Posts tagged as:

Portúgal

Púrtvín og ostar

Höfundur: Eiríkur Þann 18. desember 2011

Hingað til hef ég ekki verið þekktur fyrir að vera mikið fyrir osta, en það er allt að breytast til hins betra.  Um daginn drakk ég Chateau Mont Redon 2007 sem Einar Brekkan bauð upp á, og með þessu borðuðum við svissneskan Appenzeller sem passaði ákaflega vel með (Einar var líka með Gorgonzola sem ég er ekki enn búinn að falla fyrir).

Á föstudaginn fann ég flösku af gömlu árgangspúrtvíni í vínbúðinni minni, nánar tiltekið Fonseca Guimaraens Vintage Port 1995.  Þetta vín hlaut 92 stig hjá Wine Spectator og var í 9. sæti á topp-100 listanum árið 1998!  Það var því aldeilis kominn tími á að prófa árgangspúrtvín sem hefur fengið að þroskast vel og lengi.  Ég veit hins vegar ekki alveg við hvaða aðstæður þetta vín hefur verið geymt því þegar ég opnaði flöskuna fór tappinn í mola og a.m.k. þriðjungurinn fór ofan í flöskuna í mylsnuformi!  Nú voru góð ráð dýr.  Það er jú mjög óspennandi að fá mikinn kork í glasið og þetta var of fín mylsna til að hægt væri að losna við hana með því að hella í gegnum sigti.  Ég tók mig til og skvetti úr flöskunni í vaskinn þannig að korkurinn fór úr en sáralítið af víninu fylgdi með.  Síðan gátum við notið vínsins með Appenzeller og Gruyere og útkoman var mjög góð!  Vínið var silkimjúkt með mikla fyllingu, góður keimur af plómum, berjum og lakkrís.  Einkunn: 9,0 – Bestu meðmæli

{ 0 comments }

Húsvínið

Höfundur: Eiríkur Þann 9. mars 2011

Húsvínið hjá okkur hjónunum hefur löngum verið eitthvert kassavín, þó reyndar hafi ákveðin kassavín verið keypt mun oftar en önnur.  Gallinn við það af hafa kassavín sem húsvín er að ef manni líkar ekkert of vel við vínið þá tekur töluverðan tíma að klára úr beljunni, og síðustu droparnir enda oftast sem sósuvín eða til uppfyllingar í pastasósu.

Nú ætlum við hins vegar að söðla um.  Einar Brekkan hefur löngum haft þann háttinn á að hann prófar eitthvert vín (yfirleitt í verðflokknum kringum 90 SEK) og ef honum líkar vel við þá kaupir hann heilan eða hálfan kassa (þ.e.a.s. ekki kassavín heldur 6-12 flöskur) sem síðan er húsvínið næstu vikurnar.  Hann er nokkuð lúnkinn að finna góð vín og ábendingum frá honum er yfirleitt vert að fylgja eftir.

Síðasta húsvín var t.d. Meandro do Vale Meão 2008 frá Douro í Portúgal.  Þetta vín var reyndar í dýrari kantinum (159 SEK) en það kom reyndar á daginn að þetta vín fékk 92 punkta hjá Wine Spectator, og þegar það kom í ljós nú í upphafi vikunnar þá kláruðust allar birgðirnar í Systeminu!

Næsta húsvín hjá Einari skilst mér að verði Allegrini Valpolicella Superiore 2008, sem kostar 99 SEK og það er nóg til af því i Systeminu.  Við ætlum að skella okkur á það!

{ 4 comments }

Nokkrar góðar komnar í hús

05.23.2010

Vínkælirinn minn hefur tútnað dálítið út síðustu daga.  Ég fékk mínar þrjár flöskur af Dow’s 2007 árgangspúrtvíni og stefni að því að prófa eina flöskuna eftir 10 ár eða svo!  Þetta er besta púrtvín sem hefur komið frá Dow’s og það er ekki á hverju ári að púrtvíni fái fullt hús stiga hjá Wine Spectator.  [...]

Lesa meira →

Góð kaup í púrtvínum

05.08.2010

Ég fór í vínbúðina mína áðan og pantaði mér púrtvín!  Það er ekki á hverjum degi að ég kaupi púrtvín – hvað þá að ég panti það!  Ég viðurkenni hins vegar fúslega að ég er dálítið veikur fyrir góðu púrtvíni, og púrtvínin sem eru að koma núna eru einmitt frá hinum magnaða 2007-árgangi, sem er [...]

Lesa meira →

Ný grein um Rónardalinn

08.19.2009

Það hefur farið lítið fyrir vínsmökkun undanfarna daga, þrátt fyrir að ég sé í fríi þessa viku.  Það er einna helst að góðvinur minn Ramos frá Portúgal fái að laumast í eitt glas á kvöldin.  Vonandi verður gerð einhver bragarbót á því um helgina.  Ég lenti í því um daginn að sláttuvélin mín bilaði en [...]

Lesa meira →

Á helgarvaktinni

04.05.2009

Það er frekar rólegt að gera í vínrannsóknum þessa helgi, því ég er á bakvakt og því ekki hægt að stunda neinar rannsóknir.  Ég verð hins vegar í fríi um páskana og þá er spáð ljómandi góðu veðri hjá mér, og þá verða gerðar ýmsar athuganir.  Grillið var formlega tekið í notkun í gær eftir [...]

Lesa meira →

Vín á tímum stjórnarkreppu

01.26.2009

Þegar stjórnir falla á umbrotatímum er mikilvægt að setjast niður og íhuga málin vel og vandlega.  Við slíkar íhuganir er mikilvægt að réttur vökvi sé við hönd.  Hver vökvinn svo á að vera fer auðvitað eftir því hvaða hug menn bera til tíðindanna. Þeir sem syrgja stjórnina ættu að taka sér púrtvínsglas í hönd.  Púrtvínið [...]

Lesa meira →

Góð þrenna

02.26.2007

Við vorum með matarboð um helgina, buðum Einari og Árdísi Brekkan í mat. Í forrétt höfðum við risarækjur með ávaxtasalsa og með því drukkum við Kloster Eberbach Riesling Spätlese 2006 frá Rheingau í Þýskalandi. Hálfþurrt vín með góðum ávaxtakeim (aðallega perur með smá hunangi), frísklegt með góðum sítruskeim. Í aðalrétt höfðum við fyllt lambalæri og [...]

Lesa meira →