Posts tagged as:

Pinot Noir

Gouais Blanc

Höfundur: Eiríkur Þann 18. desember 2009

Fyrir löngu síðan var þrúgan Gouais Blanc gerð útlæg í Frakklandi þar sem hún þótti of léleg.  Þrúgan hafði náð mikilli útbreiðslu á miðöldum þar sem hún þótti tiltölulega meðfærileg.  Vínin þóttu hins vegar ekki nógu góð og þrúgan því “bannlýst”.  Nú hefur hún þó fengið einhverja uppreisn æru því DNA-rannsóknir hafa sýnt að þrúgan er “móðir” fínni þrúga á borð við Chardonnay, Aligoté og Gamay, sem hafa orðið til við blöndun Pinot Noir og Gouais Blanc.

Í Oxford Companion to Wine er þrúgunni lýst sem ljósri þrúgu sem gefur af sér “mjög venjuleg, súr vín”.

{ 0 comments }

Topp 1005: Sæti 2-5

Höfundur: Eiríkur Þann 19. nóvember 2009

Hér eru vínin í sætum 2-5:

2. Numanthia-Termes Toro Termes 2005 (Spánn) – 96 punktar ($27) – “Austere yet alluring, this powerful red is thick and tannic, yet reveals a core of blackberry, mineral, hoisin and graphite that’s dense and pure. Monolithic now, but has depth and balance. Modern, but shows a real sense of place. Best after 2012.”

3. Domaine du Vieux Télégraphe Châteauneuf-du-Pape La Crau 2007 (Frakkland, S-Rhone) – 95 punktar ($70) – “Packed, in a brawny, muscular style atypical for this lush vintage, with a gravelly undertow to the currant paste, braised fig and dark licorice notes. Picks up even more steam on the finish, with grilled mesquite, mineral and garrigue notes and a long, hot stone-filled finish. Best from 2010 through 2030. 17,000 cases made.”Fastagestur á listanum en því miður ekki fáanlegt á Íslandi eða í Svíþjóð.

4. Kosta Browne Pinot Noir Sonoma County 2007 (Bandaríkin, Kalifornía) – 95 punktar ($52) – “Firm and focused, with a wonderful purity of flavor, offering a complex, focused mix of black cherry, raspberry, spice and anise. Full-bodied and concentrated. Long and persistent on the finish. Drink now through 2014. 3,069 cases made.”

5. Barone Ricasoli Chianti Classico Castello di Brolio 2006 (Ítalía, Toscana) – 96 punktar ($54) – “Shows amazing aromas of blackberry, with hints of vanilla and flowers, along with black licorice and crushed berries. Full-bodied, with wonderfully caressing, ultrafine tannins. Very balanced and long. Best after 2011. 6,170 cases made.”Fyrri árgangar hafa verið fáanlegir í Svíþjóð og nú er bara að bíða eftir þessum!

Á morgun verður svo tilkynnt um vín ársins og topp-100 listinn birtur!

{ 0 comments }

Fish Market

06.25.2009

Fyrir rúmri viku fórum við á veitingastaðinn Fish Market við Aðalstræti.  Með í för voru Brekkan-hjónin ásamt nokkrum svíum, alls 11 manna hópur.  Við höfðum sammælst um að taka hópmatseðilinn, sem er s.k. tasting menu (hvað kallast slíkt á íslensku?) með 9 réttum.  Við fengum m.a. svínarif, krabbakjöt, sushi och sashimi, lax, wasabisallat ásamt fleiri [...]

Lesa meira →

Casa Lapostolle

04.19.2009

Í gær grillaði ég maískólfa og brasilíska nautalund, meðlætið kartöflur, bernaisesósa og salat. Með þessu drukkum við Casa Lapostolle Cuvée Alexandre Pinot Noir 2005.  Vínið er frá Casablanca-héraði í Chile og framleiðandinn Casa Lapostolle skaust nýlega upp á stjörnuhimin vínheimsins þegar Casa Lapostolle Clos Apalta 2005 var útnefnt sem vín ársins 2008 hjá Wine Spectator. [...]

Lesa meira →

Vínin hans Obama

01.15.2009

Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum að Barack Obama tekur við embætti forseta Bandaríkjanna næstkomandi þriðjudag.  Að vanda verður boðið til hádegisverðar í þinghúsinu Capitol eftir að hann hefur svarið embættiseiðinn.  En hvað skyldi verða á boðstólum í veislunni? Jú, svona lítur matseðillinn út: 2009 Inaugural Luncheon Menu First Course Seafood Stew 2007 [...]

Lesa meira →

Vonbrigði ársins

12.31.2008

Vonbrigði ársins eru án efa Chateau Musar 2001. Ég hafði lesið mikið um þetta vín og hafði miklar væntingar til þess þegar ég loksins fékk að smakka það. Vonbrigðin voru mikil. Ég átti von á allt öðru víni, þéttu og kröftugu víni en ekki sviplausu og bragðdaufu lúpínuseyði. Kannski var flaskan léleg… Hvað um það [...]

Lesa meira →

Jólavínin

12.31.2008

Í ár brugðum við út af venjunni með jólamatinn okkar.  Við vorum orðin þreytt á þungum og reyktum jólamatnum og vildum prófa eitthvað annað.  Niðurstaðan varð kalkúni sem lagður var í kryddaðan saltpækil og tókst alveg frábærlega vel.  Forrétturinn var risahörpuskel með balsamvinaigrette að hætti Gutta.  Mamma og pabbi hafa verið hjá okkur yfir jólin [...]

Lesa meira →

Miðlungskvöld

12.04.2008

Já, það er eiginlega hægt að segja að vínsmökkunin heima hjá Dr. Leifssyni hafi verið miðlungskvöld hvað varðar vínin sem smökkuð voru, því þar var fátt sem stóð upp úr.  Partíið sem fylgdi á eftir var hins vegar ágætt! Fyrst prófuðum við Beringer Old Vine Zinfandel 2005.  Ljósleitt og ungt vín með angan af lakkrís, [...]

Lesa meira →

Nýtt í kælinn

11.28.2008

Ég ákvað að fara í aðra vínbúð en hverfisbúðina mína, enda á leið í vínsmökkun hjá Dr. Leifssyni. Ég fann þar tvær flöskur sem ég ákvað að taka með heim.  Sondraia 2005 kemur frá Toscana, framleiðandinn heitir Poggio al Tesoro og ég hef aldrei heyrt á hann minnst.  Þetta er vín í Bordeaux-stíl, 65% Cabernet [...]

Lesa meira →

Að velja vín fyrir brúðkaup

05.22.2008

Það getur verið þrautin þyngri að velja vín fyrir brúðkaup! Ég stend nú í þessum sporum og er að leita að heppilegum vínum til að bera á borð fyrir gesti í fyrirhuguðu brúðkaupi okkar Guðrúnar nú í sumar. Ég hef velt þessu nokkuð fyrir mér enda mikilvægt að vel takist til. Það er þó margt [...]

Lesa meira →