Posts tagged as:

Peter Lehmann

Nokkrar góðar komnar í hús

by Eiríkur on 23. maí 2010

Vínkælirinn minn hefur tútnað dálítið út síðustu daga.  Ég fékk mínar þrjár flöskur af Dow’s 2007 árgangspúrtvíni og stefni að því að prófa eina flöskuna eftir 10 ár eða svo!  Þetta er besta púrtvín sem hefur komið frá Dow’s og það er ekki á hverju ári að púrtvíni fái fullt hús stiga hjá Wine Spectator.  Um daginn var svo hringt í mig frá vínbúðinni minni.  Þeir voru að taka til í hillunum sínum og fundu þá nokkrar flöskur af Casa Lapostolle Clos Apalta 2007 sem ég hafði pantað fyrir mig og Einar Brekkan.  Ég hafði aldrei fengið boð um að vínið hefði komið og var eiginlega búinn að afgreiða þetta sem svo að pöntunin hefði misfarist.  Nú er tvær slíkar flöskur komnar inn í kælinn minn og ástand hans er alveg einstaklega gott!

Í gær var auðvitað úrslitaleikur Meistaradeildarinnar og við hittumst félagarnir heima hjá dr. Leifssyni til að horfa á leikinn.  Ég hafði hitað upp fyrir leikinn með því að fara með eldri dótturina á fótboltamót þar sem þær náðu góðum árangri – einn sigur og eitt jafntefli.  Svo grillaði ég lambalæri (kryddað með blöndu af fersku timjan, rósmarín, hvítlauk, salti og pipar) og var ákaflega ánægður með útkomuna.  Með þessu drakk ég Peter Lehmann Cabernet Sauvignon Mentor 2004.  Mjög gott vín sem var orðið ágætlega þroskað – góður keimur af berjum og kryddi, mjúk tannín og þétt eftirbragð sem entist nokkuð lengi.  Passaði vel með lærinu!  Úrslit leiksins voru svo ekki alveg eins og við höfðum óskað okkur, en Keizarinn og Dr. Leifsson eru báðir mjög harðir stuðningsmenn FC Bayern (ekki Bayern Munchen eins og svo margir segja, heldur á segja FC Bayern – a.m.k. gera menn svo í Munchen).  Við náðum þó að prófa nokkrar tegundir af þýskum bjór og vonandi get ég greint betur frá þeim athugunum síðar, en dr. Leifsson hélt utanum bókhaldið og hér með er óskað eftir afriti af þeim niðurstöðum!

Ég er á leið til Falun í kvöld og get þá kannski laumað inn 1-2 færslum…

{ 0 comments }

Grilluð Entrecote og vín ársins

by Eiríkur on 21. febrúar 2010

Í gær grillsteikti ég entrecote sem tókst ákaflega vel.  Við keyptum nefnilega fjórðung af nautaskrokki í haust og þetta kjöt er alveg einstaklega gott – mun betra en það sem ég hef verið að kaupa hér úti í búð.  Ég er líka loksins búinn að læra að nota grillpönnuna mína og nýti nú hvert tækifæri sem gefst til að grillsteikja!    Með steikinni drukkum við Peter Lehmann Shiraz 2006, sem ég valdi sem vín ársins 2009.

Í kvöld ætla ég að elda Bolognese og spaghetti – Keizarinn kemur í mat.  Með þessu er ég að hugsa um að taka fram eina Brancaia Tre

{ 0 comments }

Vín ársins!

01.10.2010

Jæja, þá er komið að því að útnefna vín ársins 2009.  Nokkuð mörg vín komu til álita að þessu sinni, flest þeirra í ódýrari kantinum, enda árið 2009 sannkallað kreppuár hjá neytendum en góðæri hjá mörgum framleiðendum sem hingað til hafa einkum framleitt vín í ódýrari kantinum.
Amalaya de Colomé 2007 kemur frá Calchaqui-dalnum í Argetínu, [...]

Lesa meira →

Jólaævintýri ritstjórans

01.07.2010

Við brugðum undir okkur betri fætinum og héldum til Íslands yfir jól og áramót – í fyrsta skipti síðan 2002 að við höldum jól og áramót á Íslandi.  Ferðin var þó hálf endasleppt því ég var kominn með hita nóttina fyrir brottför, var hundslappur um morguninn og nánast eins og liðið lík þegar við lentum [...]

Lesa meira →

Góð kaup í ríkinu/systeminu

11.06.2009

Í nýlegu Wine Spectator var listi yfir 500 vín sem ritstjórarnir telja vera mjög góð kaup.  Ég kíkti aðeins á það hvað væri til í Vínbúðum ÁTVR og í sænska Systembolaget.  Hér er stuttur listi yfir það sem fáanlegt er í verðflokknum ISK 2300-2800 /SEK 100-150 ($16-$20).  Vín í þessum verðflokki þurftu að fá a.m.k. [...]

Lesa meira →

Vín með hreindýri

01.22.2009

Guðjón vinur minn hafði samband við mig í gær og leitaði ráða varðandi val á víni með hreindýrasteik.  Hann og Dóri vinur hans ætla að bjóða konunum sínum upp á þríréttaða veislumáltíð og eftir að hafa heyrt matseðilinn fékk ég sko vatn í munninn.  Meðal annars ætla þeir að elda hreindýrasteik og með slíku lostæti [...]

Lesa meira →

Að velja vín fyrir brúðkaup

05.22.2008

Það getur verið þrautin þyngri að velja vín fyrir brúðkaup! Ég stend nú í þessum sporum og er að leita að heppilegum vínum til að bera á borð fyrir gesti í fyrirhuguðu brúðkaupi okkar Guðrúnar nú í sumar. Ég hef velt þessu nokkuð fyrir mér enda mikilvægt að vel takist til. Það [...]

Lesa meira →

Peter Lehmann Clancy’s Red 1999

07.30.2001

Vín mánaðarins í ágúst 2001 er Clancy’s Red frá Peter Lehmann í Ástralíu. Þetta er margverðlaunað vín: fyrri árgangar hafa hlotið gullverðlaun hér og þar og síðustu tveir árgangar (1997 og 1998) enduðu báðir inni á topp-100 lista Wine Spectator yfir 100 bestu vín ársins, þar af var 1997 árgangurinn í 24. sæti árið 1999! [...]

Lesa meira →

Peter Lehmann Seven Surveys 1997

02.01.2001

Þetta vín er úr nokkuð óvenjulegri blöndu sem hefur þó verið að ryðja sér til rúms, einkum í Ástralíu, þ.e. Mourvèdre, Shiraz og Grenache (stundum kallað Mataro) – GSM, en þessar þrúgur þrífast mjög vel í Barossa-dalnum í Ástralíu. Nafn vínsins, Seven Surveys, er til heiðurs fyrstu landnemunum sem settust að í Barossa árið 1842. [...]

Lesa meira →