flöskur í vínbúðinni minni. Verðið var hagkvæmt (299 SEK – tæplega 3 þúsund kall) og ég sló því til! Í gær opnaði ég eina flöskuna og ég veit ekki enn hvað mér [...]

Lesa meira →

Í sumarhúsi Marie Antoinette

04.20.2007

Ég var á námskeiði í Frakklandi nú í vikunni, nánar tiltekið í Versölum. Hótelið sem ég gisti á var aðeins nokkur hundruð metra frá höllinni frægu, en hótelið sjálft, Trianon palace, á sér þó merka sögu. Það var á sínum tíma byggt sem “sumarhús” fyrir Marie Antoinette og sjálfsagt verið notalegt lítið slot til að [...]

Lesa meira →

Les Tourelles de Longueville Pauillac 1997

07.30.2006

Auga: Ryðrautt, talsverð dýpt, tært og tiltölulega ljóst. Nef: Mjög skemmtileg og margslungin lykt, áberandi leður, reykur, brennd viðarkol, sæt kirsuber og marsipan, trufflur og kaffi. Munnur: Fíngert, fágað í munni en þó mikið eftirbragð. Skemmtilegur karakter og áberandi reyktur ostur. Einkunn: 8,0

Lesa meira →

Chateau Pibran Pauillac 1997

01.01.2001

Sæmilega dökkt, ágæt dýpt, fallegt vín.  Kaffi, súrhey, leður, sólber, eik, brómber. Mikil tannin, hæfileg sýra á móti, gott jafnvægi, skortir aðeins á fyllingu, gott eftirbragð. Gott núna en mætti jafnvel geyma í nokkur ár.

Lesa meira →