Höfundur: Eiríkur Þann 26. apríl 2009
Gærdagurinn var alveg yndislegur hér í Uppsala. Sól og blíða, og yfir 20 stiga hiti. Við ákváðum að halda pínulitla kosningavöku og buðum Keizarafjölskyldunni í mat. Ég grillaði nautalund (marineruð í hvítlauk, timjan og pipar) og aspas og bar fram með salati, kartöflum og piparsósu. Útkoman auðvitað frábær! Með þessu drukkum við Chateau Antonic, sem er frá Médoc í Bordeaux. Þetta er blanda Merlot, Cabernet Sauvignon og Petit Verdot. Dökkrautt, enn nokkuð ung að sjá. Seiðandi ilmur af nýju leðri, plómum, pipar og fjólum. Kröftugt í munni, mikil fylling með löngu og þéttu eftirbragði. Dásamlegt vín.

Höfundur: Eiríkur Þann 10. janúar 2009
Í gær langaði okkur í góðan mat og gott vín. Við buðum því Keizaranum og fjölskyldu hans í mat – Roastbeef með þreföldum piparhjúp og timjan ásamt rösti-kartöflum og skógarsveppasósu. Algjört lostæti og með því þurfti auðvitað gott vín! Fyrir valinu varð Montes Alpha “M” 2004. Vínið er frá Colchagua í Chile og er blanda Cabernet Sauvignon (80 %), Merlot (10 %), Cabernet Franc (5%) og Petit Verdot (5 %). Mjög dökkt vín með mikla dýpt. Enn sem komið er nokkuð lokuð lykt – leður og eik, smá ávöxtur en ekki mikið meira. Í munni ákaflega mjúkt með mjög góða fyllingu, mikil tannín en samt með silkiáferð – frábært jafnvægi. Springur út í munninum með ögn af eik og dökku súkkulaði. Langt og gott eftirbragð. Frábært vín sem hægt er að njóta núna eða geyma í nokkur ár til viðbótar (spjarar sig eflaust ágætlega í 10-15 ár!).
