Posts tagged as:

Purple Angel

Engillinn og steikin

Höfundur: Eiríkur Þann 24. júlí 2010

Jæja, þá er síðasta sumarfrísvikan á enda (í bili, fæ eina viku til viðbótar í ágúst).  Við ætluðum að vera í Gautaborg þessa viku en þar sem bíllinn bilaði varð lítið úr því.  Við skelltum okkur því til Stokkhólms í staðinn og fórum í Gröna Lund, sem er tívolíið í Stokkhólmi.  Smáfólkið var nokkuð ánægt með þá ferð, þó það hafi verið pínulítil vonbrigði að fá ekki að gista í tjaldi (reyndar er Gothia Cup í Gautaborg þessa viku og því ekki víst að það hafi verið mikið pláss eftir á tjaldstæðum í Gautaborg).

Við fullorðna fólkið vildum líka fá smá sárabót og ákváðum því að grilla og taka gott vín út úr kælinum.  Útkoman varð grilluð Entrecote og með því drukkum við Montes Purple Angel 2004.  Þetta er hreint út sagt frábært vín, aðeins farið að þroskast, með hnausþykkri angan af kirsuberjum og dökku súkkulaði, ásamt ögn af amerískri eik og pipar.  Í munninn fær maður nóg af mjúkum tannínum, sama súkkulaði- og kirsuberjakeim, mikil fylling og laaaangt eftirbragð.  Einkunn: 9,0 – Góð Kaup! Keizarinn, sem var í mat ásamt fjölskyldu sinni, kom með Chateau de Caraguiles 2005 (vona að ég stafi þetta rétt), sem er frá Corbier í Frakklandi.  Það stóð sig furðu vel á eftir englinum, mjúkur berjakeimur og þægileg tannín ásamt þokkalegu eftirbragði.  Einkunn: 7,5.

Engillinn stóð vel undir væntingum og ég bíð spenntur eftir 2007-árgangnum sem bíður í kælinum mínum…

{ 0 comments }

Rólegt á Austurvígstöðvunum

Höfundur: Eiríkur Þann 7. mars 2010

Það hefur verið rólegt að undanförnu hjá okkur – ég hef verið á vakt alla helgina og því ekki getað prófað neitt vín.  Vonandi verður gerð bragarbót á því um næstu helgi, en þá er úrslitakvöldið í sænska Melodifestivalen og við erum boðin í mat til vinafólks.  Melodifestivalen er mikil tónlistarveisla hjá svíanum – 4 undankeppnir, undanúrslit og svo úrslitakvöldið, samtals 4 keppnir þar sem hver og ein myndi nánast sóma sér vel sem úrslitakeppni Eurovision, einkum sjálft úrslitakvöldið sem haldið er í troðfullri Globen-höllinni.  Vikuna þar á eftir er ég svo í Falun og því lítið um vínprófanir en kannski get ég haldið áfram með vínhandbókina mína, sem hefur legið á ís undanfarna mánuði.

Árshátíð Vínklúbbsins er á næsta leiti og ég verð því miður fjarri góðu gamni.  Þetta eru magnaðar veislur og engu til sparað þegar kemur að mat og drykk.  Það er orðið allt of langt síðan ég komst á árshátíð Vínklúbbsins og nokkuð ljóst að það er kominn tími á mætingu!

Ég er búinn að panta tvær flöskur af Casa Lapostolle Clos Apalta 2007 og þær koma vonandi í vikunni.  Það verður kannski smá sárabót í staðinn fyrir árshátíðina.  Svo er ég að vonast til að Purple Angel verði fáanlegt með vorinu.  Innflytjandinn er að bíða eftir svari frá Systembolaget og lofaði að láta mig vita…

{ 0 comments }

Vín ársins 2008

01.02.2009

Carmenére var talin útdauð í Chile eftir að rótarlúsin phylloxera barst þangað um 1880.  Árið 1993 fannst Carmenére þó aftur í Chile og það er enn sem komið er eina landið þar sem þrúgan er ræktuð í einhverju magni.  Á síðustu árum hafa komið fram mörg vín byggð á Carmenére, sum hver ansi mögnuð.  Þar [...]

Lesa meira →

Montes Purple Angel 2005

06.07.2008

Í vikunni pantaði ég rúmlega 10% af öllu því sem til er af fjólublá englinum hér í Svíþjóð (þó ekki allt fyrir sjálfan mig).  Í dag var alveg einstaklega gott veður, sól og tæplega 30 stiga hiti og því alveg tilvalið að grilla nautalund og opna góða rauðvínsflösku.  Ég hreinlega stóðst ekki mátið og opnaði [...]

Lesa meira →

Einstakt kvöld á Holtinu!

05.20.2008

Fyrir þá sem ekki eru neitt sérstaklega uppteknir fimmtudaginn 5. júní og hafa 35 þúsund krónur aflögu bendi ég á að Pierre Lurton, sem er einn aðalmaðurinn hjá Chateau Cheval Blanc og Chateau d’Yquem, verður sérstakur gestur á Hótel Holti þetta kvöld.  Friðgeir Ingi Eiríksson, matreiðslumeistari á Veitingastaðnum Gallery á Holtinu mun töfra fram veislumáltíð [...]

Lesa meira →

Síðasti engillinn – meira Chianti?

06.17.2007

Guðrún kom heim frá Íslandi í síðustu viku og tók með sér síðustu flöskuna af fjólubláa englinum í Fríhöfninni – kærkomin viðbót í vínkælinn minn! Annars hefur lítið verið drukkið af fínum veigum undanfarið, þrátt fyrir að ég hafi m.a. brugðið mér til Aþenu. Þó stendur til að gera á því bragarbót því fjölskyldan er [...]

Lesa meira →

Fjólublái engillinn og Bordeauxboltinn!

05.20.2007

Við fengum góða gesti um síðustu helgi þegar Hugrún og Hermann komu í heimsókn. Þau tóku með sér ýmislegt góðgæti og ég reyndi því að draga fram eitt og annað lítilræði úr skápnum mínum (sem því miður er mjög lítill, en ég hef augastað á 200-flösku Bosch-kæli). Fyrsta kvöldið var fengum við okkur dálítið sushi [...]

Lesa meira →