Posts tagged as:

Penfolds

Gamall vinur í heimsókn

Höfundur: Eiríkur Þann 27. ágúst 2011

Við höfum smá matarboð um síðustu helgi og buðum m.a. Gísla og Jóhönnu.  Þau færðu okkur flösku af Penfolds Koonunga Hill Shiraz Cabernet 2010 og ég varð nokkuð ánægður að sjá þá flösku, því það er orðið ansi langt síðan ég prófaði þetta vín.  Í kvöld grillaði ég svo nautakjöt á spjóti og fannst tilvalið að opna þessa flösku með.  Vínið er að vanda dökkt og fallegt í glasi, unglegt en með smá dýpt.  Í nefið koma fjólur, súkkulaði og lakkrís, smá pipar ásamt eikarkeim.  Vínið er vel tannískt, sýran aðeins yfir meðallagi, góð fylling og eftirbragðið heldur sér þokkalega.  Ágætis vín sem hentaði vel með grillinu.  Einkunn: 7,5 – Góð Kaup!

{ 0 comments }

Tignanello 2006

Höfundur: Eiríkur Þann 16. september 2009

Ég rölti inn í eina vínbúð í dag, ekki mína venjulega heldur búðina í miðbænum.  Sú búð fær oft fleiri nýjungar en vínbúðin mín, og mig langaði að sjá hvort það væri eitthvað athyglisvert á boðstólum.  Ég rakst þar á nokkur eintök af Tignanello 2006 á 499 SEK (rúmar 8.900 ISK).  Ég var að velta fyrir mér að skella mér á eina eða tvær flöskur en ákvað svo að bíða aðeins.  Ég er nefnilega á leiðinni til Berlínar á sunnudaginn og kannski rekst ég á eitthvað gott í þeirri ferð.  Síðast þegar ég fór um terminal 2 á Arlanda sá ég m.a. Penfolds Bin 707 á rúmar 800 SEK og sá lengi eftir því að hafa ekki tekið eina flösku.  Svo spillir ekki fyrir að helsta verslunarmiðstöð Berlínar er beint fyrir utan hótelið mitt og kannski er eitthvað áhugavert að finna þar.  Ef ég sé ekkert spennandi í ferðinni þá skelli ég mér líklega á 1-2 eintök af Tignanello…

{ 0 comments }

Sumarfríið búið

07.21.2009

Já, þá er sumarfríið búið – allt of fljótt, fannst mér!  Í síðustu viku fórum við í sumarhús í Orsa ásamt Keizaranum og fjölskyldu hans.  Ég hafði ákveðið að taka eina góða rauðvínsflösku með mér og opna fyrsta kvöldið.  Fyrir valin varð Penfolds St. Henri Shiraz 2004, sem ég keypti í London í fyrra.  Það [...]

Lesa meira →

Gamall vinur á ferð

07.11.2009

Í gær var hefðbundin íslensk föstudagsmáltíð á borðum hjá okkur (kannski pínu gamaldags en þó klassísk) – grillaður kjúklingur með frönskum, salati og kokteilsósu (sósa og salat segja dætur mínar sem nú eru heillaðar af gömlu Stuðmanna-myndinni “Með allt á hreinu”, einkum laginu “Franskar (sósa og salat)”). Með þessu drukkum við Penfolds Koonunga Hill Shiraz [...]

Lesa meira →

Bragðlaukaorgían

06.23.2009

Í nýafstaðinni Íslandsheimsókn okkar vorum við boðin í mat til Hugrúnar og Hermanns.  Þau búa á Álftanesinu í námunda við húsbrjótinn alræmda (réttara sagt, hann bjó þarna nálægt). Það er alltaf gaman að koma heim til Hugrúnar og Hemma.  Þau töfra alltaf fram dásamlega rétti og Hemmi kann sko að velja vín við hæfi!  Að [...]

Lesa meira →

Heilagur Hinrik og nautið

02.13.2009

Þegar við vorum á ferð í London nú í haust (áður en kreppan skall á og við vorum stimpluð sem hryðjuverkamenn) þá passaði ég að kíkja í vínbúðina í Selfridges (stóra magasínið við Oxford Street).  Þaðan tók ég með mér tvær Penfolds St. Henri Shiraz (2002 og 2004).  Í kvöld langaði okkur í góðan mat [...]

Lesa meira →

Vín með hreindýri

01.22.2009

Guðjón vinur minn hafði samband við mig í gær og leitaði ráða varðandi val á víni með hreindýrasteik.  Hann og Dóri vinur hans ætla að bjóða konunum sínum upp á þríréttaða veislumáltíð og eftir að hafa heyrt matseðilinn fékk ég sko vatn í munninn.  Meðal annars ætla þeir að elda hreindýrasteik og með slíku lostæti [...]

Lesa meira →

Markus Molitor

09.29.2008

Ég var að leita á netinu hjá Systeminu fyrir helgi og sá þá, mér til mikillar ánægju, að hið frábæra hvítvín Riesling Auslese 2005 frá Markus Molitor var á tilboðsverði, aðeins rúmar 200 krónur sænskar.  Ég pantaði mér auðvitað nokkrar flöskur í snarhasti og nú hvíla þær í vínskápnum mínum og bíða rétta augnabliksins. Annars [...]

Lesa meira →

Helgarferð til London

09.18.2008

Við hjónin brugðum okkur til London um daginn – fyrsta skipti sem við förum eitthvað barnlaus.  Keizarinn og frú fengu reyndar að fljóta með.  Dinner og söngleikur, Covent Garden, Oxford Street og svo auðvitað vínbúðin í Selfridges! Fyrsta kvöldið borðuðum við á Clos Maggiore, frönskum stað við Covent Garden.  Staðurinn hefur viðurkenninguna Best of Award [...]

Lesa meira →

Niðursoðin krækiberjasaft?

05.24.2008

Já, það var það sem helst kom upp í hugann í gær þegar við prófuðum bæði Turning Leaf Zinfandel 2006. Reykjarkeimur, krækiberjahrat og fleira óskemmtilegt. Einnig opnuðum við Penfolds Rawson’s Retreat 2006 og ekki varð hrifningin meiri af því. Ungt en líflaust að sjá, óaðlaðandi lykt, beiskt og þurrt vín með óspennandi eftirbragði. Þessi vín [...]

Lesa meira →